Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Blaðsíða 29
DV Helgarblað LAUGARDAGUR 18.JÚN/2005 29 Nína Björk Gunnarsdóttir, ljósmyndari og fyrirsæta, er flutt heim eftir dvöl í Danmörku. Hún er þessa dagana einstaklega sátt við lífið og tilveruna enda reynslunni ríkari eftir dvölina ytra. Helgarblað DV hitti Nínu á kaffihúsi í bænum og rabbaði við hana um Danmerkurferðina, ljósmyndun og framtíðarplönin. Nína Björk Gunnarsdóttir Nýfíutt heim og lersáttviðlifið. L Gulli Egilsson Myndtekin af Gulla fyrir fyrstu Ijósmyndasýningu Ninu. Tryggvi Ólafsson Tekin i Kaupmanna höfn I október. Nína Björk Gunnarsdóttir var eitt sinn á forsíðum allra blaða og var aðalfyrisætan í bænum. Fyrir rúmum tveimur árum færði hún sig aftur fyrir myndavélina. Hún segist hafa glöggt auga og vera góður mannþekkjari. Hún hefur loksins fundið sig í lífinu. Allt hefur sínar Ijótu hliðar „Alveg frá því ég man eftir mér hef ég verið að flétta blöðum og pæla í ljósmyndun, en þegar ég fór á nám- skeið til Sissu kviknaði áhuginn fyrir ljósmyndun af alvöru. í módelbrans- anum hafði ég sjáif alltaf mikinn áhuga á því sem ljósmyndarinn var að gera. Eg var ailtaf að fylgjast með," segir Nína Björk. Hún byrjaði ung að sitja fyrir. Sext- án ára var hún valin Elite-ljósmynda- fyrirsætan og henti hún sér út í fyrir- sætubransann. Hún sér þó ekki eftir því og hefúr ekkert slæmt um brans- ann að segja. „Ailt hefur sínar ljótu hhðar, en það er hollt fyrir alla að kynnast þeirri hlið. Það vill enginn vera bómullarbam. Mín upplifun var mjög jákvæð. Ég fékk frábær tækifæri miðað við hvað ég var ung, til að ferð- ast, kynnast nýrri menningu og standa á eigin fótum," segir Nína Björk. Frábært að búa ein „Ég var ekki hrædd við að fara út. Ég þurfti virkilega að komast í burtu. Fara í nám, kynnast nýju fólki og upp- lifa nýtt umhverfi. Ég komst að svo mörgu um sjálfa mig sem ég hefði eflaust ekki uppgötvað hefði ég ekki farið út. Það erfiðasta var að taka ákvörðunina um að fara út," segir Nína en hún dreif sig til Kaupmann- hafnar eftir að hún hélt sína fyrstu ljósmyndasýningu í IÐU-húsinu í júh' í fyrra. Hún segist ekki þola fólk sem stendur ekki við orð sín. „Það er svo mikið af fólki sem talar og talar. Það mætti alveg tala minna. Framkvæma, láta hlutina gerast og hætta þessu kjaftæði," segir Nína. Hún hélt ein til Kaupmannahafnar ásamt syni sínum á fiinmta ári. Hún var óhrædd við það, enda sjálfstæð og alltaf farið eigin leiðir lífinu. Hún flutti ung úr foreldrahúsum og hefur ætíð þurft að stóla á sjálfa sig. Hún viður- kennir þó að hafa umgengist fleiri íslendinga en Dani úti. Jóhanna Vil- hjálmsdóttir er ein þeirra vinkvenna sem Nína náði vel til. Hugsar eins og Dani „Þetta var alveg frábært. Ég var ein Sirkus Mynd úr afmselisbók Verzt unarskólans. og ftjáls og mér fannst það mergjað. Ég held að upp- eldið hafi mikið að segja. Eftir því sem ég eldist og lít til baka finnst mér frábært að hafa þurft að redda mér þegar ég var yngri. Það eru ekki allir sem geta það og eru alveg fatlaðir í lffinu. En það er voða ljúft að búa í Dan- mörku. Að vera námsmaður þar er algjör lúxus. Ekkert stress. Það var lærdómsrlkt . að sjá hvemig hlutimir ganga fyrir sig þar og maður lærir að taka einn dag í einu. íslend- ingar em alltaf að plana 30 ár fram í tímann. Með jeppann, stóra húsið og fúllt af bömum. Ég var manna mest þannig líka. En það breyttíst eitthvað hjá mér úti og ég hætti þeim hugsunarhætti. Utí em allir á hjólunum sínum, meira að segja fínasta þotuliðið. Ég veit ekki hvað það er með þetta lífs- gæðakapphlaup héma heima. Ungt fólk er að skuldbinda sig svona mikið og fjárfesta. Það flækir svo margt. Auðvitað vilja allir öryggi, en það finnst ekki í húsi. Þetta er falskt öryggi. Hamingjan er fólgin í svo mörgu öðru," segir Nína. Danskir menn „lúkka" vel „Það höfðu allir sagt mér að Danir væm svo „ligeglad". Það fannst mér ekki. Það snýst allt um vinnu og regl- ur hjá þeim, en þeir em voða góðir að hjálpa manni. Þeir em samt ekkert voðalega viljugir að tala ensku og ætl- ast til þess að maður tali dönsku. En tungumálið er miklu erfiðara en ég hélt. Framburðurinn drepur mig. Þú þarft að vera með kartöflu í hálsin- um,“ segir Nína Björk hlæjandi. Hvað með dönsku mennina? „Danskir strákar lúkka vel, en það þarf aðeins meira en það. Það finnst mér. Ég segi bara íslenskt, já takkl," segir Nína og skellir upp úr. Leitar að sérkennum Nína hefúr tileinkað sér að port- rettmyndum og tískuljósmyndun. Hún hefur lengi vel stíliserað fyrir hin ýmsu tímarit og var hún dugleg í náminu að sanka að sér verkefnum bæði í Kaupmannahöfn og héma heima. Eftir námskeiðið hjá Sissu var Nína staðráðin í að halda út fyrir landsteinana og mennta sig frekar. Hún komst inn í h'tinn ljösmyndunar- skóla við Stefanía Mynd tekinfyrir tisku þátt I Nýju Llfi. Buin að finna sig Tekurmyndir aflífiogsál. •—r ■ u i íslandsbryggju sem heitir S-foto. Aðeins 11 nemendur vom í námi við skólann, mestmegnis Danir. „Skólinn hentaði mér mjög vel. Ég þarf alltaf mikið „space" og frelsi og ég gat farið mínar eign leiðir. Ef ég þurfti á hjálp að halda gat ég leitað til kennarans," segir hún. „Mér finnst gaman að taka mynd- ir af alls konar fólki, á öllum aldri. Við höfum öll sérkenni og reyni ég að ná þeim fram á ljósmynd. Áður en ég mynda fólk fæ ég mér kaffi með því, spjalla við það og þá kynnist maður manneskjunni og sér svohtið hvað maður er að fara að gera," bætir hún við. víkur og er hamingjusöm þar. Hún segir útiveruna gera sér gott. Hún er komin á fullt í ljósmyndunina og ætlar sér að eiga gott sumar á íslandi. En hvað vill Nína í fram- tíðinni? „Ég sé mig með mína fallegu íjölskyldu. Mig langar í eitt til tvö böm í viðbót, en það er ekki inni í planinu á næstunni. Það liggur ekkert á. Ég á stærsta gullmola sem völ er á og það er alveg nóg í bih. Svo langar mig að vera ham- ingjusamlega gift manni sem er metnaðarfullur og skemmtilegur. Við verðum að geta hlegið saman og haft gaman saman. Ég ætla að vera dugleg að vinna og gætí vel hugsað mér að opna mitt eigið stúdíó einhvem daginn. En það gerist ekki strax. Ég lifi bara fyrir einn dag í einu," segir stúlkan sem ólst upp fyrir framan myndavél- amar en færði sig ; aftur fyrir, ham- ingjusöm og sátt við lífið. fi J. =»/.• ■ ■ - Framtíðar fjölskyldukona Nína hafði fengið inngöngu í virt- an kvikmyndaskóla í Kaupmanna- höfii þegar hún ákvað að snúa heim. „Þetta var komið gott. Þetta var fimm ára nám og mér fannst það alltof mik- il fjárfesting. Ég var lengur úti en ég ætlaði mér að vera og er ég ótrúlega sátt við þessa ákvörðun. Þegar ég kom til baka var allt alveg eins héma heima, nema þá að ég hef breyst," segir hún hugsandi. Kvikmynda- bransinn kitlar hana samt ennþá og gætí hún vel hugsað sér að vinna í þeim bransa eða við gerð tónhstar- myndbanda. Framtí'ðin blasir við Nínu. Hún er flokksstjóri sitt fimmta ár hjá Vrnnu- skóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.