Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Síða 11
DV Fréttir
FÖSTUDACUR 8. JÚLÍ2005 7 7
friðhelgi
Augusto Pinochet,
fyrrverandi einræðisherra í
Chile, þarf að fara fyrir rétt
vegna hvarfs á meira en 100
róttækum vinstrisinnum í
stjómartíð sinni. Pinochet
hafði farið fram á friðhelgi,
sem lög í Chile tryggja
fyrrvercindi leiðtogum
landsins, en lægri dómstóll
þar í landi hafði aflétt þeirri
ffiðhelgi að hluta til. Sá
dómstóll heimilaði réttar-
höld vegna meints fjár-
dráttar. Áfrýjunardómstóll
landsins úrskurðaði hins-
vegar að sækja mætti Pin-
ochet til saka vegna hvarf
vinstrisinnana. Lögmenn
Pinochets halda fram sak-
leysi hans.
Stjömufræðingur í Rúss-
landi hefur ákveðið að kæra
Geimvísindastofnun Banda-
ríkjanna, NASA. Ástæðan er
sú að þann fjórða júlí rakst
könnunarfar frá NASA vilj-
andi á halastjömu. Konan
vill fá tæplega tuttugu millj-
ónir í skaðabætur fyrir at-
vikið. Hún heldur því ffam
að áreksturinn hafi áhrif á
stefnu halastjömunnar og
hafi þar með áhrif á gang
himintunglana. Það gerir
henni erfitt fyrir að lesa rétt
úr stjömunum án þess að
leggja á sig mikla auka-
vinnu.
Joseph Duncan hefur nú verið kærður fyrir mannrán. Hann er talinn hafa drepið
heila fjölskyldu, að einni átta ára stelpu undanskilinni. Stúlkan hefur sagt lögregl-
unni hvernig Duncan misnotaði hana. Saga stúlkunnar hefur nú verið gerð opin-
ber í kringum réttarhöldin yfir Duncan.
geosiuka bloggaranum
Joseph Duncan hefur verið kærður fyrir tvö mannrán. Hann gæti
verið dæmdur í ævilangt fangelsi. Honum er gert að sök að hafa
rænt tveimur bömum en er einnig talinn hafa misnotað þau ítrek-
að í sex vikur. Ennfremur er talið að han haíi barið eldri brdður
bamanna ásamt móður þeirra og kærasta hennar til dauða á
heimili þeirra en rannsókn málsins er enn í fullum gangi.
Shasta er sú eina í fjölskyldunni
sem virðist hafa komist lífs af. Lög-
regluyfirvöld í Bandaríkjunum telja
að Dylan sé látinn. Shasta lýsti því
fyrir lögreglunni hvemig Duncan
fór með þau systkinin. Hún segist
hafa vaknað þegar verið var að bera
hana í pallbfl ásamt bróður sínum
og vom þau bæði bundin. Þá vom
þau komin á vald Duncans og mis-
notaði hann systkinin ítrekað
næstu sex vikurnar.
Duncan hinn rólegasti
Duncan stoppaði á bensínstöð í
smábæ í Montana. Hann var hinn
rólegasti, spjallaði við starfsfólkið í
korter og keypti sér tvær kippur og
Bud Light. Starfsfólk bensínstöðv-
arinnar sagði hann hafa verið
kurteisan og ræðinn. Þessi bíræfni
hans varð honum svo að falli þegar
hann fór með Shöstu á Denny’s-
veitingastaðinn aðeins nokkrum
kflómetmm frá heimili hennar, þar
Þá voru þau komin á
vald Duncans og mis-
notaði hann systkynin
ítrekað næstu sex vik-
urnar.
sem lík fjölskyldu hennar höfðu
fundist.
Dæmdur barnaníðingur
Joseph Duncan sat á sínum tíma
inni í tæpa tvo áratugi eftir að hafa
misnotað 14 ára dreng. Hann hafði
einnig verið kærður fyrir að mis-
nota sex ára gamlan dreng og var á
flótta undan lögreglu vegna þeirrar
kæm. Hann hefur haldið úti blogg-
síðu í nokkurn tíma þar sem hann
talar um líf sitt og hvernig púkar
geri vart við sig í huga hans.
Púkarnir ná völdum
Púkamir virðast algjörlega hafa
náð stjóm á honum. Aðeins þremur
dögum eftir síðustu færslu hans á
bloggsíðunni fúndust kona og kær-
asti hennar ásamt syni konunnar
barin til dauða á heimili þeirra. Tvö
yngstu böm konunnar vom horfin,
Shista og Dylan Groene, aðeins átta
og m'u ára gömul.
Duncan hefur nú verið kærður
en aðeins fyrir mannrán. Hann
gæti þó fengið lífstíðardóm verði
hann dæmdur.
Slóðin á síðu Duncans er
fifthnail.blogspot.com. kjartan@dv.is
Martha Stewart í viðtali við Vanity Fair
Martha Stewart
gæti strokið
Hálfgerður nafni
Rapparínn P. Diddy er
nú orðinn hálfgerður
I nafni Mörthu Stewart.
„Ég sá hvernig þeir settu tækið
á. Maður fattar hvernig maður á að
taka það af. Þetta er á netinu, ég
fletti því upp,“ segir Martha
Stewart, fyrrverandi sjónvarps-
stjarna í Bandaríkjunum þegar
hún er spurð út í rafmagnstæki
sem er á fæti hennar vegna stofu-
fangelsis. Þetta segir hún í viðtali
við Vanity Fair en hún prýðir for-
síðu tímaritsins. í viðtalinu kemur
ýmislegt fram, m.a. hvað hún var
kölluð á meðan hún var í fangelsi.
Þar mun hún hafa gengið undir
nafninu M. Diddy. Nafnið er vísun
í nafn rapparans fræga, P. Diddy,
sem hefur nokkrum sinnum verið
sakaður um að vera röngum megin
laganna.
Eins og
frægt er orð-
_|.ið var hún
VWy dæmd fyrir
innherjavið-
skipti. Hluta
Á forsíðu Martha Stewart prýðir forsfðu
Vanity Fair. I viðtalinu kemur ýmislegt fram.
refsingarinnar tók hún út í fangelsi
í Vestur-Virginíu en er nú að ljúka
afplánun sinni í stofufangelsi. Hún
sagði fangelsisvistina hafa verið
frábæra, hún segist eiga fullt af frá-
bærum minningum þaðan. Hiris-
vegar er hún ekki sátt við stofu-
fangelsið og segir vistina þar
hörmulega.
Vinningar í sumarhappdrætti
Sjálfsbjargar 2005
Dregið var 30. júní 2005
Bifreið að eigin vali frá P. Samúelssyni kr. 2.000.000.-
2
Ferðavinningur, leiguflug með Úrval-Útsýn kr. 160.000.-
6130 21184 28284 35026 44606
7690 22338 28845 35551
9319 23651 28969 36930
16435 24600 29694 39675
Vöruúttekt frá Húsasmiðjunni kr. 100.000.-
716 6843 18121 27955 45757
774 8114 18415 30624 45993
3077 8322 21466 38435
6006 9851 23718 40825
6603 11325 24505 44036
Vöruúttekt frá Kringlunni kr. 50.000,-
1010 6838 12854 19335 26959 29987 36256 39308 44028
1811 8613 13019 21328 27550 30702 36917 39593 44145
2888 8812 13447 22027 28490 31518 37785 39684 44949
3234 10622 14904 22682 29022 32988 37917 39840 46902
3455 11145 16182 23044 29029 33279 38357 40795 48819
4749 11434 16552 23749 29582 33729 38761 40814 49603
5555 12224 18751 24137 29632 35967 38850 41799
Þökkum veittan stuðning
Sjálfsbjörg, landssamband fatlaðra, Hátúni 12, 105 Reykjavík, s:550-0300
Birt án ábyrgðar