Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Page 22
22 ÞRIÐJUDACUR 2. ÁGÚST2005
Fjölskyldan DV
Ljúffengt pastaá 20 mínútum
í DV á þriðjudögum
Hráefnl:
Hálft klló afskinnlausum kjúklingabringum
Óllvuolía, I bolli vatn
2 teningar af kjúklingakrafti
2 teskeiöar afsaxaðri steinselju
3/4 bolli afrauðri papriku
1 teskeið af hvltlauksmauki
Lltil dós afsveppum
Hálft klló af makkarónum (olnbogalaga)
1/4 bolli afsneiddum svörtum óllvum
Aðferö:
Skerðu kjúllann I bita og steiktu þá á pönnu I
ólivuollu. Bættu við vatninu, kraftinum, stein-
selju, hvítlauk og sveppum. Láttu malla I tlu
mínútur. Bættu við pastanu og óllvunum og
láttu malla I fimm mínútur I viðbót. Hrærðu
aðeins i og berðu fram.
Kjúklingapasta Einfaltoa
fljótlegt.
Flóð-
hestastóll í
ferðalagið
Það er kominn nýr stóll frá
Chicco sem kallas t hinu
skemmtilega nafni Hippo-hook-
on-chair, eða flóðhesta festistóll.
Þessi nýi stóll er víst tilvalinn í
ferðalagið og vegur einungis þrjú
kHó. Hægt er að smella honum á
borð og er öryggisbúnaðurinn
talinn til fyrirmyndar. Hann er
auðveldur í meðförum og hægt
að leggja hann saman og að auki
fylgir með ferðapoki úr næloni.
Litskrúðugir
hraunlampar
Hraunlamparnir frægu sem
vinsælastir voru á hippatímabil-
inu eru enn nokkuð eftirsóttir.
Lampinn er gerður úr ílöngu
glerhylld á fæti og inni í hylkinu
er vax sem liðast endalaust um
þegar það hitnar. Vaxið getur
verið í hvaða lit sem er og fallegt
er að horfa á það.
Lampinn var hannaður af
Craven nokkrum Walker og
nefndur „lavalamp" og höfðu
tvær milljónir lampa selst þegar
hippatímabilið stóð sem hæst.
Tíu árum eftir að lampinn kom á
markað minnkaði æðið fyrir
honum, en fólki virðist alltaf
hafa líkað útlitið og er hann
ennþá í framleiðslu. Hinir
heppnu geta kannski rekist á
svona lampa í Kolaportinu en
einnig hægt er að kaupa þá nýja
á nokkra þúsund kalla.
Komdu sæl Valgerður!
Málið er eiginmaður minn.
Við eigum tvær
dætur, tveggja
og sex ára. Sú
yngri hefur
verið ansi dug-
leg við að tína upp alls kyns
pestir og hún fær mjög oft í
eyrun. Það þýðir að ann-
að hvort okkar verður
að vera heima hjá
henni og ég verð
næstum alltaf
fýrir valinu. Ég er
mjög ósátt við það.
Égþarfaðstanda
við mínar
skuldbindingar
alveg eins og
hann, þótt hann þéni meira.
Kveðja Lóa
Sæl Lóa.
Að samræma fjölskyldulíf og
starfsframa getur tekið á, sérstak-
lega þegar fólk á ung börn sem
þurfa umönnun og athygli, ekki síst
þegar þau eru veik. Foreldrum er
tryggður ákveðinn réttur til að ann-
ast börn sín í veikindum. Löggjaf-
inn leggur líka ákveðnar skyldur á
herðar foreldra og ætlast meðal
annars til að þeir axli jafna ábyrgð á
börnum sínum, annist uppeldi
þeirra í sameiningu, skipti með sér
verkum og hjálpist að við vinnu á
heimilinu.
Hvernig foreldrarnir nýta rétt
sinn til að sinna veikum börnum og
hvort hann sé nógu rúmur er annað
mál. Sama á við um skyldurnar.
Ekki raunverulegt val
í bréfl þínu kemur fram að
þú verðir oftast fyrir „valinu"
þegar sinna þarf dóttur ykkar
veikri. Einhvern veginn leyfi ég
mér að draga í efa að um raunveru-
legt val sé að ræða af þinni hálfu. Ef
svo væri værir þú varla svona ósátt
við hlutskipti þitt.
Ýmsar rannsóknir hafa sýnt að
útivinnandi konur taki oft meiri
ábyrgð á fjölskyldunni en útivinn-
andi karlar. Þó má merkja ákveðnar
breytingar, meðal annars með til-
komu fæðingarorlofs feðra sem er
líklega eitt af mikilvægari skrefum
sem stigin hafa verið í jafnréttisbar-
áttunni hér á landi. Markmið þeirra
laga er meðal annars að gera bæði
konum og körlum kleift að sam-
ræma fjölskyldu- og atvinnulíf.
Jafnmikil áhætta
í raun þýðir þetta að það er jafn-
mikil „áhætta" fyrir vinnuveitanda
að ráða karl til starfa eins og að ráða
konu, og dregur úr líkunum á að
ungar konur verði spurðar óviðeig-
andi spurninga í atvinnuviðtölum
eins og til dæmis hvort þær „hugsi
sér að stofna fjölskyldu". Nær væri
að sá sem sækti um vinnu spyrði
vinnuveitandann um fjölskyldu-
stefnu fyrirtækisins og hvemig
komið sé til móts við launþegana
þegar vandamál eins og veikindi
barna koma upp.
Hvort foreldranna er heima hjá
veiku barni eða tekur lengra fæð-
ingarorlof getur ráðist af mörgu,
svo sem rótgrónu kynhlutverki.
Ætla má að (kynbundinn) launa-
munur hafi veruleg áhrif á ákvarð-
anir foreldra sömuleiðis. Að konan
verði frekar fyrir „valinu" en karlinn
þar sem hún hefur oft lægri laun en
hann. Meiri fjarvera getur síðan
minnkað líkurnar á að fá stöðu-
hækkun eða úthlutað áhugaverð-
um verkefnum.
Ánægja í einkalífi eykur
starfsgleði
Út frá jafnréttissjónarmiði er því
mikilvægt að bæði karlar og konur
taki þátt í uppeldi barna sinna og
sinni þeim jafnt í veikindum þeirra.
Með jafnri þátttöku eru meiri líkur á
því að forskot karlanna á vinnu-
markaðnum hverfi og að fólk kom-
ist áfram á eigin verðleikum frekar
en kynferði. Að auki sýna kannanir
að þeir sem sinna fjölskyldu sinni
þykja betri starfsmenn en þeir sem
láta vinnuna sýknt og heilagt ganga
fyrir. Ánægja í einkalífi eykur starfs-
gleði.
Við ákvörðun um hvort foreldr-
anna eigi að vera heima með veiku
barni þarf að taka tillit til fleiri at-
riða en stöðu og tekna. Raunar er
líklegt að það hafi í mörgum tilvik-
Veikindi barna Geta
haft mikil áhrifá fjöt-
skylduaðstæður en
mikilvægt er að allir
aðilar vinni saman.
um minni afleiðingar fyrir það for-
eldrið, sem gegnir hærri stöðu og
aflar meiri tekna, að taka sér frí
vegna veikinda barna. Sá sem er í
ábyrgðarstöðu ætti að eiga jafn
auðvelt með að vera heima hjá
veiku barni og að skjótast í laxveiði-
ferð eða eitthvað álíka. Þetta er allt
spurning um viðhorf og forgang.
Það er ekkert réttlæti í því að þú
ein axlir ábyrgð á að annast veikar
dætur ykkar, sem svo sannarlega
eiga sinn rétt á að vera heima í ró og
næði þegar þannig stendur á. Leik-
skólar og skólar gera líka kröfu um
að veik börn séu heima svo að þau
smiti ekki aðra.
Val að ganga í báðar áttir
Þú þarft að koma maka þínum í
skilning um að hann, einsog þú,
verður að leggja sitt af mörkum og
deila með þér ábyrgð á fjölskyld-
unni. „Valið" verður að ganga í báð-
ar áttir og mun það að öllum lfkind-
um skila sér í betri tengslum hans
við dæturnar og ánægjulegra fjöl-
skyldulífi svo eitthvað sé nefnt.
Því má heldur ekki gleyma að
aukin og jöfn þátttaka ykkar í fjöl-
skyldulífinu veitir dætrum ykkar
gott veganesti og gott fordæmi um
jafnrétti í reynd.
Ýmsar áhugaverðar upplýsingar
og greinar um samþættingu vinnu
og fjölskyldulíf er að finna á slóð-
inni www.hgj.is
Með kveðju, Valgerður Halldórsdóttir fé-
lagsráðgjafi.
M neta Ma
Um þriggja ára aldurinn má gera ráð fýrir að
bamið geti hjálpað sér aðeins sjálft. Þá ætti barn-
ið að geta klætt sig sjálft án mikilla vandræða en
hnappar munu eflaust reyna á þolrifin. í lok ársins
verða hneslur og rennilásar leikur einn.
Grófhreyfingar eiga að vera orðnar ansi góðar
og bamið getur hjólað á þríhjóli, stokkið, klifrað
og einnig staðið örlitla stund á öðrum fæti. Núna
verður mikil breyting á því hvemig þau ganga upp
stiga og á þessum aldri em þau farin að fara upp
tröppurnar með sama lagi og fullorðnir hafa á því.
Á fjórða ári lengjast setningar barna til muna,
frá því að vera um þrjú orð á þriggja ára afmælinu
og upp í um fimm orð á fjórða afmælinu. Um
þetta leyti em flest böm einnig orðin vel skiljanleg
ókunnugum.
Þegar barnið hefur náð betri tökum á fornöfn-
um, ég, mig, við..., er það komið á það þroskastig
að það fer að spytja fleiri spurninga.
Böm sem em nýorðin þriggja ára þekkja oftast
einhveija liti en á næstu mánuðum fara þau að
þekkja formin og læra kannski nokkra stafi. Sum
þeirra taka einnig upp á því að skrifa stafi.
Flest þriggja ára böm geta bæði teiknað hring
Þriggja ára gamalt barn
Getur myndað setningar úr
þremur til fimm orðum.
og kross. Myndir af mannfólki em oft ansi
groddalegar í byrjun og lítið er lagt í smáat-
riðin en brátt fer bamið að bæta útlimum
við.
Ef eftirfarandi á við um barnið væri
kannski lag að láta sérfræðing kíkja á það:
1. Bamiö myndar ekki setningar.
2. Annað fólk á erfitt með að skilja hvað
bamið segir.
3. Bamið leikur sér ekki í þykjustuleik.
4. Bamið getur ekki leikið sér og/eða
deilt með öðmm.