Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2005, Side 10
J 0 ÞRIÐJUDACUR 14. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Helga er ein skemmtilegasta
kona I heimi og frábær leik-
kona. Hún er góður vinur sem
ræktar vel sjálfa slg og reynir að
bæta heiminn.
Helga er með stjórnsýki á
háu stigi en er að reyna að
vinna í þvi. Hún er einnig
með ólæknandi kaupæði
og lætur stundum tilfinn-
ingarnar hlaupa með sig i
gönur.
„Hún er einhver
skemmtilegasta kona I
heimi. Hún er stanslaust
að rækta sjálfa sig og
bæta við sig og reynir
aö breyta og bæta heiminn
llka. Hún er llka óskaplega
hjartagóð. Helsti galli hennar er
aö hún hefur sama sjúkdóms-
einkenni og ég, við erum báðar
meö stjórnsýki á háu stigi.Ætli
það sé ekki þess vegna sem
okkur kemur svona vel saman.
En viö erum að reyna að vinna í
þessu."
Edda Björgvinsdóttir leikkona.
„Hún Helga er einstak-
lega skemmtileg og gáf-
uð manneskja. Hún er
afar hæfileikarík leik-
kona og mjög góöur
vinur. Það eina sem ég gæti
sagt á neikvæðu hliðina er að
hún er algjört skó- og fatafrík
og er haldin ólæknandi
kaupæði. Hún þarf reglulega að
gefa úr fataskápnum slnum til
að skapa pláss."
Steinn Armann Magnússon leikari.
„Helga er náttúrulega
alveg stórkostleg leik-
kona. Getur l raun leikið
hvað sem er. Það má
segja að hún leiki það
sem þarfað leika. Hún er auð-
vitað skemmtilega og lífleg og
mjög góö stúlka. Helsti galli
hennar er að hún er mikil til-
finningamanneskja og lætur
stundum tilfinningarnar
hlaupa með sig I gönur. Aðra
galla hefur hún ekki."
Jón Gnarr grinari.
Helga Braga Jónsdóttir er fædd 5. nóvem-
ber 1964. Hún er landsmönnum kunn fyrir
hæfileika slna I leiklist en óhætt er að
segja að hún sé einn afokkar ástsælustu
kvengrlnurum. Helga hefur bæði unnið
sigra I sjónvarpi og á sviði.
Bifreið á
beitingarskúr
Mikil mildi þótti að ekki
fór verr þegar eldri öku-
maður bakkaði biffeið sinni
út Oddann við Patrekshöfn.
Ökumaður missti stjórn á
bflnum með þeim afleið-
ingum að hann fór niður
snarbratta brekku áður en
hann stöðvaðist við beit-
ingarskúr. Miðað við bratt-
ann á hlíðinni þykir mikil
mildi að bfllinn valt ekki
með ófyrirséðum afleiðing-
um. Bflinn og beitingar-
skúrinn löskuðust töluvert
en ökumaðurinn slapp
ómeiddur og fór heim eftir
læknisskoðun.
■
m IS. fc
■p'-.h-./
;-M ; -
Um klukkan korter gengin í tíu í gærkvöldi að
íslenskum tíma kvað kviðdómur í Santa Barbara
í Kaliforníu upp þann úrskurð að poppgoðið
Michael Jackson væri saklaus af öllum ákæru-
atriðum um misnotkun á þrettán ára gömlum
dreng. Þrettán ára unglingurinn hafði staðið í
baráttu við krabbamein. Michael hafði verið
ásakaður um að gefa unga drengnum áfengi.
Jackson lá undir þeim sökum að hafa misnot-
að drenginn ásmt því að hafa haldið fjölskyldu
hans fanginni á búgarði sínum. Jackson mætti
fyrir dómara og kviðdóm um klukkan korter fyr-
ir níu í gærkvöldi að íslenskum tíma. Um það bil
hálftíma seinna var úrskurðurinn svo lesinn
upp.
Allar útvarps- og sjónvarpsstöðvar um
gjörvöll Bandaríkin stöðvuðu reglubundna dag-
skrá til þess að þjóðin fengi að heyra upplestur á
úrskurði kviðdómsins.
I Michael Jackson
Varsýknaðurí
gærkvöldi.
Aðstandendur Allrahanda
Sekir rútukarlar fá 30 milljónir í sekt
„Við munum taka frest til að
áfrýja dómnum," sagði verjandi
þeirra Sigurdórs Sigurðssonar og
Þóris Garðarssonar, en þeir voru
fundnir sekir í Héraðsdómi Reykja-
vfloir á föstudaginn um að hafa svik-
ist um að borga opinber gjöld af fyr-
irtækinu ísferðum á árunum
2001-2002. ísferðir urðu gjaldþrota í
árslok 2002.
Sigurdór var framkvæmdastjóri
og stjórnarmaður í ísferðum en
Þórir var stjórnarformaður fyrirtæk-
isins. Samtals sveikst félagið undan
greiðslu á rúmum þremur milljón-
um króna. Þeir félagar hafa allan
tímann neitað sakargiftum og skella
sökinni á fyrrverandi fjármálastjóra
ísferða sem átti að hafa umsjón með
skattaskilum og fjármálum fyrirtæk-
isins.
Þeir félagar hafa rekið rútufyrir-
tækið Allrahanda um árabil, en það
félag hefur meðal annars séð um
strætisvagnaferðir á höfuðborgar-
svæðinu og akstur fyrir fatlaða. Nú
starfa þeir undir nafninu Iceland
Excursions sem er ferðaskrifstofa.
Sigurdór og Þórir voru fundir
sekir og var hvor um sig dæmdur til
að greiða 14,5 milljónir í sekt til rík-
issjóðs innan fjögurra vikna ella
sæta fangelsi í sex mánuði. Að auki
voru þeir dæmdir í sex mánaða skil-
orðsbundið fangelsi. Eins og áður
hefur komið ffam hyggjast þeir
áfrýja dómnum.
Strætó í forgang
Á fundi Strætó bs. síðasdiðinn
miðvikudag var áréttað mikil-
vægi þess að forgangur strætis-
vagna f umferðinni yrði aukinn.
Ein af forsendum þess að nýtt
leiðakerfi næði tilætluðum ár-
angri og að markmið um aukna
hlutdeild almenningssamgangna
yrði náð er að strætisvagnar yrðu
fljótari í förum en almenn um-
ferð. Með því móti myndu fleiri
sjá sér hag í að nýta sér almenn-
ingssamgöngur sem ferðamáta.