Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Side 8
8 LAUGARDAGUR I8. JÚNÍ2005
Fréttir DV
Dorrit mátti
fljúg;
„Spæld
„Spældir lúserar úr fjöl-
miðlaslagnum eru að búa
sér til úr engu árásarefni á
mæta konu til að sletta leðju
á manninn sem hún er gift,“
segir Össur Skarphéðinsson
á heimasíðu sinni um þá
gagnrýni sem Dorrit forseta-
frú hefur fengið fyrir að
þiggja far í flugvél Jóns Ás-
geirs. össuri íinnst það
meira en sjálfsagt að for-
setafrúin hafi hraðað för
sinni heim með þessum
hætti þar sem ríkisstjómin
sjálf hefúr margoft sagt að
átökin í kringum fjölmiðla-
lögin sé löngu búin.
Jafningja-
fræðslan í
kröggum
„Okkur vantar nærri því
fimm milljónir til þess að
geta haldið þessu gangandi
og þurfiun að leita á náðir
fyrirtækja," segir Unnur
Gísladóttir ffamkvæmda-
stjóri Jafiiingjafræðslunnar.
Jafningjafræðslan er í krögg-
um vegna skorts á fjárveit-
ingu frá Reykjavíkurborg í
ár. Það þurfti því að fækka
starfsmönnum frá fimmtán
niður í tvo. Jafningjafræðsl-
an er ekki af baki dottin og
en nú er unnið við að byggja
upp vetrarstarf sem ætti að
leiða að öflugra sumarstarfi
að ári.
Útskrift
á Akureyri
Eins og venja er var út-
skrift frá Menntaskólanum
á Akureyri í gær, á þjóðhá-
tíðardaginn 17. júní. Þetta
var í 125. sinn sem skólan-
um var slit-
ið og í þetta
skiptið
brautskráð-
ust alls 134
nýstúdent-
ar. Skólan-
um var slitið í íþróttahöll-
inni á Akureyri kluJckan tíu
um morguninn og klukkan
tvö var afhjúpað útilista-
verk eftir Steinunni Þórar-
insdóttur á Skólatorginu
við aðalinngang skólans á
Hólum.
samgöngur í höfuðborg-
inni,“ segir Jakob Hrafns
Hvað liggur á?
maður ungra framsókna-
manna. „Þá iiggur sérstak-
lega á því að gera mislæg
gatnamót við Kringlu-
mýrarbraut og á því að
leggja Sundabraut."
7. febrúar síðastliðinn kveikti Jóhannes Jónsson i sinu eigin húsi við Kársnes-
braut i Kópavogi. Hann hefur verið ákærður fyrir stórfelld eignarspjöll og verður
málið þingfest 28. júní næstkomandi. Jóhannes segir farir sinar ekki sléttar.
Handrukkanar neyddu mig til
þess að kveikja í mínu eigin húsi
Jóhannes Jdnsson, 63 ára gamall Kópavogsbúi, segist hafa lent í
klóm handrukkara sem settu honum afarkosti, annaðhvort
myndi hann kveikja í sínu eigin húsi ella yrði kona hans drepin.
Hann fékk aftur heimsókn frá vafasömum mönnum fyrir stuttu,
en þeir gengu hraustlega í skrokk á Jóhannesi. Hann segir þá
vera að innheimta skuldir dætra hans.
Þegar blaðamann DV bar að
garði var Jóhannes úti að slá garðinn
sinn. Á lóð hans standa tvö hús,
annað er gamall bílskúr sem hefur
verið innréttaður og hitt er húsið
sem Jóhannes kveikti í síðastliðinn
vetur. Á andliti hans, hálsi og hönd-
um eru miklir áverkar.
Jóhannes segir handrukkara hafa
heimsótt sig oftar en einu sinni.
Snemma í vetur hafi tveir menn
bankað upp á rétt fyrir miðnætti á
sunnudagskvöldi. Hann segir tvo
menn hafa staðið fýrir utan og sagt
hann skulda sér 80 þúsund krónur.
Þeir hafi ráðist á hann en síðan
haldið á brott.
Grimmúðlegar hótanir
Jóhannes hefur sjálfur komist í
kast við lögin. Hann játaði hjá lög-
reglu að hafa kveikt í eigin húsi og
bíður ákæru og réttarhalda fyrir hér-
aðsdómi vegna þess. Nú segir
Jóhannes kominn tíma á að liin
raunverulega saga fái að heyrast.
Hann hafi verið neyddur af hand-
rukkurunum til að kveikja í húsinu
sínu.
Áverkar Úlnliðir
Jóhannesar eru illa
farnir eftir að hann \
var keflaöur.
Brunarústir Hús Jóhannesar varð eldi að
bráð slðastllðinn febrúar. Það er gerónýtt að
innan.
„Þeir sögðust vera að rukka mig
fyrir skuld dóttur minnar, sem býr
erlendis," segir Jóhannes. „Þessir
menn voru mjög harðsvíraðir. Þegar
ég sagðist ekid geta borgað sögðu
þeir að ég skyldi kveikja í mínu eigin
húsi, annars myndu þeir nauðga
konunni minni og drepa hana."
Að sögn Jóhannesar voru þeir lik-
lega að reyna að fá tryggingafé út úr
Jóhannesi, en það hefði dugað
skammt þar sem húsið er alfarið
skráð á eiginkonu hans.
Hrottaleg líkamsárás
Þetta eru ekki einu sldptin sem
handrukkarar eða ofbeldismenn
hafa ráðist á Jóhannes. Fyrr í þess-
um mánuði segist hann hafa fengið
þriðju heimsóknina. Vígalegir menn
hafi gengið í skrokk á honum. „Ég
var keflaður, með hendur fyrir aftan
bak," segir Jóhannes og sýnir blaða-
manni áverkana á úlnliðum. „Ég
hélt að þeir ætluðu að drepa mig.
Þeir tóku upp sög og ætluðu að saga
stórt stykki úr vinstra fæti mínum.
Einnig drápu þeir í sígarettum í and-
„tg hélt aö þeir ætluðu aö drepa mig, Þeir
tóku upp sög og ætluöu aö saga stórt stykki úr
vinstra fæti mínum. Einnig drápu þeir í sígar-
ettum íandliti mínu og á baki."
liti mínu og á baki."
Hann segir lögreglu ekkert hafa
viðhafst í málinu, þrátt fyrir að ná-
granni hafi tilkynnt um árásina.
Vilja ekki tjá sig
Hvorki almennir fulltrúar lög-
reglunnar í Kópavogi, né Páll Sig-
urðarson rannsóknarlögregla þar í
bæ vildu tjá sig um málefni Jóhann-
esar. Jóhannes segir samskipti sín
við laganna verði ekki hafa verið
góð. Hann segist hafa verið í fíkni-
efnum á sínum yngri árum en sé nú
búinn að snúa blaðinu við. Þvl
myndi það koma sér afar illa fýrir
hann ef hann yrði settur á bakvið
lás og slá. Málið gegn honum verð-
ur þingfest 28. júní og er líklegt að
hann játi verknaðinn en hvort að-
stæður hans verði metnar honum
til hagsbóta á eftir að koma í ljós.
Læknirinn Dagur B. Eggertsson kom
manni til bjargar á 17. júní
Dagur brást hetjulega við
„Ég veit ekki betur en að þessum
aðilum heilsist ágætlega," segir
læknirinn og borgarfulltrúinn Dagur
B. Eggertsson en hann brást hetju-
lega við þegar sólin bar nokkra há-
tíðargesti á Austurvelli ofurliði i gær.
Yfir tuttugu stiga hiti var þegar Hall-
dór Ásgrímsson flutti ræðu sína við
styttu Jóns Sigurðssonar í gærmorg-
un. í miðri ræðunni hnigu þrír niður
og telur Dagur að hitinn hafi gert
þetta að verkum.
„Það er ekki óalgengt að svona
gerist í svo miidum hita," segir Dag-
ur sem að sögn vitna var fljótur að
átta sig á því hvað hefði gerst. Dagur
sat á öðrum bekk á Austurvelli
ásamt borgarfulltrúum og ráðherr-
um þegar hann kom auga á hvað
hafði gerst. Flestir áttuðu sig ekki á
hvað um væri að vera og forsætis-
ráðherrann, Halldór Ásgrímsson,
hélt flutningi ræðu sinnar áfram.
Maðurinn sem Dagur lilúði að var
fluttur á brott með sjúkrabíl en hon-
um heilsast nú vel samkvæmt heim-
ildum DV. „Einhverjir spauguðu
með það að ræða Haildórs hefði ver-
ið að gera út af við hann. Ef svo er
náðum við alla vega að bjarga hon-
um,“ segir Dagur í léttum dúr.
Misheppnuð innbrot ollu usla á Ólafsfirði
Stálu kaffibollum og
fánum
íbúar Ólafsfjarðar urðu óvænt
fórnarlömb afbrotaaðkomupars í
vikunni sem leið og að sögn Sigur-
björns Þorgeirssonar, varðstjóra lög-
reglunnar á Ólafsfirði höfðu laganna
verðir í nógu að snúast vegna þeirra.
Afbrot parsins hófust þegar tilkynnt
var um innbrot í húsnæði skotfélags
Ólafsfjarðar á miðvikudag. Þar létu
þau hendur sópa um alla lausa hluti
húsnæðisins. Stálu meðal annars
tveimur fánum, kaffibollum og kaffi-
könnu.
Síbrotaparið var ekki heppnari
en svo að bifreið þeirra sem hafði
þýfið að geyma bilaði stutt frá staðn-
um og fóru þau þá á vapp í bænum.
Lögreglan á staðnum hafði hendur í
hári þeirra í annarri bifreið, þar sem
þau höfðu gerst puttaferðalangar.
Tekin var skýrsla af parinu og var
þeim sleppt um nóttina.
Morguninn eftir var svo tilkynnt
um innbrot í tvær bifreiðar þar sem
stolið var radarvörum og sjónauk-
um. Þýfið úr þeim innbrotum fannst
svo í vörslu parsins, en þau könnuð-
ust ekki við að það væri iila fengið. í
gær fékk svo lögreglan tvær tilkynn-
ingar um innbrot í báta og var stolið
þaðan lyflum.
Grunsemdir beinast að fólkinu.