Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Page 12
12 LAUGARDACUR18.JÚNÍ2005
Fréttir DV
Dalai Lama
elskar kökur
f nýrri bók um txúarleið-
togann Dalai Lama kemur
ftarn að hann elski
súkkulaðibitakök-
ur. Vinur hans og
ferðafélagi Victor
Chan skrifar bók-
ina, og segir hann
að Dalai Lama
borði kökur á laun meðan
aðrir búddistar fasta. Hann
segir líka að hinn lifandi guð
geymi loftbyssu við hliðina
á rúminu sínu til þess að
hræða í burtu hauka sem
níðast á smáfuglunum sem
Dalai Lama hefur miklar
mætur á. í bókinni kemur
líka fram að Dalai Lama
horfi mikið á BBC á meðan
hann hugleiðir.
Bretadrottn-
ing kaupir
Ipod
„Drottningin hefur
alltaf verið mikill tón-
listarunnandi og fannst
henni Ipod vera merki-
leg og stílhrein græja.
Henni finnst best að
nota hann þegar hún
ferðast," segir innanbúðar-
maður í Buckingham-höll
um Ipod kaup drottningar-
innar. Hún bað skósvein
sinn í Buckingham að kaupa
einn slíkan fyrir sig eftir að
Andrew prins sýndi henni
sinn. Hún keypti sér silfurlit-
aðan, sex gígabæta Ipod
Mini, en hann getur geymt
um 1500 lög.
dettur af iíús-
þaki
Þjóð-
verjinn
Thomas
Manninger
dattafhús-
þaki á meðan hann gekk í
svefni. Hann sagðist hafa
misst jafnvægið í þann
mund sem hann vaknaði.
Svo virðist sem Thomas
hafi klifrað út um gluggann
sinn, þaðan upp rennuna
og svo hefði hann gengið
um þakið þar til hann datt
niður eina 10 metra. „Þetta
hefur verið einhver undar-
legur draumur," sagði
Thomas, sem slapp við al-
varleg meiðsli vegna þess
að hann lenti á rakri og
mjúkri jörð.
„Ég er aö fara á Reykjalund í
endurhæfingu og verö þar
næsta mánuö/'segir Flosi
Ólafsson, hestabóndi á Bergi,
rithöfundur og skemmtikraft-
ur.„Höfuöstöövar ástarinnar
gáfu sig eftirað ég hafði veriö
tiltölulega ótruflaöur afhjart-
anu _______-
Landsíminn
liðin tlu
ár. Á Reykjalundi verður mér
ekki hlíft. Sagt aö fara I fjall-
göngu, þrekhjólatúra og sund.
Annars mætti koma svolítil
rigning. Úthaginn er grár mið-
að viö hvaö tíðarfariö hefur
veriö gott. Það er ótrúlegt
hvernig blessað landið tekur
viö sér þegar það fær nokkra
dropa til aö svala þorstanum."
Barnaníðingur hefur haldið íbúum
Smáíbúðahverfisins í Reykjavík í
heljargreipum undanfarin ár. Níðingur-
inn hefur verið kærður i fjórgang fyrir
að beita ungar stúlkur kynferðislegu
ofbeldi. Hann játaði glæpi sina fyrir
blaðamanni DV og talar um kynferðis-
legt ofbeldi gegn ungum stúlkum sem
„veikindi“. Foreldrar eru óttaslegnir
enda sýnir maðurinn engin merki iðr-
unar þegar hann mætir þeim úti á götu.
BARNANÍÐINGUR
JÁTAR FYRIR DV
Smáíbúðahverfið er vinalegt hverfi í 108 Reykjavík. Húsin eru
falleg og garðarnir vel hirtir. Fyrir dkunnuga virkar Smáíbúða-
hverfið sem eitt af þessum hverfum sem fólk gæti vel hugsað
sér að ala upp börn í. En undir hamingjusömu yfirborði ríkir
mikill ótti og reiði meðal íbúa. Ástæðan er sú að í hverfinu býr
þriggja barna giftur maður sem hefur hrellt íbúa í hverfinu
um árabil. Maðurinn hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot
gegn íjórum stúlkum í hverfinu, meðal annars gegn sinni
eigin dóttur. Blaðamaður DV sótti barnaníðinginn heim en
hann er nú atvinnulaus og situr heima í þunglyndi.
„Ég viðurkenni eina af þessum
ásökunum," segir barnaníðingur-
inn, inntur eftir því hvort ásakanir
um að hann hafi beitt börn í hverf-
inu kynferðislegu ofbeldi eigi við
rök að styðjast. „Málið verður tek-
ið fyrir í haust og þá verður það
opinbert, þú getur séð það þá.“
Glottir til grannanna
Barnaníðingurinn var kærður
fyrir kynferðisbrot gegn fjórum
stúlkum snemma í vor. Fyrsta
kæran barst lögreglu í mars en síð-
an hafa þrjár aðrar kærur borist.
Rannsókn lögreglu er langt komin
en eins og fyrr segir gengur bama-
níðingurinn laus í hverfinu. Sam-
kvæmt heimildum DV eru foreldrar
og börn í hverfinu logandi hrædd
við manninn þegar þau mæta hon-
um á götunni. Hann er mjög
hávaxinn og er sagður glotta til ná-
granna sinna er hann mætir þeim.
Stúlkurnar sem um ræðir, og
hafa kært níðinginn, voru á aldrin-
um þriggja til þrettán ára þegar
brotin voru framin. Við leit á heim-
ili níðingsins fannst tugur
barnaklámmynda í heimilistölv-
unni.
Eiginkonan í sólbaði
Það var fallegur sólskinsdagur
þegar blaðamaður DV bankaði
Lofar að flytja úr hverfinu
„Það er næst á dagskrá að
flytja," segir níðingurinn sem er
fúlskeggjaður og með undarlega
augnkippi í hægra auga. Augljóst
er að hann ber sig að öllu leyti
mjög illa. Segist búinn að missa
vinnuna og talar um kynferðislegt
ofbeldi sitt gegn stúlkum í hverf-
inu sem „veikindi". „Ég er mjög
þunglyndur," bætir hann við og
segist ganga til sálfræðings.
Þegar DV komst fyrst á snoður
um þetta mál, fyrir um þrem vik-
um, hafði blaðamaður samband
við nokkrar mæður í hverfinu.
Flestar brugðust þær eins við,
Börn bi
F
bua enn
vildu lítið segja um málið, en aug-
ljóst að allar hræddust þær barna-
níðinginn í hverfinu. Ein þeirra
skar sig þó úr vegna svara sinna.
Hún brást ókvæða við spurning-
um blaðamanns og sagði að þetta
mál kæmi engum við. Við höfum
nú komist að því að þessi kona var
eiginkona barnaníðingsins.
upp á á heimildi barnaníðingsins
og fjölskyldu hans. Til dyra kom
sextán ára sonur níðingsins sem
náði í föður sinn. Þegar hann kom
til dyra og blaðamaður hafði kynnt
sig stökk hann í felur til að nást
ekki á mynd hjá ljósmyndara DV.
Níðingurinn virtist eiga von á
þessari heimsókn og lokaði hurð-
inni og vildi að blaðamaður kæmi
einn inn og ræddi við sig. Blaða-
maður gerði það og við fyrstu sýn
virtist heimilið vera ósköp venju-
legt. Svolítið drasl eins og oft fylgir
börnum en annars mjög vinalegt.
Eiginkona níðingsins sat á bekk úti
í garði og baðaði sig í sólinni.
Gæti sloppið með fjögur ár
Bamaníðingurinn á yfir höfði
sér fangelsisdóm fyrir brot sín, en
hversu þungan er erfitt að segja
enda hefur lengi verið deilt á ís-
lenska dómara fyrir að nýta sér
refsirammann í svona málum ekki
til fulls. Líklegt er að mál hans
verði tekið fyrir í haust.
Sigurbjörn Sævar Grétarsson,
æskulýðsleiðtogi og barnaperri,
sem misnotaði fjóra unga drengi á
Patreksfirði fékk fjögurra og hálfs
árs fangelsi fyrir sín brot. Gefur
það einhverja mynd af því sem
bíður barnaníðingsins í Smá-
íbúðahverfinu.
johann@dv.is
Gerði þetta einu sinni á fylleríi
„Þegar svona kemur fyrir þá er það náttúrulega rosalegt áfall," seg-
ir tengdafaðir bamaníðingsins. Hann segir að tengdasonur sinn iðrist
mjög og sé ákaflega miður sína vegna þessa máls. Um leið og þetta
mál kom upp fór hann á fund tengdaforeldra sinna og skýrði frá því
sem gerst hafði. Að sögn tengdapabbans sagði hann raunar öllum í
ætúnni frá þessu og einnig yfirmönnum sínum í vinnunni. „í kjölfarið
missti hann vinnuna." Að sögn tengdapabba gerðist það fyrir um
hálfum mánuði síðan. „Þetta kom einu sinni fyrir undir álirifum
áfengis og hann hefur talað um að hætta að drekka." Hvað varðar
myndimar sem fundust í tölvunni hjá níðingnum hafði tengdapabb-
inn ekki mikið að segja en taldi þó að þær væm nokkuð gamlar.
„Þetta er búið og gert, og það er ekkert annað að gera en að gera það
sem hægt er að gera," segir tengdapabbinn sem segir að fjölskyldan
muni vinna úr þessu máli í sameiningu. Þrátt fyrir að níðingurinn
hafi sagt fjölskyldu sinni frá ásökunum í hans garð er þó ljóst að hann
hefur ekki verið fúllkomlega hreinskilinn. Tengdafaðir hans virtist til
dæmis ekki vita að alls væri um fjórar misnotkunarkæmr að ræða.
Gæsluvarðhald ónai
„Það er mjög sjaldgæft að menn séu dæmdir í gæsíuvarðhald í svona
málum," segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu sem
sagðist hvorki geta neitað því né játað að mál bamaníðingsins í Smá-
búðahverfinu hafi komið inn á borð Barnaverndarstofu. Að sögn Braga
em tvö skilyrði fyrir því að meintir afbrotamenn séu dæmdir í gæsluvarð-
hald. Annað er ef það skaðar rannsóknarhagsmuni að láta manninn
ganga lausan og hitt er ef refsiramminn vegna meintra brota er mjög hár.
Sú er sjaldnast raunin í svona málum. „Það er svo hlutverk lögreglunnar
að meta hvort rannsóknin krefst gæsluvarðhalds eða ekki," en í þessu til-
viki hefur lögregla metið að svo sé ekki. Barnamðingurinn er því frjáls
ferða sinna á meðan lögreglurannsókn fer fram.
Hraðakstur eykst í kjölfar bílahátíðar á Akureyri
Banaslys setti mark sitt á umferðina
Bflaklúbbur Akureyrar stendur
fyrir svokölluðum Bfladögum á Ak-
ureyri og em þeir nú í fullum gangi.
Bflasýningu og svokallaðri spól-
keppni lauk í gærkvöldi. Mikill fjöldi
hefur lagt leið sína norður og var
umferðin frá Reykjavík og til
Akureyrar hvað mest á fimmtudag.
Það sem helst setti mark sitt á um-
ferðina síðustu daga hjá lögreglunni
á Akureyri var voveiflegt umferðar-
slys aðfaranótt föstudags, þar sem
tveir ungir drengir af Suðurnesjum
lémst á leið sinni norður. Slysið er í
rannsókn lögreglu, en ekki er vitað
um tildrög þess. Hátíðahöldum
vegna þjóðhátíðardagsins var aflýst í
Garði, sem var heimabær annars
hinna látnu.
Mikið hefur verið um hraðaksmr
hjá fólki á leið norður og vom 30
ökumenn teknir fyrir of hraðan akst-
ur á leiðinni norður af lögreglunni á
Akureyri og Blönduósi á fimmtu-
dagskvöld. „Við reynum að vinna að
því að koma hraðakstri af götun-
um,“ segir Garðar Sigurðsson, for-
maður bílaklúbbsins. Markmið bíla-
áhugamanna í klúbbnum virðist
vera virt að vettugi hjá ferðalöngum
á leið norður, en helsta baráttuefni
bílaklúbbsins er að koma hraðakstri
af götunni og yfir á afmörkuð svæði.
„Maður hélt að menn vissu betur og
sýndu aðgát í umferðinni. Ég brýni
fyrir gestunum að sýna varkárni á
leiðinni heim, gæta fyllsta öryggis og
sýna varkárni í samræmi við að-
stæður," segir Garðar Sigurðsson
um aukinn hraðakstur í kjölfar bíla-
daga. í dag mun svo verða spyrnu-
keppni og í kvöld verða dagamir
kvaddir með balli á Sjallanum.
Tilkynnt var um umferðaró-
happ í umdæmi lögreglunnar á
Ólafsfirði að morgni fimmtu-
dags. Þar keyrði vegfarandi upp
á blindhæð og vildi svo til að er-
lendir ferðalangar höfðu stöðvað
bifreið sína á miðri blindhæð-
inni. Til þess að forða árekstri
beygði ökumaðurinn frá bifreið
ferðalanganna og haftiaði utan-
vegar. Stuttu eftir að óhappið
varð keyrðu ferðamennirnir á
brott svo ekki náðist tal af þeim,
en atvik sem þessi eru litin alvar-
legum augum.