Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Qupperneq 28
28 LAUGARDAGUR 78. JÚNÍ2005
Helgarblað E7V
Athafnakonan
Silja Bára Ómarsdóttir rekur fyrirtækið Út
vil ek auk þess sem hún starfar sem sviðsstjóri hjá Jafnréttis-
stofu.
Silja Bára Silja hefursem
betur fer áhuga á kvikmynd-
um en uppáhaldsmyndin
hennar er Lawrence of Arabia.
Marbert-sólarpúð-
ur
„Ég keypti mér
þetta sólarpúður í
vor og þykir það
algjör snilld. Ég'
nota það mjög
mikið til að fríska
upp á mig.“
S!>ÍÍMÍ
Bourjois-
augnskuggar
„Ég nota
augnskugg-
ana ekki
mikið. Er
búin að
eiga þennan
í tvö ár. Set
hann á mig þegar ég fer út á
lífið. En ég hef keypt mér
aðra síðan sem ég nota
einnig.“
Kanebo-Maskari
„Ég er búin að nota
Kanebo-maskarann í sjö ár
og þykir hann ómissandi."
o
5
w
ö
<
»,^H&M-augnblý-
antur
Ӄg keypti |
»®íltþennan augnblý-
ant í H&M þegar j
_ *ég var í Dan- i
Pifmörku um daginn.
(rEn ég nota hann
eins og augnskugg-
ana, við sérstök tæki-
færi.“
H&M-gloss
„Þetta er
ferskjulitað
gloss sem er
mjög ljóst. Ég
keypti hann
líka úti í
Köben um
daginn og
nota iiann
Inánast daglega.'
Ágústa Edda Björnsdóttir spilar handbolta með Val og hefur spilað frá 15 ára
aldri. „Handboltinn gefur mér Ifkamlega og andlega orku, fyrir utan að vera
frábær félagsskapur," segir Ágústa. (byrjun maf hóf hún störf f sumarafleys-
ingum hjá fþróttadeild Ríkisútvarpsins þar sem hún les fréttirnar. „Þetta er
mjög skemmtileg vinna. Þarna er gott fólk og góður andi," segir handbolta-
konan hæfileikarfka. Annars eyðir hún öllum sfnum tfma með syni sfnum,
Sindra Degi, sem verður tveggja ára í september. „Hann er gullmolinn minn,"
segir Ágústa með bros á vör.
3ú atvlniw
„Það er alveg hægt að lenda í
leiðinlegra starfi," segir Silja Bára
Ómarsdóttir sem rekur fyrirtækið Út
vil ek sem sér aðallega um þýðingar
á bíómyndum. Silja Bára segist hafa
byrjað með aðra viðskiptahugmynd
og þannig hafi nafnið komið til. Hún
hafi svo fengið atvinnutilboð sem
hún gat ekki hafhað en þar sem hún
var ánægð með nafnið ákvað hún að
breyta því ekki þótt það passi ekki
beint við það sem hún er að gera.
Russell Crowe í uppáhaldi
„Ég er aðallega að þýða fyrir
bandarískt kvikmyndafyrirtæki á
DVD,“ segir Silja sem eyðir kvöldun-
um í að horfa á myndirnar þar sem
aðalvinnan hennar er að starfa sem
sviðsstjóri á Jafhréttisstofu sem
staðsett er á Akureyri. „Ég var í
háskólanámi í Bandaríkjunum og
datt þar inn í þetta fyrirtæki og hélt
svo áfram að vinna fyrir það þegar
ég kom heim. Þetta eru aðallega
gamlar myndir sem verið er að setja
yfir á DVD en stundum fæ ég glæ-
nýjar myndir sem eru ekki enn
komnar í bíóhúsin."
Silja Bára hefut, líklega sem betur
fer, mikinn áhuga á kvikmyndum en
uppáhaldsmyndin hennar er Lawr-
ence of Arabia. „Ég bjó í Los Angeles
í átta ár og þar er ekki annað hægt en
að verða svolítiU Hollywood-fíkill,“
segir hún og bætir aðspurð við að
uppáhaldsleikarinn hennar sé
Russel Crowe. „Ég hef ekki ennþá
fengið að þýða mynd með honum
en þegar ég bjó úti fór ég á upptökur
í hvert skipti sem hann mætti hjá Jay
Leno.“
„Ég hefekki ennþá
fengið að þýða mynd
með honum en þegar
ég bjó útí fór ég á
upptökur i hvert
skiptí sem hann mætti
hjá Jay Leno."
Kennir við HÍ í haust
Silja Bára segist hafa unað hag
sínum vel í Los Angeles þótt borgin sé
afar Ktið sjarmerandi við fyrstu
kynni. „Maður verður að læra inn á
hana og finna hlutina sem eru sjarm-
erandi. Nú bý ég hér á Akureyri og
æda að gera það þangað til ég þreyt-
ist á því,“ segir Silja sem mun kenna
námskeið í meistaranámi í alþjóða-
samskiptum við HÍ næsta haust. „Ég
kenndi við háskólann úti en þetta er í
fyrsta skiptið sem ég kenni við há-
skóla hér heima svo það er nóg að
gera framundan.“ indiana@dv.is
Ragnhildur Sigurðardóttir hefur haft áhuga á umhverfismál-
um frá unga aldri og rekur eigið fyrirtæki
Mikilvægt að
allt landið sé í byggð
„Ég er með master í umhverfis-
fræðum og langaði að vinna við mitt
fag,“ segir Ragnhildur Sigurðardóttir
sem rekur Umhverfisstofu Ragnhildar
á Snæfellsnesi. Ragnhildur er einnig
lektor í hálfu starfi við Landbúnaðar-
háskólann á Hvanneyri auk þess sem
hún rekur bú með eiginmanni sínum
vestur í Staðarsveit. „Eg hef haft áhuga
á umhverfismálum síðan ég var ung
og fór beint í Landbúnaðarháskólann
í Noregi eftir stúdentsprófið og kláraði
masterinn þar. Þegar ég kom heim fór
ég vestur og renndi blint í sjóinn enda
ung og bjartsýn og viss um að ég fengi
fullt að gera, sem hefur reyndar verið
raunin," segir Ragnhildur en hún hef-
ur meðal annars unnið að bæklingi
um friðlöndin á Snæfellsnesi, skipu-
lagningu á aðkomu að Fomu Lauga-
brekku og er verkefriisstjóri Lifandi
landbúnaðar sem er grasrótarhreyfing
kvenna í landbúnaði. „Við erum að
beita okkur fyrir að efla áhrif kvenna
innan landbúnaðargeirans auk þess
sem við viljum byggja brýr milli þétt-
býlis og dreifbýlis því við teljum að
þéttbýlið geti ekki án dreifbýlisins ver-
ið og öfugt. Við erum sannfærðar um
að það sé mikilvægt að allt landið sé í
byggð og við viljum gera okkar til
þess,“ segir Ragnhildur sem dvelur tvo
daga í viku á Hvanneyri. „Ég bý í sveit-
inni en það er alltaf gaman að koma
að Hvanneyri og taka þátt í samfélag-
inu þar.“