Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Side 31
DV Fréttir
31
Úr bloggheimum
„Úthafsblogg IV
Veiðar hafa glæðst aðeins
síðustu daga, ekkert
nema gottmál.Ég
kláraði vakt áðan á
hausaranum, þar sem ég
hausaði hátt í 14 tonn af
gæðaúthafskarfa. Góður Stak-
hanov þar á ferð. Ekki var verra að
enda slíka vakt á rauðvínsleginni
nautasteik, sem Ólafur kokkur eldaði
afmikilli natni og kostgæfni.,,
Þórður Gunnarsson - http://dodd-
eh.cartland.net/
“Klukkan er 13:29. Atli Freyr
mætir útvarpsstjóra í and-
dyri Útvarpshússins.
Útvarpsstjóri: Blessaður.
Atli Freyr: Blessaður.
Útvarpsstjóri (æpir úr fjar-
lægð, kominn fram hjá): ÞÚ
STENDUR ÞIG VEL SEM ÞULUR!
Atli Freyr (æpir glaðhlakkalega): Þakka
þérfyrir.
Þetta er nú eiginlega in the bag núna.
Allt þetta gæti hins vegar verið teygja
sem strekkist á uns Pétur Pétursson
hringir í mig og hún slitnar. Allsvaka-
lega. Frá því verður sagt á þessum
véttvangi efafverður."
Atli Freyr Steinþórsson -
http://www.atallus.blogspot.com/
"Ég vará tónleikum, hvar
Queens ofthe Stone Age
og Foo Fighters tróðu
upp. Ég er víst einn í mín-
um vinahópi um þá skoð-
un að QOTSA hafí verið
betri. Don't get me wrong, Foo
Fighters voru með frábæra sýningu, en
tónlistarlega séð fannst mér hin
hljómsveitin betri."
Konráð Jónsson - http://blogg.kj.is/
J'Bara það besta að frétta úr
■k vinnunni! Verðbreytingin á
l disilolíunni varð ídag...
Það kom einn inn alveg
rosalega hissa, búinn að
fylla trukkinn sinn afdísil...
„Heyrðu, það er eitthvað vitlaust
merkt hjá ykkur þarnaúti.það stendur
að dísillinn sé á hundraðogeitthvað
krónur... ho hoh ho!“ Ég var lengi að
sannfæra hann um að nú væriþetta
orðið svonalAð olían hefði hækkað
um 51 krónu frá þvi í gær. Kallgreyið!“
Gyða Maxima -
www.blog.central.is/maxima
Louis Armstrong tekur fyrsta skrefið í átt að heimsfrægð
Þennan dag árið 1922 ákvað
trompetleikarinn Louis Armstrong
að yfirgefa heimabæ sinn, New Or-
leans, til að taka lestina til Chicago.
Þetta var örlagarík ákvörðun því hún
markaði upphafið að glæstum tón-
listarferli hans. Louis hafði verið
boðið að spila með þekktri hljóm-
sveit sem kallaðist King Oliver’s
Famous Jazz Band og gerði hann
með sveitinni fyrstu hljóðversupp-
tökur sínar. Eftir að hafa spilað með
sveitinni í nokkurn tíma varð Arm-
strong einn af áhrifamestu hljóm-
listarmönnum jazztímabilsins víð-
fræga í Bandaríkjunum. Með
Louis Armstrong Skildi eftirsig mikils
metna arfleið aftónlist frá einu umtalað-
asta tlmabili tónlistarsögunnar.
trompetleik sínum jók hann vin-
sældir einleiks á hljóðfæri í jazztón-
list og jazzheiminum gjörvöílum um
ókomna tíð. Það má jafnvel segja að
Louis Armstrong hafi verið fyrsti
þekkti einleikarinn sem kom fram á
sjónarsviðið á sínum tíma. Hann
varð svo seinna meir einn af áhrifa-
mestu listamönnum í tónlistarsög-
unni.
Armstrong gerði ekki eingöngu
góða hluti sem jazztónlistarmaður
því hann var með annan fótinn í
popptónlist og söng dægurlög með
djúpri og tilfinningaþrunginni rödd
sinni. Eitt þekktasta dæmið um
sönghæfileika Armstrongs er lagið
„What a Wonderful World“ frá 1968
sem færði honum heimsfrægð.
Einnig var Armstrong vel tekið af
kvikmyndaframleiðendum vegna
Lesendur DV eru hvattir til að senda okkur tölvupóst á netfangið ritstjorn@dv.is og láta í Ijós skoðanir sínar á málefnum líðandi stundar.
Að gera pað fyrir peninga
„Við erum öll af vilja gerð, ef það
fæst fjárveiting fyrir því.“ Þetta eru
orð kvenprests í útvarpsviðtali, sem
Lesendur
var að ræða um áhuga sinn og ann-
arra presta á að hafa viðveru í kirkju
á kvöldin og um helgar, þar sem
fólk hefði oft þörf fyrir sálgæslu á
kvöldin, sem og um aðra tíma sól-
arhringsins.
Mikið fundust mér þetta fátæk-
leg orð prests.
Má ekkert gera orðið lengur
nema fyrir peninga? Hér áður fyrr
var fólk í störfum sínum af lífi og
sál. Það átti hugsjón og taldi ekki
eftir sér að hjálpa náunganum. Oft
voru þetta menn, sem unnu af
hjartans einlægni, ósérhlífnir og
fórnsamir. Þeir áttu sér hugsjón.
Núorðið sundurliða þessir aðil-
ar verk sín, svo fá megi hæstu borg-
un. Því miður hafa þessi áður-
nefndu líknarstörf orðið að gróða-
fyrirtækjum fégráðugra manna. Af-
leiðingin er sú að heiður og virðing
hefur horfið úr þessum stéttum
mannfélagsins vegna níðingslegrar
framkomu við hina minnstu í
neyðinni.
Einai Ingvi Magnússon
í dag
árið 1903 hófst síldarsöltun á
íslandi þegar norska skipið
Marsley kom með 70 tunnur
af síld til Siglufjarðar sem
veidd hafði verið i reknet
nóttina áður. Þetta var upp-
haf síldarævintýrisins víð-
fræga sem stóð í 65 ár.
heillandi persónuleika hans og lék
hann í allnokkrum kvikmyndum um
ævina. Vegna gífurlegra vinsælda
hans og velgengni skildi hann eftir
sig mikils metna arfleið af tónlist frá
einu umtalaðasta tímabili tónlistar-
sögunnar.
Litli prakkari
f Lukku Láka-bókinni „Fjársjóð-
ur Daltóna" segir frá dómara sem
útdeilir refsingum með því að
klappa glæpamönnum á kinnina og
segja „litli prakkari”. Mér datt þessi
dómari í hug þegar ég heyrði um
dóminn yfir Paul Gill í Héraðsdómi
Reykjavíkur. Eða öllu heldur dóm-
leysuna.
Einn mánuður er engin refsing.
Forhertir glæpamenn hlæja að
þessu. Enda er það svo að erlendir
afbrotamenn líta svo á að hér á
landi sé ekkert refsivörslukerfi. Þeir
„moona" dómarann og vita sem er
að það hefur engar afleiðingar. Og
vegna lins réttarvörslukerfis upp-
sker samfélagið menn sem vaða
uppi með dólgshátt og ofbeldi.
Það er engum blöðum um það
að fletta að árás Pauls Gill og félaga
á ráðstefnugesti Nordica-hótels var
ofbeldi; hryðjuverk. Þar breytir engu
þótt árásarvopnin hafi ekki verið
eins hættuleg eins og t.d. þotumar
sem notaðar vom á Tvíburatumana
í New York. Rétt eins og árás manns
á heimili forsætisráðherra Ástrah'u
með logandi kyndli í gær var
hryðjuverkaárás þótt hún hefði ekki
sömu afleiðingar og árásin á neðan-
jarðarlestakerfið í London.
Það er von mín að í framtíðinni
þurfum við ekki að heyra fréttir á
borð við þær sem heyrðust í gær.
Um manndráp og limlestingar. Um
ótta og skelfingu. En þá þarf réttar-
vörslukerfið að beita fyrirligggjandi
lagaúrræðum til að spoma við of-
beldinu, senda þau skilaboð að
hryðjuverk eða hvatning til þeirra
verði ekki liðin. Því súr-
mjólkurárásir falla
undir hryðjuverk og
þeir sem hvetja til
þeirra eða mæli
þeim bót em undir-
róðursmenn hryðju-
verka, íslenskir Bin
Ladenar.
>n -E
■O -O
3
c -í
c P
Ol o
cc Ov
Maður
dagsms
Viðbrögðin framar öllum vonum
„Námskeiðin ganga mjög vel
og krakkamir em ánægðir með
allt sem við höfum verið að fást
við," segir Ragnheiður Guðfinna
Guðnadóttir sem sér um sjálfs-
styrkingamámskeið ásamt Am-
ari Grant. „Krakkamir tala um að
þetta sé allt öðmvísi en það sem
þau hafa þegar prófað. Nú þegar
erum við búin að fara á línu-
skauta og í hjólreiðaferð sem
endaði í Nauthólsvíkinni. í gær
skunduðum við svo upp á Esj-
una. En til að enda vikuna í ró-
legri kantinum er stefnan tekin á
ljúfa ferð í Bláa lónið.
Það er ótrúlega mikill kraftur
í krökkunum og þeir gefa ekkert
eftir. Þeir hafa mjög gaman af
þessu. Markmið námskeiðsins
er að beina krökkunum á rétta
braut og kenna þeim holla lifn-
aðarhætti. í næstu viku er svo á
dagskrá að bjóða foreldrum upp
á skyndikennslu í heilsusamleg-
um lífsstfl,“ segir Ragnheiður.
„Ég og Amar emm höfum
fengið fullt af áskorunum þess
efnis að fara lengra með hug-
myndina og bjóða upp á fleiri
námskeið næsta sumar. Það má
vel vera að við gemm það enda
hafa viðtökumar verið framar
Markmið nám-
skeiðsins er að
beina krökkunum á
rétta braut og
kenna þeim holla
lifnaðarhætti.
öllum vonum,“ segir Ragnheið-
ur.
Ragnheiður Guðfinna Guönadóttir er annar stJó"’*"dria
stvrkingarnámskeiða sem kallast Ufskraftur og haldin eru í sumar.
Námskeið þessi hafa vakiö mlkla athygli og þá tíntajm vegna þess^a
markmið þeirra er að veita börnum og foreldrum þeirni fraeð*lui um
kosti heilbrigðs Iffsstns. Nánari upplýsingar má finna á sjalfsstyrk g. .