Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Qupperneq 15
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 18.JÚNÍ2005 15
Ragnheiður Steinunn og
Haukur Ingi
Fegurðardrottningin og
knattspyrnukappinn létu sig ekki
vanta. Ragnheiður vinnur með
Loga uppi á RÚV.
Bestu vinir í bransanum
að var mikið um dýrðir þegar Logi Bergmann
Eiðssson og Svanhildur Hólm Valsdóttir létu gefa
sig saman í Dómkirkjunni á fimmtudagskvöld.
Allar helstu sjónvarpsstjörnur landsins voru saman
komnar til að heiðra vini sína og kollega. Athöfnin þótti
sérlega falleg og stemningin í veislunni var gríðarleg þar sem
þau Inga Lind og Gísli Marteinn sáu um veislustjórnina og
hljómsveitin Buff lék fram eftir nóttu.
Stjörnubrúðkaup ársins fór fram
á fimmtudagskvöldið þegar sjón-
varpsstjömurnar Logi Bergmann
Eiðsson og Svanhildur Hólm Vals-
dóttir létu gefa sig saman í Dóm-
kirkjunni. Líkt og búist var við vom
margar af helstu stjörnum landsins
viðstaddar athöfnina þannig að
óhætt er að fullyrða að brúðkaupið
hafi verið einn af viðburðum ársins.
Grátið og hlegið
Gestir tóku að streyma að Dóm-
kirkjunni rétt eftir klukkan átta á
fimmtudagskvöld. Athöfnin átti að
hefjast um hálf níu. Brúðhjónin létu
hins vegar bíða eftir sér líkt og venja
er og hófst athöfnin því ekki fyrr en
stundarfjórðung fyrir níu. Þá var
Dómkirkjan þéttsetin en þó ekki full.
Logi var glæsilegur til fara, klæddur í
sérsaumuð kjólföt frá kjólameistar-
anum og klæðskeranum Gerði
Bjarnadóttur. Svanhildur var aftur á
móti klædd í kjól frá Pelli og purpura
og þótti sérlega glæsileg. jÖj
Þegar brúðarmarsinn byrjáði að
hljóma stóð fólk á fætur en salurinn
var blandaður að þessu sinni, en
ekki kynjaskiptur líkt og víða er
venja. Logi leiddi Svanhildi sjálfur
inn kirkjugólfið sem vakti nokkra
eftirtekt. Stöku einstaklingur brast í
grát við þessa fögm sjón enda sveif
Sól og sæla Það vantaðiekki
góðayeðrið þegar Logi og
Svanhildur létu gefa sig
saman á fimmtudaginn var.
ástin yfir vötnum. Brúðhjónin
settust svo niður en eitthvað vafðist
það fyrir gestunum hvort þeir ættu
að sitja eða standa. Þegar prestur-
inn, séra Kristján Valur Ingólfsson
Þingvallaprestur, hóf mál sitt sat
hálfur salurinn á meðan fremri
helmingurinn stóð sem fastast.
Smám saman fór fólk þó að setjast
og athöfnin hélt áfram.
Presturinn sió á létta
Eftir nokkur vel valin orð frá séra
Kristjáni tók Björn Jörundur Frið-
björnsson, meðlimur Ný danskrar,
lagið. Því næst hélt athöfnin áffarn
áður en Stefán Hilmarsson söng lag
eftir sjálfan sig, Þú fuUkomnar mig,
sem hljómsveit hans Sálin gaf út á
síðasta ári. Séra Kristján Valur talaði
síðan til viðstaddra um hjónaband-
ið, fyrirgefhinguna, lífið og tilver-
una. Hafði hann á orði að hann vissi
ekki hver lykillinn að farsælu hjóna-
bandi væri en eitt vissi hann þó. Að
eitt af hverjum þremur hjónabönd-
um endi með skilnaði. Hann sagði
jafnframt að það þýddi að tvö af
hverjum þremur endast og hlógu
viðstaddir hátt og innilega við þetta
tilefni.
Hjónabandið var síðan full-
komnað og hringar settir upp. Sonur
Svanhildar og ein dætra Loga bám
hringana upp að altarinu. Brúðhjón-
in gengu svo hönd í hönd niður
kirkjugólfið á meðan Barry White-
lagið You're My First, My Last, My
Everything hljómaði í salnum. Við-
staddir klöppuðu í takt við tónlistina
og fyrir utan kirkjuna var þeim fagn-
að vel og innilega.
Fjölmargar ræður
Því næst gengu gestir yfir í Iðnó
þar sem sjálf veislan fór fram. Boðið
var upp á kampavín í fyrstu en síðan
gengu þjónar um með þrjár gerðir af
snittum. Ein með laxi, önnur með
kjúklingi og sú þriðja með
mozarellaosti og tómötum. Sam-
hliða því var boðið upp á hvítvín,
rauðvín og bjór en eftir miðnætti fór
fólk að borga fyrir eigin drykki.
Veislustjórar voru þau Inga Lind
Karlsdóttir og Gísli Marteinn Bald-
ursson, sem að venju reitti af sér
brandarana við misjafna hrifningu
gesta. Móðir Svanhildar hélt síðan
fyrstu ræðu kvöldsins en þær áttu
eftir að vera fjölmargar þegar líða
tók á kvöldið. Vinkona Svanhildar
steig næst í ræðustólinn og síðan
sló Ómar Ragnarsson á létta
strengi. Söng Ómar meðal annars
brag sem hann samdi sérstaklega af
þessu tilefni. Sigmundur Kastljós-
maður sagði nokkur vel valin orð og
síðan steig kollegi hans, Sigmar
Guðmundsson, í pontu. Var honum
tíðrætt um að Logi hefði tekið sig
undir sinn verndarvæng þegar
hann hóf störf hjá Rfldssjónvarp-
inu. Elín Hirst hélt einnig ræðu lflct
og Samúel Örn Erlingsson, sam-
starfsmaður Loga til margra ára en
hann hóf, eins og fólk veit, störf á
íþróttadeild Sjónvarpsins áður en
hann færði sig í fréttirnar.
Að ræðuhöldum loknum steig
hljómsveitin Buff á svið og lék fram
eftir nóttu auk þess sem Freyr Eyj-
ólfsson af Rás 2 tók lagið einn og
Hafði hann á orði að hann vissi ekki hver lykillinn að farsælu hjónabandi
væri én eitt vissi hann þó. Að eitt afhverjum þremur hjónaböndum endi
með skilnaði. Hann sagðijafnframt að það þýddi að tvö afhverjum
þremur endast og hlógu viðstaddir hátt og innilega við þetta tilefni.
Bruðhjónin renna í
hlað Þau brostu út að
eyrum og virtustkunna
vel að meta
Ijósmyndarana sem biðu
þeirra fyrir utan kirkjuna.
Alsæll Logi var brosandi út
að eyrum meira eða minna
allt kvöldiö enda
ástfanginn upp fyrirhaus.
►
■
Lukkulegur Logi
Tóksigvelútí
sérsaumuðu
kjólfötunum frá Gerði
Bjarnadóttur.
m
<ar
Aðalstjarna kvöldsins Svanhildurvar klædd í
glæsilegan kjól frá Pelli og purpura og þótti bera
afoðrum konum þetta kvöldið, enda fyrst og
fremst kvöldið hennar Svanhildar.
SK>5
f
SSSPSPÍllS
óstuddur með kassagítarinn.
Allsherjar partí
Talið er að á bilinu 300-350
manns hafi verið í veislunni þegar
mest var. Frægt fólk var þar í meiri-
hluta og máttu vinir og skyldmenni
sín lítils innan um allar stjörnurnar.
Margir gamlir sjónvarpsjálkar frá
árdögum Loga á skjánum létu sjá
sig, m.a. Gunnar Kvaran, Árni Þórð-
ur Jónsson, Helgi E. Helgason og
Bjarni Wessman. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra mætti með manni sínum
Kristjáni Arasyni, Linda Pétursdóttir
fegurðardrottning var á staðnum
hkt og Þorfinnur Ómarsson sem
mætti seint ásamt konu sinni en
þau höfðu staðið í stöngu við af-
hendingu Grímunnar fyrr um
kvöldið. Þingkonan Sólveig Péturs-
dóttir mætti án Kristins Björnssonar
en hún gat þó rætt þingstörfin við
Guðlaug Þór Þórðarson sem var
með Ágústu sína Johnson upp á
arminn líkt og fyrri daginn.
Eurovisiondúettinn Eyjólfur Krist-
jánsson og Stefán Hilmarsson
mætti og þá var fyrst hægt að tala
um alvöru partí. Auk þeirra var
fjöldinn allur af frægu fólki á staðn-
um, lflct og myndirnar bera með sér.
Að sögn þeirra sem DV ræddi við
og voru viðstaddir veishma virtust
brúðhjónin alsæl með daginn. Logi
brosti út að eyrurn mestan part
kvöldsins á meðan SvanhUdur glotti
út í annað. Veislan í Iðnó stóð langt
fram á kvöld og skemmtu viðstaddir
sér konunglega. Ekkert ér áformað
að Logi og Svanhildur fari í bnið-
kaupsferð á næstu dögumog verður
það því að bíða betri tíma. Á
heildina litið var þetta hefðbundin
og falleg athöfri, og voru stjörnurnar
að þessu sinni bæði í aðal- og auka-
hlutverkum.
Þórhallur Gunnarsson og Brynja
Nordkvist Samstarfsmaður Svanhildar á
Stoð 2 og kona hans voru mætt tlmanlega til
aðnásértgóð sæti I kirkjunni.
Dyravö
Passaði
færióbo
veisluna
umur nagnarsson ræðir hér við hjónin
Brynhildi Ólafsdóttur og Róbert
Marshall en hjáþeim stendur Sigmar
Guðmundsson.
ngmaðurinn á kunnuglegum slóðum
jurður Kári kunni vel við sig fyrir framan
bingishúsið þótt hann væri Isumarfrii. Hérsést
nn ásamt Friðriku Hjördfsi Geirsdóttur.