Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST2005
Fréttir DV
Rólegt í
Galtalæk
Að sögn Finnboga Finn-
bogasonar gekk Bindindis-
mótíð í Galtalæk vel fyrir sig
og ekkert kom upp á. Á milli
þrjú og fjögur þúsund manns
vom á svæðinu. Mikið var af
fjölskyldu-
fólki á svæð-
inu enda há-
tíðin auglýst
sem fjöl-
skylduhátíð.
Finnbogi
segir að lítið hafi borið á ölv-
un en að áfengi hafi verið
tekið af unglingum undir
átján ára aldri þegar það sást.
Hljómsveitin Á mótí sól og
Raggi Bjama skemmtu ásamt
mörgum fleirum. Lögregla
þurftí ekki að hafa afskipti af
mótsgestum.
Góð þátttaka
á Neistaflugi
Að sögn Höskuldar
Björgúlfssonar forsvars-
manns Neistaflugs gekk
helgin vel. Hann giskar á að
á bilinu 2-2500 gestir hafi
verið á svæðinu. Höskuldur
segir að fólk á öllum aldri
hafi verið á svæðinu og
mikið af brottfluttum
Norðfirðingum. Norðfirð-
ingar vom heppnir með
veður og var bongóbh'ða
alla helgina. Heimamenn
tóku stóran þátt í skemmt-
unum og má þar nefha
hljómsveitina Sú Ellen og
söngvarann Einar Ágúst
Víðisson.
Var helgin góð
fyrir útilegu?
Auðunn Blöndal,
sjónvarpsmaOur á Stöð 2.
„Þetta var algjör klassi. Ég fór til
Akureyrar og fékk þetta frá-
bæra veöur. Maöurslapp að
vísu ekki alveg viö rigninguna
en þetta varsamt ekkert til að
kvarta yfir. Ég er lúmskt mikill
útilegumaður I mér en þaö má
samt sem áöur segja að maöur
skemmti sér oftast ofvel um
verslunarmannahelgina.En til
þess erhún nú gerð. Ég ersem
sagt mjög sáttur viö tjaldferð-
inaog var þetta vel heppnuö
útileguhelgi."
Hann segir / Hún segir
Já, ég myndi segja aö þetta
hafí veriö góö helgi fyrir úti-
legu. Ég var stödd í Vest-
mannaeyjum um helgina. Ég
var aö vísu ekki i tjaldi sjálfen
allir i kringum mig voru i tjaldi
og skemmtu sér mjög vel. Þaö
var svo góö stemning að þaö
stóð öllum á sama þótt þaö
rigndi smá. Ég viðurkenni að
ég er ekki mikil útilegumann-
eskja en ég erþó handviss um
að ég mæti aftur til Eyja á
næsta ári. Þetta er fyrsta úti-
hátlöin sem ég fer á og varð
ég svo sannarlega ekki fyrir
vonbrigðum."
íslendingar þurfa nú að kaupa ADSL-tengingu frá Símanum standi þeim Breið-
bandið ekki til boða. Margir velta því fyrir sér hvort þetta útspil Símans og Skjás
eins standist samkeppnislög. Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins,
segir sitt fólk skoða málið.
Samkeppnisyfirvöld
skoða enska boltann
Deilur hafa staðið um nýjasta útspil Símans. Boltasjúkir íslend-
ingar þurfa nú að kaupa ADSL-þjónustu frá Símanum til að geta
náð enska fótboltanum sé Breiðbandið ekki tiltækt í þeirra
hverfi. Samkeppnisaðilar skilja lítið í málinu og efast um að
þetta tilboð standist samkeppnislög. Samkeppnisyfirvöld eru að
skoða málið.
ir Sverrir Hreiðarsson, markaðsstjóri
hjá Og Vodafone. Hann segir þó að
fyrirtækið hafi ekki tapað miklum
viðskiptum. „Þetta er mun minna en
við áttum von á. Það er mögulegt að
segja upp tengingunni hjá okkur en
vera áfram í netáskrift. Einhverjir
hafa nýtt sér það," segir Sverrir.
Ekki náðist í Evu Magnúsdóttur,
upplýsingafulltrúa Símans, þrátt fyr-
irítrekaðartilraunir. kjanan@dv.is
„Já, það er verið að skoða þessi
mál í Samkeppniseftirlitinu í fram-
haldi af ákvörðun samkeppnisráðs
fyrr á þessu ári," segir Páll Gunnar
Pálsson, forstjóri Samkeppniseftir-
litsins, og vísar þar til ákvörðunar
samkeppnisráðs þann 11. mars síð-
astliðinn. Samkeppnisráð fjallaði
um kaup Símans á meirihluta í Skjá
einum og hvemig samskiptum á
milli fyrirtækjanna er háttað.
Hive semur við Símann
Intemetfyrirtækið Hive hefur
möguleika á
að bregð-
ast VÍð |i>—IIIIIHIIHIl I i'HI
a ö-
gerðum Símans til að halda við-
skiptavinum sínum með samningi
sem stendur þeim til boða. Enn sem
komið er virðist það hafa virkað því
Arnþór Halldórsson, ffamkvæmda-
stjóri Hive, segir fyrirtækið ekki hafa
tapað viðskiptum.
„Það hefur ekki borið á því enn
sem komið er að við höfum tapað
viðskiptavinum. Okkur stendur til
boða að gera samning við Símann.
Þeir notendur sem vilja fá enska
boltann geta fengið tengingu hjá
Símanum en verið áfram í áskrift hjá
Hive.“ Amþór er þó ekki sáttur við
hvemig málunum er háttað hjá Sím-
anum. „Það má setja ákveðið spurn-
ingarmerki við þessa stefnu. Sím-
irm, í kraftí fjárhagslegs styrks,
kaupir þetta sjónvarpsefni á
uppsprengdu verði og notar það
sem gulrót til þess að auka inter-
net-viðskipti sín."
„Okkur stendur til boða
að gera samning við Sím-
ann. Þeir notendur sem
vilja fá enska boltann
geta fengið tengingu hjá
Símanum en verið áfram
í áskrift hjá Hive.“
■. *»■
f Stenst ekki samkeppnis-
f lög
| „Við teljum þetta ekki standast
samkeppnislög. Við emm ósáttir
við að þeir komist upp með að nýta
sér ráðandi stöðu á einu sviði til
þess að auka viðskipti á öðm," seg-
Tilboð Tilþess að sjá enska bolt-
ann þarf nú að kaupa ADSL-teng-
ingu hjá Slmanum, standi Breið-
bandiö ekki til boða.
Ósáttur Sverrir Hreiðarsson,
markaðsstjóri Og Vodafone, er
ekkisáttur við markaðsbrellu Sim-
ans. Sverrir segir þó Og Vodafone
ekkihafa tapaö viðskiptavinum.
Skoðar málið PállGunnarPáls-
son, forstjóri Samkeppniseftirlits-
ms, er að skoða málið eftir ákvörð
un samkeppnisráðs fyrr á árinu.
3 I Semur við Sfmann
|j J Arnþór Halldórsson,
Æ framkvæmdastjóri Hive,
.Jm er ósáttur við nýjasta út-
BB&i spil Símans en tekur vel í
H samning sem Hive stend-
Murtilboða.
Erilsamt hjá lögreglu í Vestmannaeyjum
Ferðamenn í leit að fögnuði fengu áfall
Þjóðhátíð í Eyjum fór vel fram
Varðstjóri Lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum segir að Þjóðhátíð hafi
farið að mestu leyti vel fram. Hátíðin
hafi farið ákaflega vel af stað en mál-
um fjölgaði þó nokkuð á sunnudags-
nóttina.
Tæplega 30 fíkniefnamál komu
upp í Eyjum um helgina. f flestum til-
vikum var um að ræða lítilræði sem
ætíað var til einkaneyslu. Lögregla
lagði hald á 31 gramm af amfetamíni,
14 grömm af kannabisefnum, 3 E-
töflur, 3 skammta af LSD, ásamt lítil-
ræði af kókaíni. Einnig hafði lögregla
afskiptí af tveimur ölvuðum öku-
möimum um helgina.
Þijár líkamsárásir voru kærðar til
lögreglu en tvær alvarlegustu árásim-
ar komu upp á sunnudagsnóttina. í
öðm tilvikinu réðust tveir menn' að
nítján ára manni og spörkuðu í andlit
hans. Hann var fluttur með sjúkra-
flugi til Reykjavíkur en var útskrifaður
þaðan í gær. í hinu tilvikinu var mað-
ur sleginn í andlitið með jámröri með
þeim afleiðingum að hann skarst í
andliti og nokkrar tennur bromuðu.
Enginn leitaði til neyðarþjónustu
vegna kynferðisglæpa sem er óvenju-
legt miðað við undanfarin ár þar sem
ávallt hafa komið upp tvær til þijár
kærur vegna nauðgana.
hordur@dv.is
Fámennt á Þingvöllum
„Verslunarmannahelgin gekk
mjög vel og það vom engin vand-
ræði í gangi. Enda var nánast enginn
á svæðinu," segir Páll Koika, land-
vörður á Þingvöllum.
„Þetta var eiginlega eins og
venjuleg helgi í júní eða eitthvað
slíkt. Ætii veðrið hafi ekki haft mikil
áhrif á fólk varðandi val á tjaldstæði.
Það var ekki einu sinni búinn til
varðeldur en fólk á það til að kveikja
í einum slíkum í góðu tómi. En það
er auðvitað harðbannað enda em
Þingvellir þjóðgarður.
Langflestir tjaldgestir vom út-
lendingar sem vom búnir að frétta
að verslunarmannahelgin væri eitt
stórt partí. Þeir fengu því áfall þegar
þeir sáu hversu lítjð var af fólki á
svæðinu. Ef þeir vom að leita að
villtum fagnaði völdu þeir rangan
stað. Tjaldstæðið á Þingvöllum er
vinsæll áfangastaður fyrir helgar-
Þingvellir eru vinsæll áfangastaður á
sumrin fyrir útilegufólk En svæðið var
nánast mannlaust um helgina.
túra. En þar sem engin skipuiögð
skemmtiatriði eða stærðarinnar
varðeldur er á svæðinu um verslun-
armannahelgina getur maður ekki
búist við að fólk fjölmenni á staðinn
í meiri mæli en venjulega. Enda er
heilmikið úrval af vel skipulögðum
útihátíðum vfðsvegar um landið,"
tekur Páll fram.