Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Side 32
32 ÞRIÐJUDACUR 2. ÁGÚST2005
Lífið DV
Unnar Fréyr, U-Fresh, U-Manden. Byrjaði sem
plötusnúður áður en hann gerðist rappari til
þess að sanna fyrir vinum sínum að rapp væri
ekkert mál. Hann er í Hæstu hendinni og rappar
á íslensku þó að hann geti varla skrifað hana.
Platan fékk Qórar stjörnur. Hann segist miklu
betri á dönsku. Unnar segir íslenskt rapp yfir-
fullt af drasli og hann er ekkert hræddur við að
segja það, í rauninni var blaðamaður DV frekar
hræddur við hann.
„í fyrstu fannst mér íslenskt
rapp mjög þjált og tært. Síð-
an komst ég að því að það
er hellingur af djöfulsins
skíthælum þarna líka."
„Fjárinn. Ferskt loft og hreint
vatn. Ég elska ísland maður. Ég elska
bara að heimsækja fjölskyldu mína £
Bíldudal og í Reykjavík. Hitta vini
mína, Matta, Eyjó, Nalda, Erp og alla
hina. Náttúran er svo mjög flott en ég
nýt hennar í botn þar sem ég bý ekki
á íslandi. Maturinn er góður og fólkið
líkist mér, þetta vlkingaútlit," segir
Unnar Freyr rappari þegar hann er í
fyrstu spurður um hvemig honum
líki við Island.
Hvað líkar þér þá ekki á íslandi?
„Vandamálið við svona lítíð land
eins og ísland er spillingin. Þetta er
ekki eins og Pakistan eða eitthvað í
líkingu við það heldur er þetta frekar
það að allir þekkja alla og það er ekki
gott í stjómmálum. Annars er allt í
góðu."
Skíthælar í íslensku rappi
Danski rappheimurinn er frekar
stór. Hvað finnst þér um íslenskt
rapp?
„í fyrstu fannst mér íslenskt rapp
mjög þjált og tært. Síðan komst ég
að því að það er hellingur af djöfuls-
ins skíthælum þarna líka. Það em
svalir plötusnúðar eins og Magic,
Paranoya, Deluxe, Robbi Rapp og
Brynjar Már, hehe. En restin er öm-
urleg. Stelur bara af öðmm og ég hef
oft verið með virtum plötusnúðum í
Danmörku að gera grín að þessu
liði. Þeir þykjast vera svaka svalir og
„halda því raunvemlegu", en í raun
eru þeir bara að stela, það er ekki
„að halda því raunverulegu". Það
var samt einn sem hét Dj Fingaprint
hann var mjög góður. Hvar er hann
í dag?"
„Hvað varðar rapparana þá bara
hreinlega veit ég það ekki. Rottweiler,
Sesar A, Bæjarins bestu og allur sá
hópur kom með eitthvað ferskt inn í
rappið, afgangurinn er eitthvað grín.
Ég hef ekki hlustað á alla en þeir sem
ég hef tékkað á em glataðir. Af þeim
sem rappa á ensku em Antlew/Max-
imum bestir. Þeir em ferskir og mfnir
menn. Mér var sagt frá hljómsveit
sem heitír O.N.E, að þeir væm ferskir
en ég á eftir að athuga það. Allt ann-
að er drasl. Graffið á íslandi er samt
mjög flott."
Orðinn rólegri núna
Unnar segir að það hafi verið erfitt
að alast upp sem útlendingur í Kaup-
mannahöfii. Hann fór snemma að
slæpast með röngum hópi og gera af
sér hlutí sem hann vill ekkert ræða.
Hann segist hafa lært á lífið á erfiðan
hátt og orðið forhertur við það.
„Ég var alinn upp á Amager og
það er hlutí af Kaupmannahöfn sem
var félagslega brenglaður," segir
Unnar. „Vinir mínir vom svo líka út-
lendingar svo við skildum hvom
annan, þess vegna fór ég lfklegast út í
hip hop. Af því að ég var öðmvísi."
Á tímabili hugsaði Unnar
eingöngu um tónlist og skeytti
ekkert um skólann. Á endanum
tók hann sig til og fór í mennta-
skóla og svo í háskóla þar sem
hann náði sér í mastersgráðu í al-
þjóðaviðskiptum.
„Ég þakka mömmu og pabba fyrir
allt það. Þau hvöttu mig áfram til að
læra. Þau gefast aldrei upp sama
hvað blæs á mótí, þau em fyrirmynd-
ir mínar í lífinu."
Unnar segir að lífið sé öðmvísi
núna. Hann er rólegri og getur unn-
ið í sínu fagi og búið til tónlist. „Kon-
an mín Monice hefur svo umborið
mig í þrjú ár núna ásamt litlu af-
gönsku-vfkinga-dóttiir mín Cloé
Taherem," segir Unriar og bætir því
við að fjölskyldan sé númer eitt, tvö
ogþrjú.
Ekkert lamb að leika við
Spurður hvort sögumar um að
hann sé hrottí séu sannar segir Unn-
ar það fara algerlega eftír skilgrein-
ingunni. „Fólk segir það, svo það er
eitthvað til í því, en ég myndi ekki
lýsa mér þannig," segir Unnar. „Ég er
alltaf hamingjusamur en ef éinhver
lítilsvirðir mig viljandi þá svara ég í
sömu mynt, og ég er Hijög skapvond-
ur."
Unnar segist þó ekki aetla að kalla
sig bófa eða hrotta, „óg er víkingur og
ég læt fólk vita af mistökum sínum
með orðum eða afli."
Er það satt að þú hafir einu sinni
skallað mann út úr strætó uppi í
Árbæ?
„Ó, já, og hann átti það skilið líka."
Þekkti keðjusagarmorðingj-
ann
Eftír þetta formlega viðtal spjallaði
blaðamaður lengi við Unnar. Hann
sagði frá áætlunum sínum með danska
rappið og ýmsum skemmtilegum sög-
um, eins og þeirri hvemig hann kynnt-
ist Erpi árið 1994. „Hann var með sítt
rauðbirkið hár, nastý stöff," segir Unn-
ar. Unnar segir einnig frá því að félagi
hans Jared Heller, sem las meðal ann-
ars inngang fyrir Hæstu hendina á 50
Cents tónleikunum, hafi verið einn af
þeim sem eftírlýstir voru fyrir að saga
leigubílstjóra í sundur í Kaupmanna-
höfn í vor. Unnar segir ótrúlega sögur.
Sögur sem maður hefur aðeins lesið í
bandarískum rappblöðum og mann
grunar ekki að þær getí gerst á Norður-
löndunum.
halldorh@dv.is
15 staðir sem Unnar
heimsækir á íslandi
*•
i ÍSJiííXlÚH SL’J®ub Hey; á hverjum einasta fimmtudegi er hiphop og r'n'b (Boltens Gárd. Goð-
sagnakenndír plötusnúðar Phil, Phase 5 & Streetbeat.
2.
OPUS EXODUS GRILLIÐ
Heimavöllur F.C. Copenhagen sem er mitt lið. Ef þú fílar fótbolta er þetta bomban.
FJOLSKYLDAN OPUS REX
th ! i ’Iá Ul ‘Æ kengst niðri á Nörrebro, besta kebab i heimi. Chili-ið er lika frábært.
4.
BÆJARINS BESTU BÍLDUDALUR PRIKIÐ
Fersk föt á Larsbjörnsstræde.
ASIA
Mjög góð á Islandi
TIVOLÍ Rappstúdíó
LAUGARDALS-
OPUS í þessari röð
5.
.(*V[cf:' Mi" iV■ Garður(miðri Kaupmannahöfn.Þarer hægtaðtaka því rólega. Ef mann langar
f körfubolta þá er „streetball"-ið þarna.
6.
Nálægt Nörreport lestarstöðinni, geðveikur arabfskur matur.
7.
Vega er margra hæða skemmtistaður og alft fullt af góðum
plötusnúðum. Á fimmtudögum er svo hiphop-kontoret og þar er geðveik tónlist. Svo hafa Nas, Krs One
spitað þar. Ég Ifka.
8.
I: í' Uifj.' 1 Lfka f Larsbjörnsstræde. Vfnyl-plötur og föt.
9.
Geðveikur klúbbur. Á miðvikudögum eru „midweek breaks" og þá eru flottir plötu-
snúðar. Frábær klúbbur og svo slattl af tónleikum. Ef þú ert í skotheldu vesti ertu velkominn.
hvUxLk HjáRundeliNörrebro.Góðurmaturádaginnoggóðirplötusnúðar.Égspila
þarna af og til.