Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 30
30 LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ2005 Helgarblað J3V Listahjón „OkkurPdlierþað sam- eiginlegt aðvið eigum bæði mjö q sterkarrætur að rekja Ináttúruna. Borgarlistamenn Reykjavíkurborgar 2005 eru tveir í þetta sinn. Þau Þuríður Fannberg, betur þekkt sem myndlistarkonan Rúrí, og eiginmaður hennar Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmaður hlutu heiður- inn við hátíðlega athöfn í gær. Myndlistarmaðurinn Rúrí og Páll Steingrímsson, kvikmyndagerðarmað- ur, hlutu í gær titilinn Borgarlistamað- ur Reykjavíkurborgar 2005. Þetta er í fyrsta skipti sem tveir einstaklingar hljóta heiðurinn sama árið. En þau eru jafnframt hjón og hafa verið samstíga að því leyti að bæði setja listina í fyrsta sæti í daglegu lífi srnu. Borgarlistamaðurinn er heiðursvið- urkenning sem feliur í skaut lista- manns í Reykjavík ár hvert. Verðlaunin hafa verið að þróast út í einskonar heiðursverðlaun fyrir glæstan starfs- feril og ævilanga baráttu gegn sann- leiks- og fegurðarleysi. Einu skilyrðin eru að hafa skarað fram úr og markað eigin spor í listalífinu. Það má með sanni segja að þessar fýsingar smellpassi við Pál og Rúrí. Gullgrafari og kúreki Ekki er fjarri lagi að segja að Páll sé ötulasti heimildamyndagerðarmaður íslands. Hann hefur afkastað meiru en nokkur annar í hans fagi. Bakgrunnur Páls liggur í myndlist- inni. Hann hefur málað og teiknað frá unga aldrei. Hann reyndi fyrir sér í Akademíunni í Kaupmannahöfn og í myndlistardeild í Manitoba-háskóla í Kanada. Þar starfaði hann einnig sem lestarþjónn, sem kúreki og gullgrafari. Hann stofnaði myndlistarskóla út í Vestmanneyjum og rak í 17 ár. Páll hef- ur einnig mikinn áhuga á ljósmyndum sem hann stundaði í rúm 10 ár. Páll byrjaði seint í kvikmyndum. Hans heimildamyndaferill hófst snemma á áttunda áratugnum þegar hann var rétt rúmlega fertugur. „Ég fór mjög bratt af stáð í heimildamynda- gerðinni. Fyrsta myndin [Eldeyjan /Days of destruction] sem ég geri fer á kvikmyndahátíð í Atlanta í Bandaríkj- unum og hlaut þar gullverðlaun. Þá var ég eklá búinn að vera í kvikmyndagerð nema hálft ár. En þetta voru sérstakar kringumstæður. Það var eldgosið í Vestmanneyjum sem var viðfangsefn- ið.“ Gull-Benz rústað með sleggju Rúrí hefur verið einn eftirtektar- verðasti myndlistarmaður landsins og markað sér mikla sérstöðu. Hún hefur fjallað umýmis hápólitísk málefni með myndlist sinni í gegnum ti'ðina. Hún varð fyrst sýnileg í listaheimin- um hér við upphaf áttunda áratugar- ins. Þá hafði hún málað Mercedes Benz bifreið gulllitaða sem hún kom síðan fýrir á miðju Lækjartorgi og rúst- aði hana með sleggju. Þennan gjöming kallaði hún Gullna bílinn og varð Rúrí samstundis að þekktu nafiii í listalífinu hérlendis. „Ég er ekki mikið fyrir að mála skrautlegar myndir. Það eru nógu margir í því þannig að ég þarf ekki að vera með samviskubit vegna þess. Þetta er bara mín leið. Þetta er það sem ég hef helst fram að færa til mannkyns- ins.“ Fossar í útrýmingarhættu Rúrí hefur einnig mótmælt stríðs- rekstri og náttúruspjöllum á íslandi. Má segja að hún hafi slegið í gegn fyrir tveimur árum þar sem hún sýndi verk fyrir íslands hönd á Feneyjatvíæringn- um. Verkið, sem fjallaði um fossa á ís- landi sem stafar ógn af stórfram- kvæmdum, vakti mikla og verskuldaða alþjóðlega athygli. „Ég tel að eitt af hlutverkum listar- innar sé að vekja athygli á því sem er að gerast í umhverfi mannsins. Hvort sem það er í mannlegu samfélagi eða snertir tengsl hans við jörðina. Ég h't svo á að við berum ábyrgð gagnvart sjálfum okkur, fólkinu í kringum okkur og svo jörðinni. Ég veit að það þykir rosalega úr tísku og hallærislegt að segja þetta." segir Rúrí og hlær. Rúrí segir langt því frá að pólitík sé að deyja út í myndlistinni í dag. „En hér á Islandi hefur gagnrýnin myndlist, einhverra hluta vegna, aldrei náð að festa rætur. Erlendis er gagnrýnin Iist hins vegar sjálfsagður hluti nútímalist- ar.“ Mynd byggð á eigin hvötum er mikiláhætta Á íslandi getur verið afar erfitt fyrir kvikmyndagerðarmenn að vinna að sínum eigin verkefnum þar sem fjár- magn til slfks stendur ekki alltaf til boða. „Þegar höfundur er með verkefni sem byggt er algjörlega á eigin hvötum er því tekin talsverð áhætta." Það sem hefur ráðið úrslitum í þessum efnum fyrir Pál er að honum hefúr tekist að koma myndum sínum á framfæri á erlendum ráðstefhum og kvikmyndahátí'ðum, og hefúr hann þannig fengið erlenda aðila til sam- starfs og selt sýningarrétt til sjónvarps- stöðva víða um heim. Meistarahugar berjast fyrir há- lendinu Páll hefúr mikið unnið við gerð náttúrulífsmynda. „Þetta fylgir mér alltaf vegna þess að náttúran, náttúru- vísindi, náttúrugaldur og náttúrumynd eru fyrir mér einn og sanú hluturinn." Páll Steingríms gerði myndina World of Solitude með Magnúsi Magn- ússyni, þáttastjómanda hjá BBC. „Þetta var eins konar köllun hjá mér. Að vekja menn til umhugsunar um há- lendið og það sem er að gerast við Kárahnjúka." Öræfakyrrð hefur þegar hlotið verðlaun á tveimur erlendum kvik- myndaháti'ðum, meðal annars fyrstu verðlaun (Grand Prix). Nýjasta verkefni Páls er um spóann og ferðir hans frá norðurslóðum suður undir miðbaug. Ferðaðist Páll m.a. til Gambíu í Vestur- Afríku til þess að festa á filmu merki- lega þætti í lífi fuglsins á vetrarstöðv- um, sem em mönnum lítt kunnar. Sterk tengsl við náttúruna Rúrí er fædd og uppalin í Reykjavík en dvaldi á sumrum við ísafjarðardjúp. Hún ver síðan sumrunum á ísafirði, þaðan sem hún er ættuð. Páll er úr Eyj- um. Það má því segja að þau hjón séu bæði náttúmböm „Okkur Páli er það sameiginlegt að við eigum bæði mjög sterkar rætur að rekja í náttúruna. Við þurfum að vera meðvituð um það hvað við erum að gera við náttúruna og hvaða afleiðingar gerðir okkar muni hafa.“ Aðspurð um hvað henni finndist um nýleg mótmæli á álráðstefnu þar sem jógúrti var slett yfir fundargesti sagði Rúrí: „Ef ekki er hlustað á skoð- anir og rök stórs hluta þjóðarinnar og ekkert tillit tekið til þeirra við ákvarð- anatöku um málefiii sem varða alla landsmenn, þarf ekki að koma nokkrum á óvart að fólk grípi til ein- hverra slíkra aðgerða til að vekja at- hygli á málstað sínum. Ofríki býður einfaldlega heim slfkum viðbrögðum." Kvikmyndasögunni breytt Páll hefur ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur í efnistökum sín- um. Það má jafnvel segja að hann hafi haft mikil áhrif á kvikmyndasöguna með verkum sínum." Um 1995 þá er Palli að gera myndir sem heita „Eider and Man" og „Man and Puffin". Þetta fór fyrir bijóstið á alþjóðlegu kvik- myndaeh'tunni því að náttúrulífs- myndir áttu að vera hreinar náttúru- lífsmyndir. Eins og hjá Attenborough. Þær máttu ekki lýsa tengslum milli dýra og manna. Páll er einmit að fjalla um samspil manns og náttúru. Það átti ekki að fjalla um dýr á þennan hátt. Nú eru þessi efrústök orðin viðurkennd og tilkominn nýr flokkur náttúrulífs- mynda sem kallast „Man and Nat- ure‘‘,“ segir Rúrí. „Ég held að eitt af hlutverkum listarinnar sé að vekja athygli á því sem er að gerast í umhverfi mannsins. Hvort sem það er í mannlegu sam- félagi eða tengsl hans við jörðina."
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.