Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Blaðsíða 31
rxv Lífíð
Nú gengur sú saga um Hollywood að hinn kvænti Johnny
Knoxville sé í tygjum við fyrirsætuna Kate Moss. Þau hafa
sést hlæjandi saman og í góðu yfirlæti á klúbbum stórborga,
en neita því að vera nokkuð annað en vinir. Kate er nýhætt
með Pete Doherty og nú slæst Johnny Knoxville vegna henn-
ar. Hvað er í gangi, maður bara spyr?
Nú eru allir slúðurfréttamenn á
tánum vegna skyndilegrar vináttu
Jackass-vitleysingsins Johnny Knox-
ville og ofurfyrirsætunnar Kate
Moss. Þau hafa sést saman í ýmsum
veislum, húæjandi og vel farið á með
þeim. Johnny KnoxviIIe er kvæntur
konunni Melanie, en þau gengu í
hjónaband árið 1995. Þau eiga sam-
an eitt bam. Kate Moss var að hætta
með ruglaranum og tónlistarmann-
inum Pete Doherty. Á sunnudags-
kvöldið sáust þau
skemmta sér saman en
það var mjög
skömmu eftir að
Kate Moss sagði
skilið við Doherty.
Nú síðast voru
þau stödd í næt-
urklúbbi í New
York og lenti
Knoxville í
harkalegum
slagsmál-
um vegna
Kate. Fjöl-
miðlafull-
trúar þeirra
segja að
ekkert sé í
gangi á milii
þeirra og að
þau séu að-
eins vinir.
Tók þekkt glímubragð
Ekkert hefur fengist endanlega
staðfest um meint slagsmál Johnnys
Knoxville á næturklúbbnum Milady
en margar sögur eru í gangi og vitni
hafa gefið sig fram við fjölmiðla.
Eftir því sem DV kemst næst var það
ungur maður sem áreitti Kate Moss
ítrekað sem olli slagsmálunum.
Hann nuddaði stöðugt rauðri rós í
andlit fyrirsætunnar og þegar Knox-
ville bað hann um að fara reyndi
hann að gefa Knoxville rósina. Á
endanum tók Johnny manninn,
snéri honum á hvolf og skellti
honum svo á hausinn. Þetta er
þekkt glímubragð og gengur
iðulega undir nafninu „pile-
driver". Johnny snéri sér svo
við og taldi að samskiptum við
manninn væri lokið.
Rekinn út alblóð-
ugur
Maðurinn lét ekki
þar við sitja og í
hefhdarskyni reyndi
hann að kasta flösku í
Knoxville. Flaskan
missti marks en
brot úr henni end-
uðu í
höndum Jackass-drengsins og var
hann því allur skorinn og blóðugur.
Frank Genovese, rekstrarstjóri
Milady, sagði við fjölmiðla að
„Johnny hefði ekki skapað nein
vandræði en það þurfti að biðja
hann um að yfirgefa staðinn. Vitni
að atburðinum segja að maðurinn
hafi virkilega angrað Kate og að ein-
hver hafi hreinlega þurft að kjást við
hann.
halldorh@dv.is
Arnar Eggert Thoroddsen flytur til Berlínar
„Ég er að flytja tii Berlínar ásamt
fjölskyldunni og við þurfum að losa
okkur við sem mest," segir Arnar
Eggett Thoroddsen um garðsöluna
sem fór ffam fyrir utan heimili hans
á Sólvallagötu 54 um helgina. Arnar
segir þó að mikilvægustu hlutimir
eins og sjónvarpið og græjumar fylgi
þeim út. Arnar sem er mikill tónlist-
arspekúlant og hefur skrifað um
tónlist í Morgunblaðið um árabil,
seldi þó ekki diska- og plötusafnið
sitt, en sagði að þama hefðu verið
seldir vel valdir og vandaðir bastarð-
ar sem vöktu athygli og eftirtekt
þeirra sem komu.
í Berlín segist Amar ætla að sinna
ungri dóttur sinni og hennar upp-
eldi fyrst um sinn. Hann ætlar að
halda áfam með einhver lausaskrif í
Morgunblaðið, svo tónlistar-
unnendur þurfa ekki að örvænta,
pistlarnir verða á sínum stað.
„Seinna meir ætla ég svo að
mennta mig í einhverju," segir Arnar
• •
KVADDIMEÐ GARÐSOLU
en hann hefur nú þegar lokið BA-
gráðu í félagsfræði frá Háskóla ís-
lands. „Vonandi mennta ég mig í
einhverjum menningarfræðum,"
segir Arnar. Þegar DV náði tali af
Arnari var hann á leiðinni á Innipúk-
ann og var mjög spenntur.