Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 54
54 LAUGARDAGUR 18. JÚNÍ2005 Menning DV jnfinmng Umsjón: Jakob Bjarnar Grétarsson - jakob@dv.is Vonbrigði fyrir íslenska bókmenntaáhugamenn. Einhver skærasta stjarnan í hópi rithöfunda afboðar komu sína á Bókmenntahátíðina í haust. Margaret Atwood, einhver frægasti feminíski rithöfundur veraldar, er meðal þeirra sem koma og enn kann að bætast í hópinn. Paul Auster ahoðar komu síoa Skammtímamarkmið Ljóð Ljóðið sem birtist í dag er eftir Hildi Lilliendahl Viggósdóttur en hún er fædd árið 1981. Hildur er efnilegt skáld, en . hún hefur meðal ann- ars látið að sér kveða innan Nýhil- skáldahóps- ins auk þess sem hún hefur birt ljóð á ljod.is. Ljóðið sem hér birt- ist heitír Skammtímamarkmið. Skammtimamarkmið Á morgun ætla ég að storma inn I tlskubúð I miðbænum rifa jólaseriumar úr glugganum vefja þeim um hálslnn ámér klifra upp á stól draga upp svissneskan vasahnlf og rista rúnlr I hold mitt. Svoætla ég að grlpa þrýstna afgreiðslukonu kllna blóði I fötin hennar og dansa við hana foxtrott. Svo ætla ég að bera ámér brjóstin fyrir opinmynntum lýðnum reka útúr mér ktofna tunguna á öryggisverðlna öskra Lebensrauml og skunda heim til mln. Þar ætla ég að finna fyrir óendanlegri smæð minni við risastóra borðstofuborðið mitt og hugsa meðmérað svona hljóti atómum að llða og skæla að lokum ofurvarlega út I kakómaltið mitt. „Já, Paul Auster var búinn að staðfesta komu slna, en svo kom (Ijós að þessa sömu daga er hann að leikstýra kvikmynd sem gerð verður eftir einni bóka hans," segir Susanne Thorpe, framkvæmdastjóri Bókmenntahátíðar f Reykjavík, sem haldin verðurdagana ll.til 17.sept- ember næstkomandi. Að sögn Susanne, sem átti f mikl- um samskiptum við Paul Auster, er þessi frægi rithöfundur Ijómandi viðkynningar.Jájá, og hann sýndi því mikinn áhuga að koma. Hann vildi eiga boðið inni." Susanne segirað enn geti tveir til þrír rithöfundar bæst í hópinn. Og er þá um að Halldór Guðmundsson Segir ekkert hafa I vantað upp á að Austerætlaði að mæta, en | enn sé ekki búið að negla niðurþátttakendur. ræða stórstjörnur á sfnu sviði. En ekki má um spyrja hverjir það eru að svo stöddu. Halldór Guðmundsson, rithöfundur og bókmenntafræðingur.á sæti í undirbún- ingsnefnd og hann tekur f sama streng, en gefur ekki mikið fyrir spurningu þess efnis, að á lista yfir þátttakendur vanti stóru nöfnin. „Þarna er mikið af góðum höfund- um. Og ekki er búið að negla nið- ur lista yfir þá sem koma. Eigin- kona Pauls Austers kemur og hver veit hver slæst f för með henni.Og Margaret Atwood er einhver frægasti feminfski höfundurveraldarsvo dæmi sé nefnt." Sérstök vefsíða hefur verið gerð vegna Bókmennta- hátíðarinnar, bokmenntahatid.is, og þar erfjallað um gestina.Vissulega er það rétt hjá Halldóri, höfundarnir sem staðfest hafa komu sfna eru hinirforvitnilegustu. Egil örn Jóhannsson hjá JPV útgáfu hafði búið sig undir að taka á móti Alice Se- bold, þeirri sem ritaði„Svo fögur bein", ( tengslum við hátíðina. „Já, það stóð til. En svo skrifaði hún okkur og sagði að hún hefði nýlega verið stödd á bókmenntahá- tíð þar sem hún var ekki spurð út f ann- að en nauðganir og kynferðisafbrot. Alice hét þvf þá mæta ekki á bók- menntahátfð í bráð." Paul Auster Kemur ekki að þessu sinni, en ætlar að eiga boðið inni. Margaret Atwood Eitt stærsta nafnið í hópnum sem sækir Island heim ihaust vegna Bókmenntahátiðar. Lokið er tökum fyrir aðra syrpu í þáttaröðinni Taka tvö, en þar er farið yfir feril ís- lenskra kvikmyndagerðarmanna. Athygli vekur að Baltasar Kormákur og Dagur Kári eru ekki í þeim tuttugu manna hópi sem fjallað hefur verið um. Rúnar Gunnarsson hjá RÚV segir þá enda fulltrúa íslands í norrænni þáttaröð. Ásgrímur Sverrisson seg- ir hugmyndina að baki Töku tvö þá, að ná utan um íslenska kvikmyndasögu. „Hugsunin varsú að byrja á þeim sem hafa verið lengst að í faginu. Birkiaska Umboðs- og söluaðili Birkiaska ehf. sími: 551 9239 BETUSAN BORGARLEIKHUSIÐ Leikfélag Reykjavíkur • Listabraut 3,103 Reykjavík NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN NÝJA SVIÐ/LITLA SVIÐ/ÞRIÐJA HÆÐIN KALLI A ÞAKINU e. Astrid Lindgren I samstarfi við k þakinu I dag kl 14, Su 19/6 kl 14, Su 26/6 kl 14, Lau 9/7 kl 14, Su 10/7 kl 14, Su 17/7 kl 14, Su 24/7 kl 14, Lau 13/8 kl 14 Sun 14/8 kl 14 ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR Einleikur Eddu Björgvinsdóttur. i kvöld kl 20, Su 19/6 kl 20 Siðustu sýningar SIRKUS SIRKOR - ÓGLEYMANLEG UPPLIFUN Ásgrímur Sverrisson kvikmynda- gerðarmaður hefur nú lokið við að taka upp aðra þáttaröð sína um ís- lenska kvikmyndagerðarmenn undir yfirskriftinni „Taka tvö“. Þessum þáttum verður sjónvarpað eftir næstu áramót, en upptökustjóm annaðist Jón Egiil Bergþórsson. Þeim sem gerð verður skil að þessu sinni em tíu talsins líkt og í fyrri þáttaröð- inni. Þeir em: Ari Kristinsson, Ásdís Thoroddsen, Egill Eðvarðsson, Erlendur Sveinsson, Júlíus Kemp, Láms Ýmir Óskarsson, Páil Stein- grímsson, Róbert Douglas, Sigurður Sverrir Pálsson og Þorfinnur Guðna- son. Ná utan um íslenska kvikmyndasögu Svo áfram séu þulin upp nöfn, þá hefur þegar verið fjallað um og sýndir þættir um Ágúst Guðmunds- son, Friðrik Þór Friðriksson, Gísla Snæ Erlingsson, Guðnýju Halldórs- dóttur, Hilmar Oddsson, Hrafn Gunnlaugsson, Kristínu Jóhannes- dóttur, Óskar Jónasson, Þorstein Jónsson og Þráin Bertels- brennidepli. Hvað réði því að fjallað var um þennan tiltekna hóp í fyrri þáttaröðinni? „Hugsunin var sú, að byrja á þeim sem hafa verið lengst að í faginu. Af ýmsum ástæðum var ekki hægt að fylgja þeirri reglu aifarið, til dæmis að útvega efni úr myndum listamann- anna og svo framvegis. Strax í upp- hafi var talað um að gerð yrði önnur sería, en þættimir hafa gengið vel og fengið gott áhorf. Fuil ástæða er til að reyna að ná utan um íslenska kvik- myndasögu. Sú er hugmyndin að baki öllu þessu,“ segir Ásgrímur. Hann hefur meira að segja á bak við eyrað að þættimir getí orðið undir- staða sérlegrar bókar um íslenska kvikmyndagerð, en slík áform em á hugmyndastigi enn sem komið er. hafa látíð til sín taka á þessu sviði. Rúnar Gunnarsson, dagskrárstjóri innlendrar dagskrárgerðar RÚV, seg- ir ástæðuna þá að þeir em fulltrúar íslands í norrænni þáttaröð, hálftíma löngum þáttum þar sem norrænum kvikmyndagerðarmönnum em gerð skil. Em þá valdir tveir frá hverju landi og verða þessir þættir sýndir í Ríkissjónvarpinu í haust. „Vel má vel vera að gerð verði þriðja serían af Töku tvö. Þetta em frábærir þættir og hafa tekist mjög vel. Og ég vona að þeir verði þá með," segir Rúnar. Verði þriðja sería Töku tvö að veruleika, má gera ráð fyrir því, að Ásgrímur og þeir sem að þáttunum standa, beini sjónum að yngri kyn- slóðinni, til dæmis Ragnari Braga- syni.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.