Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2005, Side 64
r1 r
\.
I* Y ^ Í Í ÍÁÁ 0 i Við tökum við
fréttaskotum allan sólarhrínginn. Fyrir hvert fréttaskot sem
birtist, eða er notað íDV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta
fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000 krónur. Fullrar
^jmfnleyndar er gætt. ^J-QQ f) Q Q Q
' pmiinii
SKAFTAHLIÐ24,10SREYKJAVIK [STOFNAÐ 1910] SIMIS505000 5 "69071011111124"
• Idol-stjarnan og
stjórnandi Djúpu
laugarinnar Helgi
Þór Arason ætlar að
Ijúka stúdentspróf-
inu næsta haust.
Helgi hugðist sækja
um inngöngu í
Menntaskólann við Hamrahh'ð
en varð of seinn að skila inn
umsókn og mun því ekki komast
í nám þar næsta haust. „Jú,
þetta var pínu klúður," segir
Helgi sem íhugar nú að sækja
um að komast í öldungadeildina
þrátt fyrir ungan
aldur. Helgi er
sem kunnugt frá
ísafirði, en virð-
ist nú ætla að
festa rætur í höf-
uðborginni með
Ingunni önnu
Ragnarsdóttur, kærustu sinni og
vinkonu Hildar Völu, sigurveg-
ara Idol-keppninnar.
Hej alli hopa!
/
Guðmundur Arni Sendiherra sem
talar ekki sænsku
Guðmundur Árni Stefánsson al-
þingismaður mun segja skilið við ís-
lensku pólitíkina og gerast sendiherra
í Svíþjóð á næstu mánuðum. Ráðn-
ingin kom fáum á óvart, enda lýgur al-
mannarómur sjaldnast. Guðmundur
mun því kveðja Hafnarfjörðinn þar
sem hann var bæjarstjóri lengi vel,
knattspyrnudeild FH þar sem hann
formaður og Samfylkinguna sem
hann hefur séð blómstra á síðustu
árum.
„Ég hlakka bara til. Er búinn að vera
lengi í pólitík og vonandi mun reynsla
mín koma sér vel I Svíþjóð," segir Guð-
mundur Árni, sem hræðist ekki spill-
ingu ytra en hann er eini íslenski ráð-
herrann sem sagt hefur af sér
ráðherraembætti.
Kai\ntu sænsku?
„Nei, en ég tala prýðilega skandin-
avísku. Sænski framburðurinn hlýtur
að koma með tímanum."
Afhverju þú?
„Þetta kemur bara upp úr samtali
manna sem hafa með þetta að gera."
Fer fjölskyldan með?
„Við eigum eftir að sjá hvernig þetta
leggst?"
Leiður á íslandi?
„Ég verð aldrei leiður á þinginu. Ef
maður verður leiður á pólitík á maður
að hætta. Pólitfk er líf mitt og ég verð
ekki leiður á því.“
Leiður á Hafnarfírði?
„Nei, enda er ég þar núna
I miðjum hátíðahöldum."
Leiður á FH?
„Alls ekki. FH verður ís-
landsmeistari og vonandi
bikarmeistari líka. Ég fer nú
ekki fyrr en það er búið. Síðan finnur
stjórnin út úr því að finna nýjan for-
mann."
Leiður með staðarvalið?
Nei, ég er mjög ánægður með
Stokkhólm."
Svo þú ert bara sáttur?
„Maður verður að velja og hafna í
lífinu. Það er ekki hægt að sleppa og
halda. Þetta er meðvituð ákvörðun og
ég er sáttur."
Guðmundur Arni
„Ég tala prýðilega
skandinavtsku. Sænski
framburðurinn kemur
með tímanum.‘
vextir
Engin skilyrði um önnur bankaviðskipti
Lánin eru verðtryggð og bera fasta 4,15% vexti sem eru endurskoðaðir
á fimm ára fresti. Hægt er að greiða upp án uppgreiðsiugjalds þegar vextir
koma til endurskoðunar. Engin hámarksupphæð og er lánstími allt að 40 árum
Krafa er gerð um fyrsta veðrétt íbúðarinnar. Lánshlutfall er allt að 80%
við endurfjármögnun fasteigna (engin hámarksupphæð) og 100% við kaup
fasteignar (hámarksupphæð 25 milljónir króna).
Hægt er að nota lánin til ibúðarkaupa, til að stokka upp fjármálin
eða í eitthvað allt annað.
Hólmgeir Hólmgeirsson
rekstrarfræðingur er lánafulltrúi
á viðskiptasviði
Dæmi um mánaðarlega greiðslubyrði af 1.000.000 kr.
Lánstími
Ragnhpiður þeVigilsdóttir
viðskipiáfræðingur er lánafulltrúi
á viöstciptasviói
4,15% vextir
Lán með jafngreiðsluaðferð án verðbóta
Ráðgjafar okkar veita allar nánari upplýsingar. Þú getur litið inn
i Ármúla 13a, hringt í síma 540 5000 eða sent tölvupóst á frjalsi@frjalsi.is
5 ár 25 ár
18.485 5.361