Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2005, Page 39
DV Síðast en ekki síst
ÞRIÐJUDAGUR 2. ÁGÚST2005 39
Sigurjón Kjartansson brá sér á Nordica-hótel á fimmtudag til að vera viðstaddur þegar
einkavæðingarnefnd opnaði tilboðin í Símann. Hann blandaði sér í hóp mikilmenna.
Síðast en ekki síst
Valdablokk
hinna ríku
Og ég fékk ad
fljóta með.
Fór á Nordica-hótel til að vera við-
staddur þegar einkavæðingarnefnd
opnaði umslögin með tilboðunum í
Símann. Vildi tryggja að gagnsæið yrði
með þeim hætti sem lofað var. Nei,
reyndar langaði mig bara að blanda
mér í hóp hinna ríku og mikilvægu.
Fannst einhvem veginn eins það væri
ekki nógu mikið mark á mér tekið og
vera mín á Nordica þennan fimmtu-
dag gæti hugsanlega breytt því.
Og viti menn. Ég var ekki fyrr kom-
inn inn fyrir dymar en mér var tekið
fagnandi með handabandi af Stein-
grími Ólafssyni, upplýsingafulltrúa
forsætisráðuneytisins og Sigurði G.
Guðjónssyni, verðandi fjölmiðla-
mógúi, sparisjóðseiganda og fremsta
lögmanni landsins.
Þama var líka krökkt af fjölmiðla-
mönnum, sem allir brostu þegar þeir
sáu mig og ég brosti á móti. „Er það
útvarpsstjórinn?" sögðu margir. „Jú
jú, he, he, he,“ sagði ég. „He, he, he,“
sögðu þeir þá.
Þegar inn í salinn kom settist ég hjá
fjölmiðlafólkinu og Sigurður G. settist
hjá mér. Ég reyndi að fá það út úr hon-
um hvort hann væri þama vegna
hagsmuna. Var hann kannski sjálfúr
að bjóða? „Nei, ég bara steingleymdi
að leggja inn tílboð," sagði hann. Ég
get aldrei gert mér grein fyrir því
hvenær svona menn em að grínast og
hvenær ekki. Ákvað því að spyrja
hann einskis frekar um þessi mál. Það
gat vel verið að hann hafi ekki verið að
grínast. Maðurinn nýbúinn að kaupa
Sparisjóð Hafnafjarðar... eða var það
ekki annars?
Fyrst þurftum við að sitja
undir alveg ótrúlega leiðin-
legri ræðu einhvers jakkafata-
manns. Kannski var ræðan
mjög skemmtilega skrifuð en
hún varð ótrúiega „döll" í
þessum flutningi. Eftír kortér
var svo loksins komið að mó-
mentinu sem allir biðu eftír.
Þrír aðilar afhentu hverjir sín
umslög og þau vom opnuð
hvert á fætur öðm. Nýja sfma-
félagið: 54. 674.780.332.
Sigurjón
Kjartansson
skrifar IDV mánudaga,
þriðjudaga,
miövikudaga og
fimmtudaga.
Astrónómískar tölur sem ég get ekki
einu sinni sagt upphátt. „Þetta er ör-
ugglega lægsta boðið," muldraði Siggi
G. með sjáifum sér. Vá! Ég er í félags-
skap mikilmenna, hugsaði ég. Næsta
boð: Sfrnstöðin 60.000.000.000. Sextí'u
milljarðar, sléttar. Jæja þá er það búið,
hugsaði ég. Þeir hafa unnið.
Hálfvorkenndi þeim samt að þurfa að
reiða fram alla þessa upphæð.
En, nei. Þá býður Skiptí heil-
ar 66.700.000.000. Kommon! Vá
hvað það hlýtur að vera gaman
að eiga Sfrnann maður. Það var
ljóst. Sfrninn var seldur Skiptí.
„Hvaða valdablokk er þetta?"
spurði ég manninn við fdðina á
mér. „Framsóknarflokkurinn
og Sjálfstæðisflokkurinn,"
sagði hann og stóð upp. En ég
sat eftír og hugsaði. Vá! Hvem-
ig komst ég hingað inn? Ég er
ekki einu sinni með blaða-
mannapassa.
/ ■ .. . :
- £ -
œsg&MBé'
MBBSEGgsrjáefö.’
■
. - -■
Gola ca'W
plsS e2
Það verður erfitt að sleppa
við rigningu á landinu á
morgun. Þeir sem eru enn í
útilegu ættu þó að hafa
hraðann á og drífa sig upp
á Melrakkasléttu því þar
virðist einna helst ætla að
hanga þurrt Það verður
samt hlýtt á landinu öllu
og litill vindur.
ev
»44^
Gola
lÍIj Gola
15 *
Gola
Gola
Oo
9 nTr
(£lb\
**
Gola
130
**
Hin?
10
i
13*0 16Ó2>
W
Kaupmannahöfn 20 París 23 Alicante 28
Ósló 21 Berlín 22 Milano 28
Stokkhólmur 23 Frankfurt 23 New York 33
Helslnki 21 Madrid 26 San Franclsco 20
London 24 Barcelona 26 Orlando/Florida 35
Andra Ólafssyni
• Heyrst hefur aðjóhann G. Jó-
hannsson, betur þekkt-
ur sem Bárður í Stund-
inni okkar, hafi landað
litlu hlutverki í Clint
Eastwood myndinni
Flags of our fathers.
Dramatísk breyting á hlutverkavali
svo ekki sé meira sagt. Bara von-
andi að litíu bömin slysist ekki tii
að sjá Bárð sinn murka lífið úr
japönskum hermönnum. Hefði ef-
laust alvarleg áhrif á ungdóminn.
Frábær frammistaða Jóhanns í
Stundinni hafði að sögn kunnugra
úrslitaáhrif í ákvörðunni um að
ráða hann í hlutverkið.
• Margir halda því fram að frænd-
fólk og fyrirmenni hafi fengið for-
gang við lóðaúthlutun í Kópavogi.
Ef það er rétt er ansi líklegt að Krist-
ín Soffía Þorsteinsdóttir hafi sofið
vært nóttina áður en niðurstöður
bæjarráðs vom kynntar, því auk
þess að vera kona
Ólafs Stefánssonar
handboltahetju er hún
dóttir Þorsteins Einars-
sonar formanns HK og
starfsmannastjóra
Kópavogsbæjar.
• Ekki amalegt hjá nýskipuðum
bæjarstjóra Kópavogs, Gunnari I.
Birgissyni, að fá til bæjarins í einni
lotu besta handboltamann íslend-
inga, besta knattspymumanninn
og besta kylfinginn. Óli Stef, Eiður
Smári og Birgir Leifúr verða án efa
mestu mátar innan skamms. Fara
örugglega saman og fá
sér bjór á Players - eða
sjóv hjá Geira á Gold-
finger. Bæjarstjórinn
með bassaröddina hittí
nefnilega naglann á
höfuðið hér um árið
þegar hann sagði svo eftirminni-
lega: Það er gott að búa í Kópavogi.
• Svalasta rokkhljómsveit Dana,
síðan Gasolin og Kim Larsen vom
upp á sitt besta, heitir The Raveo-
nettes. Sveitin spilaði á vel heppn-
aðri Innipúkahátíð Grfrns Atlasonar
um helgina og sló í gegn. Allir helstu
rokkhundar Reykjavíkur vom búnir
gera sér vonir um að berja goðin
augum á einhverri af knæpum borg-
arinnar um helgina. En í stað þess
að þamba bjór á Eliefunni eða sötra
Jack Daniel’s á Kaffibamum skelltí
The Raveonettes sér á La Primavera
í fylgd með engum öðrum en Sigga
Hali, eina kokknum á íslandi sem er
frægari en Jói Fel. Að sögn við-
staddra sá Siggi til þess að Danimir
fengu besta borðið á staðnum sem
og þjónustu eins og
hæffr alvöm rokk-
stjömum. Ekki er vitað
til þess að Siggi hafi
fylgt fleiri rokkstjömn-
um um bæinn þessa
helgi.
• Margir menntskælingar sem
hugðust eyða verslunarmannahelg-
ini á Innipúkanum urðu heldur
skúffaðir þegar þeim var meinaður
aðgangur að Nasa, en þar var há-
tíðin haldin. Dyraverðir staðarins
vom harðir á 20 ára
aldurstakmarki og
meinuðu 18 og 19
ára krökkum aðgang
þótt aðgangsmiða á
hátíðina væri fram-
vísað. Þóttí þetta
harðneskjulegt af
dyravörðunum enda kostaði miði á
innipúkann tæpar fjögur þúsund
krónur. Grímur Atíason, skipuleggj-
andi hátíðarinnar, brást skjótt við
og lofaði menntskælingunum end-
urgreiðslu. Hugulsamt af Grími en
varla sárabætur fyrir ónýta verslun-
armannahelgi.