Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Síða 16
76 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005
Fjölskyldan DV
Nýtt systkini
Systkinabönd vara alla ævi einstakling-
anna og því er mikilvægt að þau fari vel
af stað. Sérfræðingar mæla með að for-
eldrar undirbúi börn sín vel fyrir komu
nýs fjölskyldumeðlims. Þeir hvetja for-
eldra til að svara spurningum barnanna á
sem skýrastan hátt og leyfa þeim að taka
þátt í undirbúningnum sem fylgir komu
nýja barnsins. Leyfðu þeim að æfa sig að
halda á barni með því að halda á dúkku
en gerðu þeim grein fyrir að mikill munur
er á lifandi barni og dúkku. Reyndu að
sýna afbrýðisemi þeirra í garð litla systk-
inisins skilning og hjálpaðu því að vinna
úr þeim tilfinningum efti bestu getu.
Samband sem
varir alla ævi
Undirbúðu barn-
iðvelundirað
eignast systkini.
tilað
____Ihöndla
foreldra-
hlutverkið
þegar það virðist
yfirþyrmandi
1. Farðu þér hægt víö lifum i
heimi þar sem allt virðist )>urfa að gerast sam-
stundis. Stilltu þlg inn á tima barnsins þar sem
hlutirnir gerast rólega en örugglega.
2. Dragðu úr öðrum
skyldustörfum Þú verður aöeins
nýbakað foreldri i nokkra mánuði í lífi þínu. Njóttu
þeirra, aðrar skyldur taka nógu fljótt við.
3. Sofðu þegar þú getur
Reyndu að hvilast þegar barnið sofnar eða er í um-
sjá einhvers annars en þín. Oft lita nýbakaðir for-
eldrar á hvíld sem tímaeyðslu enda margt um að
vera og margt að gera en góð hvíld styrkir þig og
um leið verða störfin ekki jafn yfirþyrmandi.
4. Hugsaðu vcl um þig Það
fer gríðarleg orka i að læra inn á þau störf sem
fylgja nýja barninu og þvi afar mikilvægt að þú
náirað hlaða batteríin við og við. Notalegt bað,
lestur góðrar bókar eða stutt heimsókn til vinar
getur hjálpað manni mikið. Athugaðu hvort þú
getir ekki gert tvo til þrjá skemmtilega hluti á
innan við klukkustund og endurnýjaðu orku þína.
5. Littu á grát barnsins
sem leið þess til sam-
Sldpta Stundum koma stundir þar sem ekk-
ert virðist ætla að sefa grát þess en þá er um að
gera að sýna þolinmæði og sýna barninu að þú
verður alltaf til staðar þegar eitthvað dynur á.
stkins-
ðisemi
eldist
ekki
alltat
affólki
6. Lágmarkaðu væntingar
þíliar Margir foreldrar halda að í bameignar-
fríinu muni þeir koma ótal verkum I framkvæmd.
Taktu bara eitt verkefni fyrir i einu.
7. Þiggðu aðstoð þegar
hún er boðin Mörgum er afar illa við
að þiggja hjálp annarra en þegar kemur að þvi að
hugsa um lítið bam ættir þú að líta þannig á málið
að þá sért þú að leyfa öðrum að hjálpa þér.
8. Biddu u in hjálp þegar
þú þarft Þú átt ábyggilega einhverja að
sem vilja bjóða fram aðstoð sina en þora það ekki.
Þú getur spurt vanfærnislega hvort þeir væru ekki
tll í að gera þér smá greiða. Ef þig grunar að
vandamál þitt sé meira en þreyta skaltu ekki hika
við að nefna það við hjúkrunarfræðing eða lækni.
9. Hittu aðra nýbakaða
foreldra Margír eiga erfitt með aö trúa
því að foreldrahlutverkið geti reynt jafn mikið á
þolrifin og raun ber vitni en þú mátt vera viss um
að það er margt fólk sem glímir við sömu vanda-
mál og þú og er jafn þreytt. Þú getur fundið fyrir
miklum stuðningi með því að tala við annað fólk i
þinni stöðu. Kíktu á mömmumorgna og annan
félagsskap fyrir foreldra.
10. Viðurkenndu að þetta
getur verið erfitt ntia barnið þitt
breytir þér og lífi þinu. Tilfinningar þínar þroskast og
oft er stutt í tárin. Það er óþarfi að óttast, þetta er
partur af því að aðlagast nýja hlutverkinu sem getur
tekið svo mikið á en gefur jafnframt svo mikið.
ort oImjjía,
BARNAVÖRUVERSLUN • QLÆSIBÆ
slmi 5S3 3386 • www oo.ls
Komdu sæl, Valgeiöur!
Við systurnar höfum alltaf
verið ágætar vinkon-
ur en það varð
breyting á því
þegar ég lauk
námi og fór í
skemmtilegt
starf. Nú má ég varla opna
munninn án þess að fá
athugasemdir frá henni
um hvað ég þykist
eiginlega vera. Eg
vil að við verðum
áfram góðar vin-
konur en satt að
segja er ég alveg að
gefast upp á
henni. Hvað
leggur þú til?
Sista
Sæl, Sista!
Til hamingju.með nýja starfið og
gangi þér vel! Það er leiðinlegt að
heyra að systir þín eigi erfitt með að
samgleðjast þér og láti líðan sína í
ljós með þessum hætti. Við finnum
öll til afbrýðisemi einhvern tíma á
lífsleiðinni. Ástæðurnar geta verið
margs konar og það veltur á ýmsu
hvort og hvernig við látum hana í
ljós. Eitthvað við þínar nýju að-
stæður virðist trufla systur þína
og ykkar samband.
Afbrýðisemi er viðurkennd
hjá ungum börnum sem eignast
ný systkini en það er erfiðara að
viðurkenna hana fyrir sjálfum sér
og öðrum á fullorðinsaldri. Þá er
ætíast til að við sýnum þann þroska
að geta glaðst yfir velgengni ann-
arra, sérstaklega þeirra sem standa
okkur næst. Ekki er ólíklegt að þú
hafir verið upptekin af nýja starfinu
og samstarfsfélögunum og það hafi
haft áhrif á samskipti og samtöl ykk-
ar systra. Ef til vill hefur þú haft
minni tíma fyrir hana en áður, það
kemur ekki fram í bréfinu þínu.
Kannski þarftu að líta svohtið í eigin
barm.
Óöryggi og vanmáttur
Svo er afbrýðisemi ekki alltaf á
rökum reist. Hugsanlega er systír
þín óörugg með samband ykkar í
dag. Hún óttast jafnvel að ekki sé
lengur pláss fyrir hana í þínu hfi og
finnst hún hafa misst þig í eitthvað
nýtt og spennandi sem hún á enga
hlutdeild í. í stað þess að segja þér
að hún sakni þín og vilji sjá meira af
þér, ýtir hún þér í burtu með nei-
kvæðni sinni.
Velgengni þín og starfsánægja
minnir hana ef til vill óþægilega á að
hún sjálf er óánægð með sitt hlut-
skipti. Ert þú að gera eitthvað sem
hana langar til að gera en getur ekki
látið verða úr? Endurspeglar fram-
koma hennar í þinn garð kannski
hennar eigin óánægju og vanmátt?
Fórnaðu ekki vinskapnum
fyrir friðinn
Ekki er sjálfgefið að ahir í fjöl-
skyldunni séu hrifnir af því að við
breytumst og tökum ný þroskaskref.
Stimdum þykir heppilegra að við
breymmst ekki neitt, s.s. þegar sá
afbrýðisami er háður hinum, til
dæmis um andlegan stuðning,
peninga eða pössun og þess háttar.
Hefur þú velt því fyrir þér hvaða
hlutverki þú gegndir í hfi systur
þinnar áður en þú varst ráðin í þetta
nýja starf?
Augljóst er að þið báðar líðið fyr-
ir afbrýðisemi systur þinnar. Hún
þarf að takast á við hana ef hún ætí-
ar ekki að ganga af vinskap ykkar
dauðum. Fómaðu ekki vinskapnum
fyrir „friðinn" með því að láta eins
og ekkert sé.
Talaðu við systur þína af hrein-
skilni og segðu henni hvað þér
finnst um þessar athugasemdir
hennar. Hreinsaðu loftið. Kastaðu
boltanum til baka og spurðu hvað
hún eigi við. Láttu hana jafhframt
vita að þér þyki miður hvemig
komið er og að þú viljir að þið verð-
ið aftur góðar vinkonur.
Afbrýðisemi er ömurleg og niður-
drepandi tilfinning. Ég er viss um að
systur þinni liði betur ef hún losnaði
við hana. Einlægni er mikilvæg til að
skapa traust. Við getum ekki krafist
vináttu eða ástar en gagnkvæm virð-
ing og kurteisi er góður rammi fyrir
öh mannleg samskipti. Líka á milli
systra.
Meökveöju, Valgeiöui.
Foreldrar sem uröu fyrir ofbeldi í æsku eru líklegir til beita sömu uppeldisaðferðum
Uppeldi skiptir máli
Mikið hefurverð deilt um uppeldis-
aðferðir í gegnum tíðina. Það sem einu sinni
þótti ómissandi í því að koma fólki til manns
þykir nú argasta firra og öfugt. Það þykir þó
nokkuð öruggt að það sem er gert með
góðum hug er líklegt til að hafa góð áhrif.
langtímarannsóknir á umönnun barna hafa
sýnt að næmni foreldris á þarfir barns og að
þeim þörfum sé sinnt fljótt og vel eykur
mjög líkur á því að traust tilfinningatengsl
skapist milli barns og foreldris en þau eru
talin veita barninu mikilvæga undirstöðu út
í lífið. Oft dæmir fólk sig afar hart þegar eitt-
hvað fer úrskeiðis og því er gott að hafa í
huga að barnauppeldi er krefjandi og eðli-
legt að foreldrum verði einhvern tírriann á
að sinna eða gæta barnsins ekki eins og
best hefði verið á kosið. Einstök mistök telj-
ast ekki vanræksla en þegar sama sagan
endurtekur sig aftur og aftur er þörf á að
skoða málið betur.
Bandarískar rannsóknir sýna að um 30%
Vanræksla erfist Líkurer
dað þeir sem fengu slæmt
uppeldi en eru gagnrýnir ú
það endurtaki það ekki á
eigin börnum.
jaeirra sem verða fyrir ofbeldi eða van-
rækslu I barnæsku vanrækja eða beita eigin
börn ofbeldi, þó að það birtist ekki endi-
lega í sömu mynd og þeirra eigin reynsla.
Á hinn bóginn eru það aðeins um 5% for-
eldra sem hafa hlotið uppeldi án ofbeldis
eða vanrækslu sem vanrækja eigin börn
eða beita þau ofbeldi. Á móti kemur að for-
eldrar sem hafa orðið fyrir ofbeldi eða van-
ræsklu eru ekki líklegir til að endurtaka það
á sínum eigin börnum ef þeir eru gagnrýnir
á gerðir foreldra sinna og slnar eigin upp-
eldisaðferðir, hefur gengið vel I skóla og
vandað til atvinnu og makavals.
Heimild: visindavefur.hi.is.