Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Síða 14
í4 FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005
Fréttir DV
Frakki fékk
Nóbel
Sænska akademían til-
kynnir nú daglega um
vinningshafa nóbelsverð-
launa fyrir árið 2005. í gær
var Frakkinn Yves Chauvin
útnefndur vinningshafi
ásamt Bandaríkjamönnun-
um Richard Schrock og Ro-
bert Grubbs. Þeir fundu
upp nýja aðferð, sem skipt-
ir miklu máli í framleiðslu
lyflaog plasts.
Heilmynd á
hóteli
Japanski tækjarisinn
Pioneer kynnti í gær nýja
tækni, sem varpar þrívíð-
um myndum í lausu lofti.
Hún kallast Floating
Interface. Hér sést tölvu-
teiknuð persóna að nafni
Haruka en hún stendur í
anddyri tæknisýningar í
Tókýó og tekur á móti gest-
um.
Skildu riffl-
ana eftir
Vinnukonan kippti sér
lítið upp þó að hermenn,
sem stóðu heiðursvörð í
Tíblisi í Georgíu í gær,
skildu rifflana sína eftir
þegar þeir yfirgáfu staðinn.
Hermennirnir stóðu vörð
þegar Vaira Vike-Freiberga
Lettlandsforseti kom í sína
fyrstu opinberu heimsókn
til Georgíu.
Toyota keypti
Subaru
Miklar hræringar urðu á
bílamarkaðnum í gær. Þá
tilkynntu yfirmenn Toyota
að þeir hefðu keypt stóran
hlut af General Motors í
Fuji Heavy, sem framleiðir
Subaru. Um svipað leyti
kynnti Toyota nýjasta smá-
bílinn sinn, Ractis, en fyrir-
tækið bindur miklar vonir
við hann.
Bandaríski auðkýfingurinn Bernard Keiser hefur síðastliðinn
áratug dvalið á eyjunni Robinson Crusoe. Hann ætlar sér að
finna fjársjóð að verðmæti rúmlega 600 milljarða kxóna, sem
týndist á hafsbotni þegar bresk freigáta fórst þar árið 1755. Nú er
fyrirtæki frá Chile komið í kapphlaup við Keiser og segist hafa
fundið fjársjóðinn.
Chiieska fyrirtækið, Wagner, sendi
leiðangur á eyjuna í september. Hann
var búinn nýstárlegu vélmenni, sem
nemur málma og getur einnig sagt til
um efiiasambönd í jörðu. Leiðangur-
inn sneri aftur sigri hrósandi og sagð-
ist hafa fundið 800 tonn af guili, á
annarri hlið eyjarinnar en Keiser hef-
ur leitað síðastliðin 10 ár.
Öll fiug bókuð
„Það getur ekkert vélmenni kom-
ið hingað og fundið fjársjóð á
fimmtán mínútum," segir Keiser,
sem hefur nú látið enn meiri kraft í
fjársjóðsleitina. „Ég á eftir að finna
þennan fjársjóð. Það sem ég þarf er
meiri tími og engin truflun."
Það er ekki víst að Keiser verði
að ósk sinni því um leið og það
fréttist að menn Wagner hefðu
fundið fjársjóðinn fylltust öll flug til
eyjarinnar. Fjölmiðlar víðs vegar úr
heiminum og gullgrafarar í ævin-
týraleit flykkjast nú til Robinson
Crusoe.
Aztekagull
Fjársjóðurinn sem um ræðir hef-
ur verið týndur frá 18. öld. Sagan
segir að spænskur herforingi hafi
gengið til liðs við Breta og fyllt skip
sitt af Aztekagulli. Siglt síðan til
Robinson Crusoe-eyju og grafið
gullið.
Spænski herforinginn lét síðan
Breta fá kort, sem hann teiknaði af
staðsetningu íjársjóðsins. 40 árum
seinna sendu þeir Cornelius Webb
skipstjóra með leiðangur til að
finna hann. Það tókst en ekki betur
en svo að skip Webbs eyðilagðist í
stormi áður en hann gat haldið tU
baka. Hann sendi þá kort og sagði
frá nákvæmri staðsetningu fjár-
sjóðsins, sem hann gróf aftur.
Lyklar Jerúsalem
Tveimur öldum seinna keypti
chileska Beeche-fjölskyldan kortið
og hefur hún leitað síðan að fjár-
sjóðnum. Félagi Keisers í leitinni er
einmitt Maria Beeche. Hún vandar
Wagner-fyrirtækinu ekki kveðjurn-
ar. Það tekur undir með sumum
eyjarskeggjum að nokkrir sjóræn-
ingja-fjársjóðir frá 18. öld séu
einnig faldir á eyjunni.
„Það er ekki rétt hjá þeim að það
séu margir fjársjóðir á eyjunni. Það
er bara einn. Þeir segja líka að gull-
hringar páfa og lyklarnir að Jerúsal-
„Ég á eftir að finna
þennan fjársjóð. Það
sem ég þarfer meiri
tími og engin trufíun."
em séu í fjársjóðnum. Fáránlegt!
Þeir eru bara að fá auglýsingu fyrir
þetta vélmenni sitt.“
Deilt um prósentur
Nú þegar umræðan um ijársjóð-
inn hefur náð miklu flugi eru eyjar-
skeggjar byrjaðir að vilja fá hluta af
gróðanum. Sömu sögu er að segja
um stjórnvöld í Chile. Keiser hefur
nú þegar samið um að 75 prósent
fjársjóðsins renni tU ríkisins. Eyjar-
skeggjar eru óánægðir með það og
heimta tíu prósent. Sú deUa getur
samt ekki orðið meira en orðaskipti
þar til einhver fjársjóður finnst. Og
allir bíða spenntir á meðan.
halldor@dv.is
Eyjan Robinson Crusoe skammt frá Chile er rólyndisstaður. Þar búa 1500 manns
að jafnaði, sem renna fyrir fisk og lifa einföldu lífi. Nú er aftur á móti hafið
gullæði á eyjunni og þangað flykkjast ævintýramenn og íjölmiðlafólk.
Nýsjálensk kona bjargaðist á ævintýralegan hátt eftir bílslys
*
I þrjá daga með líkum í bílflaki
Nýsjálenskur vörubílstjóri vissi
varla hvaðan á hann stóð veðrið
þegar trukkurinn hans bilaði í gær.
Hann fór út úr bffnum tU að athuga
hvað væri að vélinni þegar undarleg
hljóð heyrðust fyrir utan veginn.
Þegar bílstjórinn gekk niður
brekku við veginn blasti við honum
bílflak. Innan úr því heyrðust óp
konu. í ljós kom að bfllinn hafði far-
ið út af veginum rúmum þremur
dögum áður og velt Ula. Konan var
sú eina sem komst lífs af en sam-
ferðamenn hennar, maður og kona,
létust bæði.
Enginn tók hins vegar eft-
ir bflnum í vegarkantinum
og því liðu rúmir þrír dagar
þar sem konan var ein með
líkunum. Hún var illa á sig
komin þegar sjúkraliðar
komu á staðinn í gær og fóru
með hana á sjúkrahús.
Flak b/lsins Hérlákon-
an hjálparlaus i rúma þrjá
daga.! bilnum voru
einnig lík konu og manns,
sem létust í slysinu.
Bilaður trukkur Það
varö slösuðu konunni til
happs að trukkur bilaði
rétt hjá henni. Bllstjórinn
heyrði Ihenni úr bllflakinu
Eldgos á
franskri eyju
í fyrradag hófst eldgos á
frönsku eyjunni Reunion í Ind-
landshafi. Þar er eldfjallið Piton
de la Fournaise, sem er eitt
virkasta eldfjall heims. Það gaus
síðast í febrúar.