Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 6
6 LAUGARDAGUR 18.JÚNÍ2005
Fréttir DV
Alcoa
vill konur
Alcoa hélt kynningar-
fund á kvennastörfum
tengdum álverinu á Reyð-
arfirði á mánudagskvöld.
Var fundurinn vel sóttur af
konum í Austurbyggð. Það
er yfirlýst stefna fyrirtækis-
ins að helmingur starfs-
manna álversins verði kon-
ur enda segja þeir að
störfm komi til með að
henta bæði körlum og kon-
um. Alcoamenn segja að ál-
vinnsla sé hátækniiðnaður
sem fari að mjög miklu leyti
fram f gegnum tölvur og því
ekki nema brot af vinnunni
erfiðisvinna sem karlar
sæki fremur í.
Takmörkuð
umferð á
hálendinu
Sigrfður Anna Þórðar-
dóttir umhverfisráöherra
hefur gefið út reglugerð
um takmarkanir á um-
ferð í náttúru fslands. í
henni er áréttuð sú meg-
inregla að ekki er leyfi-
legt að aka vélknúnum
ökutækjum utan vega í
náttúru fslands en sú
regla hefur þótt vefjast
mönnum. Þó er heimiit
að aka tækjum á jöklum
svo og snævi þakinni og
frosinni jörð ef ekki
skapast hætta á náttúru-
spjöllum.
Var rangt af
Dorrit Moussaiejf
aö fljúga með
Baugi?
Hafstelnn Þór Hauksson Lög-
fræöingu og formaöur SUS
„Þaö var nú ekkert rangt af
henni en það var vissulega
óheppilegt. Ég held að það
væri ágætisregla hjá þeim
hjónum að vera ekkert að
þiggja gjafir frá stórfyrirtækj-
um. Ég er annars ekki með
neinar samsæriskenningar
um þetta mál, fannst þetta
bara ekki heppilegt afhenni.
Svo nennir maður ekki að
vera reiður í svona góöu veðri
á fslandi."
Hann segir / Hún segir
„Mér er nákvæmlega sama á
hverju hún Dorrit ferðast. Mér
finnst þetta sjáifsbjargarvið-
leitni og sjálfmyndi ég
„húkka“hvaða flugvélsem
væri, efég sæi hana, hvar sem
er i heiminum."
Guðný Halldórsdóttir kvik-
myndageröarkona
Hans Markús Hafsteinsson. prestur í Garðasókn, kærði Lárus Atlason, eiginmann
djáknans í sókninni til lögreglu eftir að hann sendi honum móðgandi SMS-skila-
boð. Djáknahjónin Lárus og Nanna Zoega, sem vilja losna við séra Hans Markús
úr sókninni, voru í fríi með hinum prestinum, Friðriki Hjartar á Spáni þegar skila-
boðin voru send.
Maður djákna sagði prestinun
að hann væri lúsnr ng gnnga
Frétt DV 26. aprfl Sagt
frá SMS-sendingunum.
Hans Markús Haf-
steinsson KærðiSMS■
skeytin til lögreglu.
í gögnum úrskurðarnefndar þjóðkirkjunnar um prestadeiluna í
Garðasókn, eru birt SMS-skilaboð sem eiginmaður Nönnu
Zoega djákna sendi séra Hans Markúsi Hafsteinssyni sóknar-
presti frá Spáni í fyrrahaust. Hans Markús ákvað að kæra skeyta-
sendingamar til lögreglu.
„Ertu búinn að segja af þér? Við
og aðrir bíðum í ofvæni. A loser is
always a loser." Þessi SMS-skilaboð
voru send úr breskum GSM-sima
Lárusar Atíasonar til séra Hans
Markúsar Hafsteinssonar í Garða-
sókn 27. ágúst í fyrra. Lárus er eigin-
maður Nönnu Zoega djákna í
Garðasókn sem hefur staðið í stappi
við prestinn. Deilurnar hafa magn-
ast og voru teknar fyrir hjá úrskurð-
arnefnd þjóðkirkjunnar á dögunum.
Efni SMS-skilaboðanna kemur fram
í gögnum úrskurð-
arnefndar- Eru menn feimnir
innar. eða gungur?
Lárus er starfsmaður Atlanta og
sendi skilaboðin úr síma sem er
skráður hjá flugfélaginu Atíanta í
Englandi. Hans Markús ákvað
að hringja í símanúmerið sem
skeytið kom úr. Lárus svaraði
en þá skellti Hans Markús á.
Eftir það barst honum nýtt
skeyti: „Eru menn feimnir,
eða bara gungur?" Samkvæmt
„Ertu búinn að
segja afþér? Við og
aðrir bíðum í ofvæni.
A loser is always a
loser
upplýsingum DV var skeytið sent
þar sem Lárus og Nanna voru í sum-
arleyfi á Spáni ásamt hinum prestin-
um í sókninni, séra Friðriki J. Hjart-
ar og eiginkonu hans.
Kærði tii lögreglu
„Þetta voru ósvífin
skilaboð ogvar túlkað sem
hótanir," sagði séra Hans
Markús við DV í apríl.
Honum var nokkuð
brugðið við skilaboðin og
var ráðlagt að kæra þau tií
lögreglu sem hann og
gerði. „Ég er nú gamal-
reyndur í öðru starfi þar
sem ég þurfti oft að
halda höfði,
en þetta
hafði samt
mjög
mikil áhrif á
mig," sagði
hann en lög-
reglan vísaði
kærunni ffá.
Nanna
baðst af-
sökunar
„Ég get stað-
fest það að þetta
skeyti var sent og
það hefur enginn
verið þakklátur
fyrir það. Þetta
voru engar
hót-
anir og satt best að segja man ég ekki
hvað í því stóð,‘‘ sagði Friðrik J.
Hjartar við DV um SMS-sendingar
Lárusar. „Hann kærði þetta til lög-
reglu og hún vísaði því ffá. Nanna
hefur margoft beðist afsökunar fyrir
hans hönd, en skeytið var sent án
þess að aðrir vissu af því,“ sagði
Friðrik.
Sendi forstjóra Atlanta bréf
f úrskurðinum segir Nanna skila-
boðin hafa verið send án sinnar vit-
undar og hún hafi ítrekað beðist
afsökunar á þessum sendingum fyrir
hönd eiginmanns síns. Einnig kemur
fram að Hans Markús hafi ekki sætt
sig við að kæran hafi verið felld niður
og þá sent forstjóra flugfélagsins
Atíanta bréf þar sem honum
hafi verið gerð grein fyrir
umræddum SMS-send-
ingum. í bréfinu til
forstjórans sé fullyrt
að málið sé litið alvar-
Jegum augum af lög-
reglu enda hafi verið
um ógnandi skilaboð
að ræða. Tilgangur
þessarar sendingar
virðist hafa verið sá einn
að reyna að hafa áhrif á
ráðningarsamband eigin-
manns Nönnu Guðrúnar
við Atíanta, samkvæmt
upplýsingum DV.
kgb&dv.is
Lárus Johnsen
Atlason Sagöi viö
prestinn:A loser is
1 always a loser.
Umhverfisnefnd í Hafnarfiröi vill ekki að Clint Eastwood geri
bíómynd í Krýsuvík
Enga skriðdreka í Krýsuvík
Reykjanesfólkvangur er ffiðaður
gegn öllu jarðraski að því er segir í
reglum um fólkvanginn. Umhverfis-
nefnd Hafnarfjarðar vill elcki að fyrir-
hugaðar kvikmyndatökur á Krýsu-
víkursvæðinu verði leyfðar. Til
stendur að Ciint Eastwood leikstýri
bíómynd sem taka á í Krýsuvík í
sumar.
„Nefiidin telur áhættu fólgna í því
að leyfa kvikmyndatökur á svæðinu
þar sem stórfellt jarðrask er fyrirhug-
að,‘‘ segir Kristján Bersi Ólafsson
nefndarmaður í umhverfisnefnd
Hafnarfjarðar. Kristján tekur ffarn að
svæðið tilheyri Reykjanesfólkvangi.
„Fólkvangsstjórnin hlýtur að funda
um málið á ailra næstu dögum. Það
verður ekkert gert án samþykkis
þeirra," bætir Kristján við og kveður
menn vera tortryggna út í fögur lof-
orð kvikmyndagerðarmanna. Sú tor-
tryggni sé byggð á gamalli reynslu.
„Samstarf okkar við Hafnarfjarð-
arbæ er á mjög góðum nótum," segir
Helga Margrét Reykdal hjá True-
North, en fyrirtæki hennar sér um
hluta framleiðslunnar.
Ómar Smári Ármannsson,
aðstoðaryfirlögregluþjónn í Reykja-
vfk hefur eindregið tekið undir með
mótmælum við fýrirhugaðar aðgerð-
ir. „Það má benda á það að þarna er
um hvað mesta jarðvegseyðingu að
ræða á öllu landinu og mikið í húfi
að koma í veg fyrir skemmdir. Krýsu-
vík er söguffægur staður og menn
ættu ekki að láta valta yfir svæðið
með skriðdrekum ótilneyddir," segir
Ómar Smári.
Helga Margrét Reykdal hjá
TrueNorth Allt samstarf viö Hafn
arfjarðarbæ á góöum nótum.
Hannesi líst vel
á sendiherra
Hannes Hólmsteinn Gissur-
arsson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla íslands, hefur ekld
áhyggjur af sldpun nýrra sendiherra.
Nýlega var tiikynnt að Davíð Odds-
son, utanríkisráðherra, hafi skipað
Qölda nýrra sendiherra, m.a. þá
Markús Örn Antonsson, Guðmund
Árna Stefánsson og Hannes Heimis-
son. „Ég hef ekki frekari upplýsingar
um málið en komið hefur fram í
fféttum. En ef satt reynist líst mér
ljómandi vel á þessar ráðningar, ég
treysti Davíð til þess að ráða hæft
fólk. Sigríður Dúna Kristmundsdótt-
ir yrði glæsilegur fulltrúi íslands út á
við,“ segir Hannes Hólmsteinn sem
vann nýverið áfangasigur í deilu fjöl-
skyldu Nóbelskáldsins við hann.