Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Side 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005
Bílar DV
Nokkur ráð til að halda bílnum í
Flestir, ef ekki allir, bílaeigend-
ur vilja hugsa vel um bílinn sinn
og halda honum í toppástandi.
Það er ýmislegt sem ber að hafa í
huga og hér eru nokkur ráð sem
ættu að koma að góðu gagni:
• Skiptu um olíu og olíusíu
reglulega.
• Aðgættu alla vökva, eins og
bremsuvökva, stýrisvökva,
skiptivökva og aðra vökva.
• Athugaðu loftið í dekkjunum
mánaðarlega eða svo.
• Gakktu úr skugga um að öll ljós
séu í lagi.
• Skiptu um rúðuþurrkur þegar
þess gerist þörf.
• Athugaðu reglulega hvort Ioft-
sían sé í lagi.
• Þvoðu bílinn reglulega og
notaðu sérstaka bílasápu.
• Notaðu svamp eða vaskaskinn
til að þrífa bílinn, sópar geta
rispað lakkið.
• Notaðu tjöruhreinsi á bílinn
þegar þú þrífur hann.
• Bónaðu bflinn reglulega til að
verja lakkið.
• Ryksugaðu bílinn innandyra
eins vel og þú getur.
Hyundai hefur jaínt og þétt verið
að skorað betur hjá þeim alþjóðlegu
fyrirtækjum sem mæla og meta gæði
bíla. Samkvæmt úttektum fyrirtækja
á borð við J.D. Power er Iiyundai ekki
einungis með hæsta gæðastig þeirra
bílategunda sem framleiddar em í
Suður-Kóreu heldur mælast gæði
Hyundai-bfla nú sambærileg við það
sem best gerist hjá japönskum bfl-
um.
Hyundai Santa Fe, sem er rflculeg-
ar búinn en keppinautar á sama
verði, er talsvert vandaðri og betur
smíðaður bfli en ætla mætti sé tekið
mið af verðinu. Santa Fe er dálítið
sérkennilegur útlits og sker sig úr
öðmm borgarjeppum. Sumir myndu
segja að útlitið væri hluti af sterkum
karakter bílsins - aðrir myndu segja
bflinn ljótan og enn aðrir að hann
væri einfaldlega öðmvísi og með
sinn eigin stfl. Andlitslyfting á árgerð
2005 breytti útlitinu ekki meira en
svo að margir sjá engan mun í fljótu
bragði.
Helstu kostir
Helstu kostir Santa Fe em: í fyrsta
lagi stærðin og mikið innra rými, en
Santa Fe og Honda CR-V2 em stærst-
ir þeirra borgarjeppa sem fjallað hef-
ur verið um hér í DV á undanfómum
vikum; í öðm lagi mikill þæginda-
búnaður sem er innifalinn í verðinu;
í þriðja lagi líflegur karakter bflsins í
akstri; í fjórða lagi sterk bygging,
snerilstyrkur og áberandi góður frá-
gangur og í fimmta lagi ný dísilvél
sem stenst nýjar og strangari kröfur
um mengunarvöm, spameytni og
hljóðværð - dísilvél með forðagrein
(common rail) og með afl og snerpu
á við sprækustu bensínvélar með
svipað slagrými. Með dísilvélinni er
Santa Fe álitlegur kostur fyrir þá sem
leggja mikið upp úr spameytni.
Þótt þessi gerð bfla eigi meira
sameiginlegt með fjórhjóladrifnum
station-bfl en jeppa ér Santa Fe sá
sem kemst næst því að líkjast jeppa
að byggingu og styrk. Öfugt við
Toyota RAV-4, sem mér finnst lipur
en karakterlaus í akstri, er Santa Fe
bráðskemmtilegur í akstri og und-
ir stýri á honum hefitr maður á
einlivem hátt, sem erfitt er að skýra,
meiri tilfinningu fyrir bflnum en
gengur og gerist.
Bestu kaupin
Vegna þess hve dísilbfllinn er
hlutfailslega dýr em bestu kaupin, að
mínu mati, í beinskipta Santa Fe-
bflnum með 2,4 lítra 146 ha bensfn-
vélinni en meðaleyðsla hans er 9,8
lítrar á hundraðið í blönduðum
akstri. Með V6-vél er bfllinn ekki mik-
ið dýrari en hins vegar eykst meðal-
eyðslan umtalsvert (14-15 lítrar).
Eins og við er að búast er þetta
ekki lúxusbfll, t.d. em stólamir ekki af
vönduðustu gerð og í mýksta lagi fyr-
ir langferðir en þrátt fýrir það fæst
tæplega jafn mildð fyrir peningana í
öðrum borgarjeppa en Santa Fe.
Þrátt fyrir 146 hö er Santa Fe, sem
vegur rúm 1700 kg óhlaöinn, ekki
beint ljónsprækur (11,4 sek 0-100)
enda væri eyðslan þá að lflöndum
meiri. En vélin togar drjúgt sé spilað
á gírana og snúningshraðann, er t.d.
nieð talsvert mikla seiglu í 5. gír (há-
markstog er 200 Nm við 4000 snm).
Ég vek athygli á því að í Santa Fe er
um 220 kg meira efrii en í Honda CR-
V2. Þótt það sé ekld beinn mæli-
kvarði á styrk er það, í mínum aug-
um, ákveðin vísbending.
Santa Fe er stöðugur og þýður í
akstri og ágætlega hljóðlátur upp
undir 90 km/klst en þá fer að hvína
dálítið. Miðstöðin er öflug, Isofix-
festingar eru fyrir barnastóla og
afturdyr stórar með hurðum sem
opnast vel og tolla opnar. Þessi
þrjú atriði sldpta barnafjölskyldur
miklu máli við val á bfl. Hvað ör-
yggið varðar er Santa Fe með fjórar
stjörnur út úr árekstrarprófi Euro-
NCAP sem telst ágætlega viðun-
andi þótt talsvert vanti upp á að
hann nái fimm stjömum.
Samandregið: Vandaður, stór og
efhismikill bfll, skemmtilegur í akstri,
stór og rúmgóður en ódýrari en sam-
bærilega búnir keppinautar. Góð
þjónusta, þjónustukerfi um allt land
og varahlutir á hóflegu verði: Mikfll
bífl fyrir peningana.
Leó M. Jónsson vélatækni-
fræöingur.
leoemm.com.
Bílasérfæðingur DV
(5g beinskiptir) Vélar- Ixb = Hjól- Hæð Eigin Burðar- Dráttar- Snerpa Eyðsla*
(bensínvél) stærð botn-skuggi haf þyngd geta geta sek. l/100km
Honda CR-V2 2,0. 4,6x1,8= 8,3 2,63 1,71 1540 462 600/1500 10,8 9,0
Hyund. Santa-Fe 2,4 4,5x1,8= 8,2 2,62 1,73 1760 620 750/1650 11,4 9,8
MMC Outlander 2,0 4,5x1,7 = 7,9 2,62 1,62 1535 535 600/1500 11,4 9,4
Toyota RAV-4 2,0 4,2x1,7= 7,4 2,49 1.71 1300 525 640/1500 10,6 8,8
*Meðaleyðsla í blönduðum akstri.
Taflan auðveldar samanburð á helstu málum og afköstum þessara fjögurra vinsælu borgarjeppa. 13. dálki er
botnskuggi bílsins en auk þess að vera samanburður á stærð bílanna segir hann talsvert um hve vel bíllin passar í
bílskúrinn.
Fjölmargir möguleikar eru í
boði fyrir fólk sem leitar sér
að góðum fjölskyldubíl. DV
hafði samband við öll helstu
bílaumboð landsins og fékk
upplýsingar um bíla á verðbil-
inu 1.700.000 til 2.000.000
krónur. Miðað er við fjögurra
til fimm dyra fjölskyldubíla í
umræddum verðflokki og að-
eins einn bíl af hverri bílateg-
und. Listinn er því ekki tæm-
andi en leiðbeinandi um þá
möguleika sem eru fyrir hendi
fyrir þá sem hyggjast kaupa
nýjan bíl á næstunni.
Kraftmestu bílar í heimi
Fram að árinu 2000 voru bílar með 400
hestöfl eða meira sjaldgæfir en á síðari
árum hefur þeim fjölgað ört. Árið 2000
voru aðeins tiu bflategundir með 400
hestöfl en nú eru 18 mismunandi bfla-
tegundir með 400 hestöfl eða meira.
Bflarnir eru mjög fjölbreyttir hvað
varðar útlit og gæði en eitt eiga þeir
sameiginlegt og það er krafturinn þó
að sumar tegundirnar, eins og Merc-
edes-Benz S65 AMG sé 604 hestöfl.
Svona kraftmiklir bflar eru þó ekki fyrir
alla en vfst er að sannir bflaáhuga-
menn myndu eflaust ekki siá hendinni
á móti þvf að prufa eða eiga svona
kraftmikla bíla.
Fimm kraftmestu bflategundir í helmi
utan keppnisbfla f kappakstri eru:
1. Mercedes-Benz SLR McLaren, 617 hestafla
V12-vél.
2. Porsche Carrera GT, 605 hestafla VlO-vél.
3. Mercedes-BenzCL65 AMG, Mercedes-Benz
S65 AMG, Mercedes-Benz SL65 AMG, eru allir
með 604 hestafla VI 0-vélar.
4. Lamborghini Murcielago, 580 hestafia VI2-
vél.
5. Berrtley Contintal GT, 552 hestafla W12-vél.
Kraftmesti bill í heimi
Mercedes-Benz SLR McLaren
ermeö 617 hestafla vél.