Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ2005 Fréttir DV Ólína stofnar akademíu Ólína Þorvarðar- dóttir skólameistari vinnur nú að því að koma á laggimar akademísku sam- félagi á Vestfjörð- um. Ólína vinnur að þessu í samstarfi við Önnu Guðrúnu Edwards- dóttur, starfsmann Nátt- úmstofu Vestfjarða. Hug- myndin er að kalla saman þá sem hafa embættis-, meistara- eða doktorsgráð- ur og em hæfir til kennslu og rannsókna á háskóla- stigi. Markmiðið er að virkja krafta þeirra sem hafa æðri menntun og geta unnið við rannsóknir, kennslu og þátttöku í vís- indaverkefnum. Bílslys við Sólheima Bíll valt á Sólheima- vegi gegnt bænum Eyvík í Grímsneshreppi í Ár- nessýslu um þrjúleytið í gærdag. Að sögn lögregl- unnar var ökumaður bflsins fluttur á heilsu- gæslustöðina á Selfossi til athugunar. Meiðsl ökumannsins voru ekki talin alvarleg en hann var sendur til öryggis. Fernt var í bflnum, tvær konur og tvö börn, og sluppu farþegar bflsins við meiðsl. Bfllinn er mikið skemmdur en allt fór á besta veg. Stóri bróðir? Bolli Thoroddsen, formaöur Heimdallar. „Stóri bróðir er lögregluyfir- vald. Sérstaklega með tilkomu nýrra fjarskiptalaga þar sem valdheimildir lögreglu eru auknar verulega til að geta fylgst náið með okkur borgur- unum. Lögreglan þarfað sjálf- sögðu svigrúm til að hand- sama glæpamenn en það má samt ekki skerða grundvallar- mannréttindi og ganga á frið- helgi einkaiífsins." Hann segir / Hún segir „Mitt lífsmottó er það að fólk á ekki að vera að skipta sér af þvl sem þvl kemur ekki við. Það þarfað vera ansi sterkur rökstuddur grunur til þess að réttlæta hlerun á sima eöa þvl að fylgjast með tölvuferðum. Myndavélar eru til dæmis óþarfar við eftirlit. Við ættum frekar aö vera meö mikið fleiri lögregluþjóna við eftirlit við staðinn Jóhanna Vigdfs Arnardóttlr leikkona. Ásakanir um kosningasvindl og allsherjarsmölun setja skugga á óvæntan sigur Ágústs Ólafs Ágústssonar i kosningum um varaformannsembætti Samfylkingar- innar. Vitni segjast hafa séð ungliða með fjölda atkvæðaseðla og heimildarmenn staðhæfa að hluti atkvæða hafi verið keyptur. Ágúst Ólafur Ágústsson, varafor- maður Samfylkingarinnar Bæði hann og kosningasmalinn Andrés Jónsson virðast hlaupnirí felur. „Klárt er að eitthvað gerðist sem ekki átti að gerast sem er leitt á svo glæsilegum fundi." „Ég stóð í röðinni og var að fara að greiða atkvæði í varafor- mannskosningunni. Ég sá þar ungliða sem var með fleiri en einn atkvæðaseðil í höndunum. Og einhver gaukaði því að mér að ef ég væri með fleiri en eina kennitölu og lykilorð þá væri ráðlegra að vera með það á einu blaði,“ segir Ingimar Ingimarsson vara- bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði og fulltrúi á lands- fundi Samfylkingarinnar. Fjöldi manna sem DV hefur rætt við fullyrðir að brögð hafi verið í taflí þegar kosið var til varaformanns á landsfundi Samfylkingarinnar um sfðustu helgi og svo virðist sem reynsla Ingimars staðfesti það. Hann segist í fyrstu hafa tekið þessu sem hverju öðru gríni og ekki hugs- að mikið út í það á þeim tiltekna tímapunkti. „Miðað við þær fréttir sem nú eru að berast hlýtur maður að velta því fyrir sér hvort svo hafi verið,“ segir Ingimar. Óvenjugóð þátttaka Menn hafa það fyrir sér í alvar- legum ásökunum um að kosninga- svindl hafi verið viðhaft að kjörsókn þeirra sem skráðir voru á landsfund og tóku þátt í þeirri kosningu hafi verið 94 prósent - af og frá sé að svo margir hafi verið staddir á þinginu þegar kosning fór fram en hún tók um klukkustund. Við næstu kosningar, sem voru til ritara, voru hins vegar miklu færri sem kusu og skeikaði þar 332 at- kvæðum sem er hátt hlutfall þegar haft er í huga að á kjörskrá voru 893 fulltrúar. Rannsókn hafin „Klárt er að eitthvað gerðist sem ekki átti að gerast sem er leitt á svo glæsilegum fundi. Eðlilegt er að flokksforystan fari yfir það mál og mér skilst að sú vinna sé þegar hafin, “ seg- ir Mörður Ámason þingmaður Sam- fylkingarinnar sem tekur það skýrt fram að hann telur úrslit í persónu- kjöri því sem fram fór á fúndinum ótvírætt og því ekki ástæða til að fram fari sérleg rannsókn eða yfirheyrslur. Olli spennandi fótboltaleikur afföllum? Ekki náðist í Ágúst Ólaf Ágústs- son nýkjörinn varaformann sem sigraði Lúðvík Bergvinsson með yfir- burðum eða 62 prósentum og 519 atkvæðum gegn 35,5 prósentum eða 297 atkvæðum. Lúðvflc Bergvinsson segist ekki vilja senda frá sér yfirlýsingu um málið að svo stöddu enda málið sér- lega viðkvæmt og alvarlegs eðlis. Hann vill bíða átekta, hvort einhver viðbrögð eða rannsókn muni fara fram af hálfu flokksins, en óhætt er að fullyrða að Lúðvflc er óhress. Ýmislegt bendir til svindls Ljóst er að smölun var nokkur í tengslum við vararformannsemb- ættið meðal ungliða. En smölun er eitt og svindl annað. Gísli Ósvaldur Valdimarsson var formaður kjör- stjórnar á fundinum. Hann upplýsir að kjörgögn hafi kostað að jafnaði 2500 krónur. Þúsund krónur fyrir eldri borgara og ungliða. Heimildarmenn DV fullyrða að greitt hafi verið af Ungum jafnaðar- mönnum ein greiðsla fyrir 270 þing- fulltrúa. Jafnframt er því haldið fram að af og frá sé að allir þeir hafi verið staddir á fundinum, heldur aðeins lítið brot, sem þýðir að einhverjir hafa greitt atkvæði fyrir þá sem ekki voru á fundinum. Það flokkast sem svindl. Greitt fyrir þátttöku ungliða Hershöfðingi í kosningabaráttu Ágústs Ólafs var Andrés Jónsson, for- maður Ungra jafnaðarmanna. Hann hefur áður komið við sögu í tengslum við umdeildar kosningar og er þekkt- ur fýrir að notfæra sér tengsl sín við óháð félagasamtök í atkvæðasmölun. Ekki náðist í hann í gær, frekar en Ágúst Ólaf, og virðist einna helst sem þeir hafi hlaupið í felur. Danskir þjófar með amerísk kreditkort herja á íslenskt símafyrirtæki Þjófar stálu 100 kreditkortum „Þeir keyptu síma- frelsi fyrir 200 þúsund í netverslun okkar og notuðu til þess 100 stolin kreditkort," seg- ir Ólafur Ragnarsson, framkvæmdastjóri IP- Nets sem rekur Heimsfrelsi. Fyrirtæki hans hefur orðið illi- lega fyrir á barðinu á bíræfhum þjófum og segir Ólafur að allt bendi til að svarta- markaðsbrask í Dan- mörku tengist máhnu. Ólafur Ragnarsson fram- úiu og viðskiptavinum „Við þurftum að kvæmdastjórl IPNets Þjóf- uess sá úúist við tugum loka fyrir símkerfið or svmdluöu tlltlega á honum. símtala frá óánægðum okkar í Danmörku til að geta stopp- Bandarflcjamönnum sem kannist að þessa þjófa og þurftum jafnframt ekki við að hafa verslað hjá þeim. að loka netverslun okkar,“ segir johann@dv.is Ólafur. Ólafur segir jafnframt að þjófarnir hafi verið mjög varkárir og unnið hratt. „Ef sama kreditkort er notað tvisvar á stuttum tíma hringja hjá okkur viðvörunarbjöllur, það gerðist hins vegar ekki núna. Þeir voru ekki nema tvo sólarhringa að ná út þessari upphæð, sem er y mjög stuttur tími.“ Þá segir Ólafur að fyrir utan óþægindin sem þetta hafi valdið fyrirtæk- Stal 345 krónum og fær 25 þúsund í sekt Falsaði til að kaupa fjarstýringu Gunnar Bjarki Guðnason var í gær sektaður í Héraðsdómi Reykja- vflcur eftir að hafa falsað útprentunn af vef Paypal á kvittun fyrir fjarstýr- ingu sem hann keypti á upp boðsvefnum eBay. Fjarstýring þessi kostaði 45 bandaríkjadali og játaði Gunnar að hafa breytt upphæð inni í 25 dali áður en hann prentaði út kvittun fyrir fjar- stýringunni. Fjárhæðin sem Gunnar komst hjá því að borga var 345 krónur og var fjarstýringin gerð upptæk af lögreglu. Egill Stephen- sen, saksóknari hjá Lög- reglustjóranum í Reykja- vflc sagði talsvert mikið um mál af þessu tagi og þau væru lit Dýr fjarstýring Skjalafals Gunn- ars kostaði hann 25 þúsund krónur. alvarlegum augum. „Fólk kemst hjá því að greiða frá fimmtíu krónum og allt upp í tugi þúsunda. Menn sem eru að spara sér með þessu móti gerast jafnframt sekir um alvar- legt brot.“ Athygli vekur að brotið átti sér stað þann 24. mars árið 2004 en var ekki þingfest í héraðsdómi fyrr en í ’ fyrradag, 23. maí, eða einu ári og tveimur mánuðum síðar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.