Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Qupperneq 9
E*V Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR lO.MAl2005 9
Verjendur poppsöngvarans Michaels Jackson eru í vondum málum eftir aö barna-
stjarnan Macaulay Culkin ákvað að hætta við að bera vitni. Hann átti að vera
fyrstur í röð ofurstjarna sem ætluðu að bera blak af Jackson.
Dýrt gubb
í Brasilíu
Brasilískur maður hefur
höfðað mál á hendur bar
þar í landi fyrir að hafa
rukkað hann um sérstakan
æluskatt. Luiz Fernandes
Peres fékk skattinn ofan á
reikninginn eftir að vinur
hans varð veikur á klósett-
inu. Þessi tiltekni bar hefur
það á stefnuskrá sinni að
rukka þennan skatt í hvert
skipti sem einhver kastar
upp á lóðinni. Perez segir
hins vegar í viðtali við
brasilískt dagblað að hann
Kti á þetta sem fjárkúgun af
verstu gerð.
Táningar
stálu strætó
Lögregluyfirvöld íÁstr-
afiu leita nú þriggja tán-
inga sem stálu strætó eftir
að bílstjórinn hafði bmgð-
ið sér út til að létta á sér.
Bílstjórinngleymdi að taka
lyklana úr kveikjulyklinum
og þegar hann sneri aftur
var strætóinn horfinn. Yfir-
maður hins seinheppna
bílstjóra tjáði fréttamönn-
um að bílstjórinn hefði að-
eins bmgðið sér frá í þrjár
mínútur. Líklegt þykir að
bflstjóranum verði refsað
fyrir vanrækslu. Yfirmað-
urinn segist þó vona að
þeir sem stálu bflnum
hljóti að launum harðari
refsingu en ökumaðurinn.
Culkin vitnar ekki
lyrir Jacksnn
Poppgoðið Michael Jackson hefur átt undir högg að sækja í rétt-
arhöldunum sem standa yfir gegn honum í Los Angeles en þar er
hann sakaður um kynferðislega áreitni gagnvart börnum auk
þess að hafa gefið börnum áfengi. Nú heltast helstu hjálpar-
kokkar hans og vinir hver á fætur öðrum úr lestinni sem vitni í
málinu, nokkuð sem kemur sér afar illa fyrir Jackson.
Macaulay Culkin, sem er orðinn
24 ára gamall og varð heimsfrægur
fyrir leik sinn í Home Alone-myndun-
um, kynntist Jackson þegar hann lék í
myndbandinu við lagið Black &
White árið 1991.
Smeykur við sækjandann
Culkin hefur dvalið á Neverland,
búgarði Jacksons, og stutt hann opin-
berlega en hann hyggst ekld bera
vitni í máli Jacksons þar sem hann er
sakaður um kynferðislega áreitni
gegn börnum. Samkvæmt heimildum
Sky-sjónvarpsstöðvarinnar bresku á
Culkin að hafa orðið smeykur við að-
gangshörku sækjenda í málinu sem
hafa sótt grimmt að vitnum og því
ákveðið að bera ekki vitni.
Áfall fyrir Jackson
Þetta er gífurlegt áfall fyrir verj-
endur Jacksons sem hafa nýhafið
vörnina fyrir poppgoðið. Culldn átti
að vera fyrstur í langri röð ofurstjarna
á borð við leikkonuna Elizabeth
Taylor, söngvarann Stevie Wonder og
söngkonuna Diönu Ross.
Thomas Mesereau, lögmaður
Jacksons, þarf fyrst að berjast við
ásakanir frá fyrri tíð áður en hann
byrjar að kljást við ásakanir um kyn-
ferðislega áreitni gagnvart börnum,
ásakanir um að hafa gefið bömum
áfengi og að hafa haldið fjölskyldu
nauðugri á búgarði sínum. Jackson
neitar öllum þessum ásökunum og er
búist við að Mesereau muni bera því
við að Jackson sé sjálfur enn bam og
hafi gaman af því að umgangast þá
sem em á sama þroskaskeiði og
hann.
Michael Jackson svikinn
Það verður mikið áfaii fyrir
Jackson efMacaulay Culkin
neitar aðbera vitni fyrir hann
Enskir veðbankar hafa ekki trú á Harry
Veðja að Harry klári
ekki herþjónustuna
Harry prins í Bredandi gekk í gær
í herinn en hann mun dvelja þar
næstu 44 vikurnar. Harry geldcst
undir fjögurra daga þjálfún og eftir
að hann komst í gegnum hana var
hann skráður inn í Sandhurst-her-
skólann sem þykir vera sá besti í
Bretlandi.
Breskir veðbankar hafa ekki
mikla trú á því að Harry klári her-
þjónustu og skella skollaeyrum við
þeim ummælum hans að hann vilji
byrja strax og ætli sér að gera sitt
besta. Þeir em þegar farnir að gefa
fófid kost að á veðja að Harry klári
ekki vikumar 44 enda er aðbúnaður-
inn í Sandhurst-herskólanum held-
ur ólíkur því sem hann á að venjast.
Harry, sem mun ganga undir nafn-
inu Hr. Wales í herskólanum, mun
Harry prins Gegnir herþjónustu næstu 44
vikurnar.
gista á sama stað og aðrir nemend-
ur, í fábreyttum vistarverum og þarf
að vakna eldsnemma á morgnana
líkt og hermanna er siður.
Blair endurskoðar fikniefnalöggjöfina
Óttast röng skilaboð
til ungmenna
Tony Blair hefur í hyggju
að endurskoða fíkniefiialög-
gjöfina í Bretlandi þegar
kemur að kannabisneyslu. Á
síðasta ári var kannabis fært
niður í flokk C, sama flokk og
sterar og ýmis lyfsseðilskyld
geðlyf. Þessi tilfærsla hafði
þau áhrif að í fæstum tilfellum var
fólk handtekið fyrir að vera með efnið
í fómm sínum nema um væri að
ræða verulegt magn.
Tony Blair gaf það Júns vegar í
skyn á síðasta degi kosningabarátt-
unnar að lögunum yrði breytt enn á
ný. Eftir nýja rannsókn, sem gerð var
af vísindamönnum í Nýja-
Sjálandi og benti til sterkra
tengsla á milli kannabis-
neyslu og geðsjúkdóma,
fyrirskipaði Charles Clarke,
innanrfldsráðherra Bret-
lands, að lögin yrðu tekin til
endurskoðunar. Blair hefur
nú blandað sér í málið sem þykir
benda sterklega til þess að þetta mál
verði á dagskrá nýrrar rfldsstjómar
hans. Þó að engin merkjanleg aukn-
ing hafi orðið á neyslu kannabiséfna
eftir að slakað var á löggjöfinni telur
Blair að með henni hafi verið send út
röng skilaboð.
FROST
iCÆLI
MEÐ MIKLUM
AFSLÆTTI
DÖNSK GÆÐ
MLEIDS
CK) Heimilistæki
OPYRARI
HEIMILISTÆKI
Kynntu þér málm í verslun okkar eða á vefsvæðinu www.nlis