Dagblaðið Vísir - DV - 08.07.2005, Page 38
38 FÖSTUDAGUR 8. JÚLÍ2005
Síðast en ekki síst DV
[223353313 Sk“»‘m«"dlr 4 F°”1 E9“",6lkw
Mokfiskerí hjá Clapton
Heldur betur hljóp á snærið hjá
vefritinu Vötn og veiði þegar Eric
Clapton og félagi hans mættu til
landsins til laxveiða. Menn þar eru
greinilega vel innundir hjá fyrirtæk-
inu sem annast Clapton og hafa
tekið algera forystu í fréttaflutningi
af því hvernig gítargoðinu gengur
að handleika stöngina. Clapton er
við veiðar i Laxá í Asum og Vötn og
veiðar greindu frá því í gær að
maci Clapton og vinur hans
hefðu lent í sannkölluðu
ævintýri þegar þeir voru við veiði-
staðinn Króka. Blasti við þeim
mögnuð sjón, vel rúmlega fimmtíu
laxar í einum hrærigraut í þeim litla
netta hyl sem Króki er. Þegar þeir
byrjuðu að „hitsa“ urðu viðbrögðin
„þannig að helst minnti á að sjá ið-
andi kös dansandi búka á gólfi
diskóteks og engu líkara en margir
ætluðu sér fluguna. Á stuttum tíma
lönduðu þeir félagar sjö löxum en
misstu 15 stykki! í hverju einasta
kasti kom taka og oft tvær og jafnvel
þrjár. Tveir sem sluppu voru mjög
vænir, yfir 15 til 16 pund, en flestir
voru laxarnir þó í flmm til sjö
punda klúbbnum," segja þeir á
Vötnum og veiði en síðast þegar
spurðist voru Clapton og félagi
hans komnir með tæplega 30 laxa
veidda.
Clapton fiskinn
Lenti í iðandi laxa-
kös í hylnum Króka.
Hvað veist þú um
Snoop Dogg
1. Hvað heitir fyrsta platan
hans Snoops Dogg?
2. Hvert er raunverulegt
nafn Snoops Dogg?
3. í hvaða klíku er Snoop?
4. Hvaða fíkniefni talar
Snoop gjarnan um í textum
sínum og vill lögleiða?
5. Hvar mun Snoop halda
tónleika þann 17. júlí?
Svör neðst á síðunni
Hvað segir
mamma?
„Hann
Magnús er
Ijúfur og
góður,"
segir
Guðrún
Blöndal.
„Hann er
mjög
góður
sonur og
það er
afar kært
á milli
okkar. Hann er alls ekki skaplaus, en
hann er llka mjög bllður. Er Ijúfur og
notalegur við þá sem hann þekkir
en getur auðvitað verið harður lika.
Sem unglingur var hann ósköp eðli-
legur og kátur. Hann var mjög
fjörugt barn sem lék sér bara með
bolta. Hann týndist stundum I
marga tíma með fótboltann."
Magnús Gylfason er fæddur 20.
júli 1967. Magnús náði frábærum
árangri með lið IBV í fyrra sem
skilaði þeim öðru sæti. Hann
ákvað hins vegar að söðla um og
tók við KR fyrirþetta tímabil. Ar-
angurinn hefur nokkuð látið á sér
standa en enginn efast þó um að
Magnús er frábær þjálfari.
P
1. Doggystyle 2. Calvin Brodus 3. Crips-klíkunni á Vestur-
strönd Bandaríkjanna. 4. Maríjúana 5. Egilshöll á (slandi.
Gúsari og næmingur Péturs Kristjéns
Plata og bék á leið í prentsmiðju
„Maður er að skrifa um þvílíkan
öðling að það er ekki hægt að klikka
á því," segir Kristján Hreinsson
skáld sem er að leggja lokahönd á
bók sem fjallar um ævi og störf Pét-
urs W. Kristjánssonar.
Bókin mun heita Pétur poppari
og Kristján hafði reyndar, fyrir svip-
legt fráfall Péturs langt fyrir aldur
fram 3. september sl., orðað það við
hann hvort ekki væri rétt að færa í
letur ævintýralegt lífshlaup hans.
„Gamli hafði tekið sæmilega í það.
Ég vissi að ég hafði hann í snörunni
því hann hafði gaman af svona um-
ijöllun. Þótt hann segðist ekki vilja
stökkva á dæmið var þessi púki í
honum. Hann verður ánægður með
verkið þegar það kemur út.“
Það er bókaútgáfan Hólar á Akur-
eyri sem gefur bókina út. Rann-
sóknir Kristjáns hafa leitt í ljós ýmis-
legt sem til tíðinda má teljast. Mynd-
ir af hljómsveitum sem ekki hafa
hingað til verið þekktar. „Til dæmis
kom á daginn ein verulega merkileg
hljómsveit sem ekki hefur verið færð
til bókar í rokksögunni ennþá. Svo er
annað sem nefna má að aftast í bók-
inni verður orðabók. Þegar hef ég
skráð hjá mér fjögur hundruð orð og
Pétur W. Kristjánsson Eins og margir
muna hann, með mikrófóninn og i stuði.
setningar sem Pétur bjó til; afbakaði
orð sem þekkt eru og fór að nota
með nýrri merkingu. Já eða hrein-
lega lagðist í nýrðasmíð. Gúsari
er til dæmis eitt slíkra orða."
Gúsari eða gæsaháls eru
orð sem Pétur notaði um
sérstakt statíf fyrir hljóð-
nema sem hægt varð að
sveigja til eftir þörfum
söngvarans. Pétur kall-
aði þetta einnig sturtu-
barka. Næmingur er
svo orð sem Pétur
notaði mikið.
„Næmingur er al-
veg sérstök tegund
af næmleika og get-
ur vísar bæði til
greindar og þess
sem er neðan
nafla. Pétur var
alltaf snertandi á
öllu, hurðakörm-
um og var að
næmast í sígarettu-
pökkum sem lágu á
borði, blýöntum og
pennum og raða til.
Orðaforði hans var,
eins og alþjóð
veit, alveg ein-
stakur."
Kristján Hreinsson Gerirsér
meðal annars mat úr einstæð-
um orðaforða Péturs íbók sem
nú er á leið í prentsmiðju.
Nóg að gera á Kaffi Nauthól sem nú er reyklaus. Staðurinn sérstaklega vinsæll hjá konum.
Kaffi Nauthóll stækkar
„Ég reikna með að teikningar
verði tilbúnar síðla sumars þannig að
framkvæmdir munu fara af stað f
fyrsta lagi í haust," segir Bjöm Ingi
Stefánsson eigandi Kaffi Nauthóls í
Nauthólsvfk. Bjöm segir að það sé
alltaf mikið að gera á Kaffi Nauthól
og það hafi hingað til háð staðnum
hvað hann er lítill. Hann er nú um
150 fermetrar en Bjöm fékk leyfi til
að stækka hann í 300 fermetra.
"Þegar við stækkum komum við
til með að geta þjónað fólki mun bet-
ur,“ segir Bjöm og bendir réttilega á
að Nauthólsvík er ört stækkandi útí-
vistarsvæði. Hann segir að í framtíð-
inni hyggist borgin færa ýmsa útí-
vistarstarfsemi sem nú sé staðsett
víðs vegar um bæinn niður í Naut-
hólsvík og einnig sé von á Háskólan-
um í Reykjavík á svæðið. Það em þvf'
spennandi tímar framundan.
“Staðurinn er sérstaklega vinsæll
hjá konum," segir Bjöm um Kaffi
Nauthól, sem nýverið var breytt í
reyklausan stað. Nýi matseðillinn er
jafnframt sniðinn að fólki í heilsu-
geiranum, þó svo að auðvitað getí
allir fengið eitthvað við sitt hæfi. Að-
sókn á staðinn er að sjálfsögðu mjög
veðurtengd en að sögn Bjöms er þó
alltaf einhver trafiik hvemig sem
viðrar, vetur, sumar, vor og haust.
Krossgátan
Lárétt: 1 dæld, 4 milt, 7
rúmið, 8 kona, 10 lækk-
uðu, 12 viska, 13 munn-
tóbak, 14 snáði, 15 trýni,
16nið, 18klettavík, 21
blóti, 22 hangs, 23 Ijómi.
Lóðrétt: 1 hrúga, 2
hljóðfæri, 3 bálilla, 4 að-
drættir, 5 fas, 6 þvottur, 9
beru, 11 mætu, 16tangi,
17 togaði, 19 gljúfur, 20
upphaf..
Lausn á krossgátu
19J 0£ j|6 61 'ojp ei 'sau 9t 'nu6a6 1t 'm>|ou 6'nei 9 jgæ s'6uoj
-eisiAy'epuoeAios £'oq9 3'so>| 1 :uaJC91 T||6££'j9|s zz‘\ðbei tr'Jnöo 81'ppnu
91 'jau s L '|6ue y 1 'oj>)s £ t 'i|A z 1 'n6is 01 'I9us 8 'Q!|9q L T6æA y 'S9f>| t
1 Talstöðin
■ FM 90,9
Hafliði Helgason ritstjóri Markaðarins fjallar um ýmsa þætti viðskiptalífsins. Alla virka daga kl. 17:30
MARKAÐURINN