Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005
Fréttir 0V
Ingibjörg
áminnt"
Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, alþingismaður Sam-
fylkingarinnar, var í gær
áminnt af Birgi Ármanns-
syni, þriðja varaforseta Al-
þingis, fyrir að ávarpa ekki
rétt forseta Alþingis og Hall-
dór Ásgrímsson forsætis-
ráðherra í ræðu sinni utan
dagskrár í gær. Hvorki Sól-
veig Pétursdóttir, forseti Al-
þingis, né Rannveig Guð-
mundsdóttir og Jónína
Bjartmarz, fyrsti og annar
varaforseti, voru viðstaddar.
Stjórum
vísaðfrá
Útvarpsráð Ríkisútvarps-
ins samþykkti í fyrradag til-
lögu Gurúilaugs Sævars
Gunnlaugssonar, formanns
ráðsins, um að framvegis
sitji framkvæmdastjórar
stofnunarinnar ekki fundi
útvarpsráðs nema þeir séu
sérstaklega kallaðir til.
Framvegis sitji fundina ein-
göngu Páll Magnússon út-
varpsstjóri og sjálfir meðlim-
ir útvarpsráðs.
Eftiahagsmálin ?
Egill „Tiny"Thorarensen
rappari.
„Ég er voða lítið aö spá I þess-
um málum. Þekki lltiö til. Ég
veit reyndar að krónan er
mjög sterk og það kom sér vel
þegar ég var úti I Svíþjóð I
sumar. Ég held að það sé best
fyrir alla að anda rólega og
vera ekki að hafa ofmiklar
áhyggjur afástandinu. Þetta
feralltvel."
Hann segir / Hún segir
„Ég hefekki miklar áhyggjur
af efnahagsástandinu. Maður
hefur heyrt afþessum verð-
bólguáhyggjum en ég læt þær
ekki stoppa mig I því sem ég
vil gera. Ég var til dæmis að
kaupa mér Ibúð og er ekki I
minnsta vafa um að ég hagn-
ist á því. Þetta kemur bara
þegar þetta kemur.“
Hugrún Harðardóttir
fegurðardrottning.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að Gunnar Örlygsson, fyrrverandi alþingis-
maður Frjálslyndra, verði fulltrúi flokksins á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna.
Óvíst er hvort Gunnar fái vegabréfsáritun vegna sakaferils síns en Magnús Þór
Hafsteinsson, fyrrverandi félagi Gunnars, hefur áhyggjur.
smalerill
n
Þetta er
þokkaleg
auglýsing
fyrír ísland
eða hittþó
heldur."
GunnarÖr-
lygsson Ætlard
allsherjarþing
Sameinuðu
þjóðanna en
fyrst verður
hann að fylla út
eyðublöð vegna
vegabréfsáritun-
arl bandarlska
sendiráðinu þar
semspurterum
sakaferil.
Óvíst er hvort Gunnar örlygsson alþingismaður fái vega-
bréfsáritun til Bandaríkjanna þar sem hann ætlar að sitja
fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna. Gunnar ör-
lygsson hefur sem kunnugt er hlotið refsi- og fangelsisdóm
vegna fjársvika og ölvunaraksturs en um þau atriði er spurt
þegar sótt er um vegabréfsáritun í bandaríska sendiráðinu
í Reykjavík.
„Ég hef ekki heyrt um þetta," seg-
ir Gréta Ingþórsdóttir, fram-
kvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæð-
isflokksins. Fyrrverandi félagi Gunn-
ars í Frjálslynda flokknum, Magnús
Þór Hafsteinsson alþingismaður,
sparar þó ekki stóru orðin:
Áhyggjur
„Eg hef áhyggjur af orðspori
lands og þjóðar á alþjóðavettvangi
ef senda á Gunnar Örlygsson á þing
Sameinuðu þjóðanna og það þegar
við erum að reyna að tryggja okkur
sæti í öryggisráðinu," segir Magnús
Þór. „Þetta er þokkaleg auglýsing
fyrir ísland eða hitt þó heldur.
Gunnar örlygsson er glæpamaður,"
segir þingmaðurinn.
Tveir hópar þingmanna sækja
allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna
og fer fyrri hópurinn utan á sunnu-
daginn. í þeim hópi eru Birkir Jón
Jónsson, frá Framsóknarflokki, fyrr-
nefndur Magnús Þór Hafsteinsson
og Margrét Frímannsdóttir frá Sam-
fylkingunni. Síðari hópurinn fer svo
að loknum landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins en í honum
verða Katrín Júlíusdóttir frá
Samfylkingunni, Bjami
Benediktsson frá Sjálf-
stæðisflokki og svo
Gunnar Örlygsson.
Á fundi erlendis
Gunnar Örlygs-
son hefur verið í
leyfi frá þingstörf-
um að undan-
förnu þar sem
hann er
staddur
erlendis.
Þegar DV
ræddi við
hann
síðdegis í
gær,
sagði
hann:
„Ég er á
fundi."
Höfuðstöðvar Samein-
uöu þjóðanna í New
York Fyrrverandi sam-
flokksmaður Gunnars Ör-
lygssonar segir það þokka-
lega auglýsingu eða hittþó
heldur ef Gunnar veröur
sendur á allsherjarþingið.
N
Magnús Þór Hafsteinsson
Óánægður með að Gunnar verði
sendursem fulltrúi lands og
þjóðar á allsherjarþing
Sameinuðu þjóðanna.
Fjall í Skagafirði til sölu á 40 milljónir
14 kílómetrar á næsta AA-fund
Guðmundur Hermannsson,
kennari og bóndi á Fjalli í Skagafirði,
hefur sett jörð sína á sölu með ýms-
um gagnlegum upplýsingum sem
tengjast daglegu lífi. í auglýsingu
Fasteignamiðstöðvarinnar segir að
um sé að ræða 998 hektara jörð í 250
kílómetra fjarlægð frá Hvalfjarðar-
göngunum. Þá getur Guðmundur
þess að aðeins 14 kílómetrar séu í
næsta AA-fund á Löngumýri en 37
kílómetrar í áfengisverslunina á
Sauðárkróki.
„Þetta em bara gagnlegar upplýs-
ingar um réttar vegalengdir," segir
Guðmundur. „Upplýsingar sem hafa
gagnast mér og gætu nýst öðrum."
Guðmundur segir að gott og fal-
legt sé að búa á Fjalli enda hafi hann
verið þar í aldarfjórðung. En nú er
Guðmundur kominn á eftirlaun og
ætlar að flytjast til Reykjavíkur: „Við
emm búin að festa okkur íbúð í Ár-
bæjarhverfinu," segir Guðmundur
og á þar við sig og Klöm Njálsdóttur,
eiginkonu sína og hjúkmnarkonu.
Hvatt til
sameiningar
Bæjarstjórn Blönduóss sam-
þykkti í gær samhljóða hvatn-
ingu til íbúa Áshrepps, Blöndu-
óss, Höfðahrepps og Skaga-
byggðar til að samþykkja sam-
einingu þessara sveitarfélaga í
kosningum um helgina. Jafn-
framt sagðist bæjarstjóm
Blönduóss ítreka að mikilvægt sé
að góð þátttaka verði í kosning-
unum sem verða á laugardag.