Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Síða 37
DV Helgarblað
LAUGARDAGUR 18.JÚNÍ2005 37
Karl Filip Geirsson var í vikunni dæmdur í tveggja ára fangelsi. Hann játaði skýlaust brot sín og vann
með lögreglu að málinu allan tímann. Sextán mánuðir liðu þar til málið kom fyrir dóm og Karl Filip
hefur breytt lífi sínu á þessum tíma og iðrast nú gjörða sinna. Hann segist hafa búist við þessum dómi
og ætlar að taka á málunum eins og fullorðinn maður.
i doms-
■ ■
„Hún er alger pabbastelpa,
| I hún er Ijósið ílífinu... Ég á
I | eftir að sakna dóttur minnar
| í gífurlega þegar ég fer inn."
„Ég var búinn að búa mig undir
þessi tvö ár. Maður treystir ekki á
mannlegu hliðina í þessu dómskerfi,
hún er ekki til,“ sagði Karl Filip Geirs-
son í gær. Hann hafði þá hlotið hæstu
hugsanlegu refsingu, tvö ár, fyrir þátt-
töku í innflutningi á föcniefiium. Hann
var dæmdur ásamt nokkrum öðrum
fyrir að hafa staðið í innflutningi á
1000 e-töflum og 130 grömmum af
kókaíni. Karl Fflip nú hefur snúið baki
við fíkniefnaheiminum og þráir ekkert
heitar en að lifa venjulegu lífi fjarri
fíkniefhum og öllu sem þeim fylgir,
eins og hann orðar það.
Vondur heimur
„Ég býst ekki við því að áfrýja því að
mig langar að klára að gera upp skuld-
ir mínar við samfélagið sem fyrst og
halda svo áfiam í mínu nýja lífi. Ég sé
bára fram á að með því að áfrýja væri
ég bara að kaupa mér tíma og þá er
maðttr ennþá fastur í þessu hjólfari,“
segir Karl FUip sem vill greinflega ólm-
ur leggja fortíðina til hliðar svo hann
geti tekist á við nýja og bjartari framtíð
sem fyrst.
„Fortíðin er hlutí af mínu lífi og ég
tekst á við hana eins og fullorðinn
maður. Ég gerði mér grein fyrir því um
leið og ég leiddist inn í fflcniefhaver-
öldina að þetta er vondur heimur en
það er hægara sagt en gert að koma sér
út,“ sagði Karl Filip um kynni sín af
fíkniefnaheiminum. Karl er ennþá
með fíkniefriaskuld á bakinu en ætlar
ekki að láta hana verða sér að falli. Það
var einmitt skuldin sem fékk hann tfl
þess að taka þátt í innflutningnum
sem hann hefur nú verið dæmdur fyr-
ir. Nú situr hann uppi með fíkniefna-
skuld og fangelsisdóm á bakinu.
„Ég var búinn að sjá villu míns veg-
ar og hafði skráð mig í meðferð fjórum
dögum áður en að ég var handtekinn.
Það var í raun engin sjáanleg leið fyrir
mig út úr skuldunum önnur en að taka
þátt í þessum innflutningi, allavega
ekki á þeim tíma. Þess vegna sam-
þykkti ég að taka þátt í þessu,“ segir
Karl FUip sem sér eftir öllu saman og
þráir fátt meira en að geta eytt tíma
með tveggja ára gamalli dóttur sinni
sem er sólargeislinn í lífi hans.
Ljósið í lífinu
„Ég fullyrði að ég mun ekki leita inn
í þetta helvíti á ný til að borga skuldir
mínar, ég finn löglega leið tfl þess. Svo
þarf ég auðvitað að greiða allan máls-
kostnaðinn þannig að maður verður
líklega að vinna fyrir þessu næstu tvö
árin eftir að maður kemur út,“ segir
Karl sem tekur sér litla pásu á spjallinu
við blaðamann tfl þess að skípta á
dóttur sinni, en Karl var ekki við vinnu
þann dag þar sem hann þurfti að
hugsa um dótturina, sem var lasin.
Strax eftir að hafa sinnt foðurskyld-
um sínum segir Karl: „Frá því í byrjun
nóvember hef ég verið ediú og reynt
að byggja upp eðlflegt líf sem faðir
enda ekkert mfldlvægara í lífinu en að
vera góður faðir og góð fyrirmynd. Það
er það sem ég þrái heitast. Hún er al-
ger pabbastelpa, hún er ljósið í lífinu,"
segir hann um dóttur sína sem hann
elskar greinflega meira en allt annað í
lífinu.
„Ég á eftir að sakna dóttur mhmar
gífurlega þegar ég fer inn,“ segir hann
en fjölskylda Karls Filips hefur verið
mjög hjálpsöm í allri þessari erfiðu
baráttu og sýnt honum rnikinn skfln-
ing.
Baráttan við efnin
Eftír handtökuna í febrúar í fyrra
fór Karl Filip í meðferðina sem hann
Engin miskunn Karl Filip gekk hnipinn út
úr héraðsdómi I fyrradag þó hann hafi verið
undirþaö búinn að fá þyngsta dóm enda
segir hann mannlegu hliðina ekki til i dóms-
kerfinu. DV-mynd GVA
hafði skráð sig í og stóð sig í nokkra
mánuði áður en hann féll. „Ég kolféll á
hrottalegan hátt og hef aldrei beðið
þess bætur. Vanh'ðanin var svo rosaleg
að maður vissi ekld hvernig maður átti
að snúa sér í lífinu. Ég vona að ég fái að
sitja af mér á Kvíabryggju því þar er
ekkert dóp í umferð og það hjálpar
manni að halda sér frá því,“ segir hann
um yfirvofandi fangelsisvist.
Honum finnst einnig slæmt að
hafa þurft að bíða svo lengi frá því
hann var handtekinn og þar tfl málið
fór fyrir dóm. „Ég er búinn að afplána
mikinn dóm með bið eftír dómnum.
Þetta eina og hálfa ár er ég búinn að
afþlána innra með mér með vanlíð-
anina sem þessu hefur fylgt,“ segir
Karl Filip sem óttast að þurfa að dúsa
á Litla-Hrauni þar sem fíkniefhi eru f
umferð.
„Það er hrikalegt til þess að hugsa
að sitja inni í einangruðu herbergi á
Litla-Hrauni með alla þá vanlíðan sem
því fylgir og þurfa að horfa upp á fíkni-
efnin sem þar em í boði. En hvað sem
gerist þá ætla ég að taka á mínum mál-
um eins og karlmaður," segir Karl
Filip.
tj@dv.is
Sveinn Andri Sveinsson hæstaréttarlögmaður segir ekki
hægt að hvetja sakborninga til samvinnu þar sem ekkert
bendi til að það sé þeim til hagsbóta.
Sveinn Andri Sveinsson
„Það er erfitt fyrir verjanda
að staðhæfa við skjólstæð-
ing sinn að með þviað
vinna með lögreglu verði
það honum til hags-
bóta."
Karl Filip Geirsson var í vikunni
dæmdur til jafiiþungrar refsingar
og Vilhjálmur Vflhjálmsson .í hér-
aðsdómi þrátt fyrir að Karl hefði
unnið með lögreglu f málinu og
hjálpað til við að upplýsa það. Vil-
hjálmur þagði þunnu hljóði og
mætti ekld einu sinni fyrir dóminn
þegar hann var kveðinn upp.
Álíka gerðist í lfkfundarmálinu
svokallaða þar sem Grétar Sigurð-
arson hjálpaði lögreglu en fékk
sama dóm og Jónas Ingi Ragnars-
son og Tomas Malakauskas, eða tvö
og hálft ár. Þriðja dæmið á skömm-
um tíma var mál hollensku stúlk-
unnar Stientje Frouktje Marianne
Beuker sem var burðardýr, en hún
upplýsti lögreglu meðal annars um
flkniefnabirgja í útlöndum, sem er
einstaklega fátítt. Hjálp hennar var
ekki metin tfl refsflækkunar og böm
hennar vom send í fóstur í
Hollandi.
Karl Filip, Grétar og Stientje
sýndu öll iðrun, öfugt við þá
sem komu að málunum
með þeim.
„Það er erfitt fyrir
verjanda að staðhæfa viö
skjólstæðing sinn að með
því að vinna með lögreglu
verði þaö honum til hags-
bóta," segir Sveinn Andri
Sveinsson hæstaréttarlög-
maður.
tj@dv.is
Faðir og dóttir „Frá þvíi byrjun nóvember hefég verið edrú og reynt að byggja upp eðlilegt
llfsem faðir enda ekkert mikilvægara í lífinu en að vera góður faðir og góö fyrirmynd, og þaö
er það sem ég þrái heitast.“ DV-mynd Atli
Þungir dómar þrátt fyiír samvinnu
10. nóvember2004
Líkfundarmennimir fá allir sama dóm, tvö og hálft ár, i Héraösdómi Reykjavíkur,
þrátt fyrir að Grétar hefði unnið með lögreglunni en ekki Jónas og Malakauskas.
Alliráfrýja.
6.janúar2005
Burðardýrið Stientje Frouktje Marianne Beuker frá Hollandi var dæmd I tólfmánaöa
fangelsi afHéraðsdómi Reykjavikur þrátt fyrir að hafa unnið ötullega að lausn
málsins með lögreglu.
28.apríl2005
Hæstiréttur staðfestir dóminn yfir sakborningunum í Ifkfundarmálinu. Taka ekki
samstarfsvilja og aðstoð Grétars til greina frekar en Héraðsdómur Reykjavíkur.
13.júní2005
Héraösdómur dæmir Karl Filip Geirsson til sömu refsivistar og Vilhjálm Vilhjálmsson
þrátt fyrir aö Karl hafí unnið með lögreglu og snúið baki viö fíkniefnaheiminum.