Dagblaðið Vísir - DV - 10.05.2005, Síða 23
J3V Sport
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ2005 23
Áleiðtil Hollands Baráttuhundurinn Hlynur Bæringsson er á förum til Hollands og leikur
þar afleiöandi ekki meö Snæfelli næsta vetur.
Hlynur Bæringsson, fyrirliði Snæfells, hefur náð samningum
við hollenska liðið Woonaris. Þar mun Hlynur hitta Brandon
Woudstra sem lék með Njarðvíkingum á síðasta ári.
Algjön vitleysa aö
próla belta ekki
Hlynur Bæringsson, fyrirliði
Snæfells í Intersportdeildinni og
landsliðsmaður í körfuknattleik,
hefur samþykkt tilboð hollenska
liðsins Woonaris um að leika með
liðinu næsta tímabil. Eins og greint
var frá í DV í gær er Sigurður Þor-
valdsson einnig með tilboð á borð-
inu frá Woonaris en hefur ekki gert
upp hug sinn að svo stöddu.
„Mig langar bara að prófa þetta
og mér líst ágætlega á liðið," sagði
Hlynur. „Ég er búinn að tala mikið
við Brandon Woudstra [fyrrverandi
leikmann Njarðvíkur sem leikur
með Woonaris) í vetur og hann gaf
þessu góða einkunn. Ég tel mig eiga
mjög góða möguleika á að spila en
það var einna mikilvægast. Ég hefði
örugglega getað farið til betra liðs og
fengið hærri laun en hitt skipar
meira máli.
Hlynur sagði tímasetninguna
ekki geta verið betri. „Ég er 22 ára og
er búinn að spila í úrvalsdeildinni
síðan ég yar 15 ára, einhver 7-8 ár.
Ég hleyp ekki um á nærbuxunum af
spenningi yfir fslandsmótinu og því
er mjög spennandi að fara til Woon-
aris, æfa tvisvar á dag og eiga mögu-
leika á að bæta sig. Þetta er eins árs
samningur og ég held að það væri
algjör videysa að prófa þetta ekki á
meðan ég get.“
Æfir grimmt í sumar
Undirbúningur fyrir næsta vetur
er ofarlega á dagskránni hjá Hlyni
sem ætlar að eyða öllum stundum
við æfingar í sumar. „Ég ætla að
reyna að æfa sem mest svo ég fari út
í mínu allra besta formi en aðalat-
riðið er að bæta við mig snerpu. Það
er sjaldan sem ég lendi í vandræð-
um með líkamlegan styrk en hins
vegar gerist það frekar að ég eigi í
erfiðleikum með að dekka snögga
rnenn," sagði Hlynur en bætti því
við að þörf væri á lfkamlegri að-
hlynningu.
„Ég er með einstaklega slæma
ökkla og svo er eitthvað vesen á
hnénu um þessar mundir. Það er
mánaðarhlé framundan og vonandi
þarf ég ekki meira en það til að jafna
mig."
Hlynur þekkir vel til Hollands
enda „vel lesinn ungur maður" að
eigin sögn.
Sigurður gæti fylgt á eftir
„Ég fékk einhvern tíma að heyra
nafitið á bænum en ég hef ekki hug-
mynd um það,“ sagði Hlynur og hló.
„Maður þarf að minnsta kosti ekki
að bjarga sér með einhverju fingra-
máli eins og á Spáni því mér skilst að
Holiendingar séu góðir í ensku. Þeir
tala hana „rope-sliding" eins og ein-
hver orðaði hér um árið,“ sagði
Hlynur Bæringsson, nýbakaður
atvinnumaður í körfuknattleik.
Eins og áður segir þykir ekki
ólíklegt að samheiji Hlyns og vinur,
Sigurður Þorvaldsson, fylgi honum
ytra.
Aðalsteinn Eyjólfsson snýr aftur heim
Tekur við Stjörnunni
Dómari hvað er málið?
Aöalsteinn sést hér stjórna
kvennaliði IBV en hann gerði
liðiö að Islandsmeisturum
áður en hann hélt I víking til
Þýskalands.
Aðalsteins. Þrjár íslenskar stúlkur
léku með Weibern undir stjórn
Aðalsteins en enginn betur en Jóna
Margrét Ragnarsdóttir, en hún
skoraði grimmt og var með
markahæstu leikmönnum
deildarinnar. Jóna Margrét er einnig
á heimleið og Aðalsteinn er
vongóður um að þjálfa hana áfram.
„Hún er uppalinn hjá Stjömunni
og ég vonast tÚ að hún haldi tryggð
við sitt uppeldisfélag," sagði Aðal-
steinn en Valur hefur einnig mikinn
áhuga á að krækja í þessa mögnuðu
handboltakonu.
Stjarnan mun taka þátt í Evrópu-
keppni bikarhafa næsta vetur en
þrátt fyrir það ætlar Aðalsteinn ekki
að bæta erlendum leikmönnum við
hópinn.
„Mér líst rosalega vel á þennan
hóp sem ég hef í höndunum og ég
treysti honum fuilkomlega til þess
að leysa þau verkefiii sem em á
dagskrá hjá okkur. Þetta er vel
mannaður hópur sem þarf litla
styrkingu," sagði Aðalsteinn.
henry@dv.is
Handknattleiksþjálfarinn Aðal-
steinn Eyjólfsson staðfesti í samtali
við DV Sport í gær að hann myndi
táka við kvennaliði Stjömunnar í
sumar. Hann tekur við starfinu af
Erlendi ísfeld sem lét af störfum
fyrir skömmu en hann náði mjög
góðum árangri og gerði liðið að
bikarmeisturum í vetur.
„Við erum búnir að ná sam-
komulagi um öll helstu atriði þannig
að það er í raun aðeins eftir að skrifa
undir samninginn," sagði Aðal-
steinn við DV Sport í gær frá Þýska-
landi. „Mér h'st verulega vel á þetta
verkefni og það má í raun segja að ég
sé kominn heim enda ólst ég upp
hjá þessu góða félagi í Garða-
bænum."
Kemur Jóna með?
Aðaisteinn verður í Þýskalandi
fram að mánaðamótum enda að
ganga frá starfslokasamningi við
TuS Weibern sem hann
þjálfaði í vetur en hðið
----alvöru fjallahjól
Sumartilboð
Frábært tilbod á Mongoose barna og
krakkahjólum. Mikid úrval af hjálmum
verd frá 2.990
Árgerð 2(305
Rockadile 20"
Arrjerð 2005
Rockadíle AL
lliamdemDarihoirar
ílstell BQBI Isunlpui lraniJeimaril75nii Shimannl?) nírar
Aigaraaoos
MOTO Micro 12'
Árgerð 2005
MOTO Micro 16'
N FAXAFENI 7
S: 5200 200 MÁN - FÖS. KL 9-18. LAU: KL. 10-16
r
*