Dagblaðið Vísir - DV - 06.10.2005, Side 33
Menning DV
FIMMTUDAGUR 6. OKTÓBER 2005 33
Rússar eru merkileg þjóð. Þeir
drekka eins og Norður-Evrópubúar
og grenja eins og suður-evrópskir
karlmenn, eru með djúprödduð-
ustu karlakóra í heimi en jafnframt
yfirdrifið dramatískir í ástarmálum.
Ófáar rússneskar myndir fjalia
um menn sem eru á einhvem hátt
kúgaðir af konum. Það er nefnilega
merkileg staðreynd að karlmenn í
löndum þar sem kvenréttindi em
kominn skammt á veg eiga það til
að verða fremur bældir, því þegar
status konunnar ræðst af manni
hennar gera þær oft mjög miklar og
óraunsæjar væntingar til þeirra. Og
fáir em nógu mikil karlmenni til að
teljast karlmenni á rússneskan
mælikvarða.
Kúgaðir af mömmum eða
eiginkonum
Rekkjusögur segir ekki bara eina
slika sögu, heldur nokkrar. í þeirri
fyrstu kynnumst við manni sem er
kúgaður af móðir sinni, sem segist
aldrei hafa elskað föður hans og
heimtar að hann skilji við konu
sína. f næstu mynd sjáum við son
hans sem er líklega jaih kúgaður af
sinni móðir og er auðveld bráð fyrir
tudda í hemum. í þeirri þriðju
fáum við svo að kynnast mannin-
um og konu hans, sem ber ennþá
gremju eftir að hafa gripið hann
með annarri konu á menntaskóla-
baUi löngu áður. Næst er komið að
ofbeldismanninum úr hemum,
sem eldri kona hefur borgað fyrir að
koma með sér heim. Hún hefur þó
ekki í hyggju að sofa hjá honum,
heldur lætur sér nægja að niður-
lægja hann.
Sokkabuxurogsvipur
Á meðan er eiginmaður hennar
uppi í rúmi með öðrum manni. Hér
rfldr jafnrétti sem leysist að sjálf-
sögðu upp í rifrildi, í stórskemmti-
legu atriði þar sem þeir rifast um
hver hefur pikkað hvem upp. Loks
er komið aftur að fyrsta mannin-
um, sem sefur hjá móðir kvalara
sonar síns. Eiga þau þó í mestu erf-
iðleikum með að koma hvom öðm
til, og beita svipum og sokkabuxum
jafnhendis.
Jarmusch og Tarantino
Andi Jarmusch jafht sem Tar-
antino svífur hér yfir vötnum.
Óháðir leikstjórar um allan heim
em mjög uppteknir af litlum sögum
sem tengjast allar á einhvem hátt
(svo sem Ragnar Bragason hérlend-
is), og þó að formið sé varla frum-
Rekkjusögur/Postelnyye stseny
Rússland
Leikstjóri: Kirill Serebrennikov
★ ★★
Kvikmyndir
legt lengur býður það gjaman upp á
mikinn húmor. Það er í raun merki-
legt að fóik frá mismundandi
heimshlutum skufi vera svo hrifið
af sama forminu, samanber Amor-
es Perros frá Mexflcó eða Hawai,
Oslo frá Noregi, en það hentar lflc-
lega vel mönnum sem em aldir upp
í auglýsinga- og myndbandagerð
að fást við stuttar sögur.
70 mínútur
Besta rússneska mynd undan-
farinna ára, Russian Ark, var öll tek-
inn í einum göngutúr um Vetrar-
höllina, og Serebrennikov beitir
sömu tækni en sm'ður sér stakk eft-
ir vexti og lætur sér nægja að
mynda hvert atriði í einum rykk.
Sögumar em misskemmtilegar,
en ná hápunktinum í miðbikinu
með karlmönnunum tveimur. Hún
er þó aldrei leiðinleg, enda reynir
hún ekki að teygja lopann, og nýtir
sínar 70 mínútur betur en sam-
nefndir þættir gerðu.
Valur Gunnaisson
Næst sýnd (Regnboganum 6.
og8. októbeikL 22:00.
David Hockney málar landslag
David Hockney, breski myndlistarmaðurinn frá
Bradford, sem flutti sig yfir til Kaliformu á sjötta ára-
tugnum og vann þar, hefur nú snúið heim. í sumar
sat hann í Jórvfkurskíri og málaði - landslag. Hocney
er orðinn sextíu og átta og var í frontinum á þeirri
hreyfingu sem bar upp nýja tíma í myndlist Evrópu.
Hann er frábær teiknari og hefur aldrei yfirgefið
hin fornu brögð myndlistar, meðal annars lagt sig
eftir fornri tækni í teikningu endurreisnarinnar og
gefið út um þau efni stóra bók. Síðasta áratug hefur
hann unnið mildð með samsettar polaroidmyndir af
- landslagi Kalifomíu sem hefur smitast yfir í stór
Iandslagsmálverk. Verk hans hafa aldrei verið hærra
metin á markaði.
í viðtali við sunnudagsblað Times segir Hockney
Breta ekki meta landslag Jórvflcur og hann vilji gera sitt
að bjarga því frá eyðileggingu. Hann sækist eftir friði
sveitanna þar, birtunni og flatlendi sem mörgum sýn-
ist sviplaust en hann segir búa yfir mikilli fegurð.
Hockney er eitt dæmi af mörgum að málverkið sé
að snúa aftur í hof hinna ráðandi í myndlist Evrópu.
Charles Saatchi, hinn kunni safnari, seldi nýlega
stóran hluta af safni sínu og tók að kaupa málverk í
miklu magni. Hann hefur verið ásakaður fyrir spá-
kaupmennsku með myndlist yngri kynslóða breskra
listamanna.
Hockney segir fátt um helstu skjólstæðinga
Saatchi: Hirst, Emin og ýmsa þá sem mest hefur ver-
ið hampað síðasta áratug. Segist bara ekki þekkja til
þeirra eins og Hirst. Emin sé ekki eftirminnileg.
Samsett mynd
Hockney af móður
sinni í Bradford.
Sjálfur þarf hann ekki að kvarta yfir áhuga-
leysi: síðasta sýninga hans á Tate var sótt af 170 þús-
und gestum.
Bóksölulistar
AÐALLISTINN - ALLAR BÆKUR
SÆTi BÓK
Suduko - bók 1 -
Listinn er gerdur ut fra
sölu dagana 30. septem-
ber til4. október
i Bókabúdum Máls og
menningar, Eymunds-
son og Pennanum.
HOFUNDUR
Gideon Greenspan
Hugleikur Dagsson
Þór Sigfússon
Kari Hotakainen
Ýmsir höfundar
Allison Pearson
Foröist okkur -
Straumhvörf -
Skotgrafarvegur (kilja)-
í Guörúnarhúsi -
Móöir í hjáverkum (kilja) -
Dan Vinci lykillinn myndskreytt - Dan Brown
Dansaö viö engil (kilja) - Ake Edwardson
Friöland (kilja) - Liza Marklund
Englar og djöflar - Dan Brown
SKALDVERK- INNBUNDNAR
1. Dan Vinci lykillinn myndskreytt - Dan Brown
2. Steintré - Gyröir Elíasson
3. Dyr aö draumi - Þorsteinn frá Hamri
4. Munkurinn sem seldi sportbílinn sínn - Robin Sharma
5. Krónprinsessan - Hanne-Vibeke Holst
6. Upplitaö myrkur - Gyröir Eiíasson
7. Furöulegt háttalag hunds - Mark Haddon
8. Stúlka og Hulda - Háskólaútgáfan
9. Samdrykkjan - Platón
10. Tveggja turna tal - J.R.R. Tolkien
SKÁLDVERK - KIUUR
1. Forðist okkur - Hugleikur Dagsson
2. Skotgrafarvegur - Kari Hotakainen
3. Móöir í hjáverkum - Allison Pearson
4. Dansaö viö engil - Ake Edwardson
5. Friöland - Liza Marklund
6. Englar og djöflar - Dan Brown
7. Alkemistinn - Paulo Coelho
8. Kvenspæjarastofan - Alexander McCall Smlth
9. Manntafl - Stefan Sweig
10. Da Vinci Lykillinn - Dan Brown
HANDBÆKUR - FRÆÐIBÆKUR - ÆVISOGUR
Sudoku - bok 1 -
Straumhvörf -
í Guðrúnarhúsi -
Litla messubókin -
Gamla góöa Kaupmannahöfn -
Uf meö Jesú -
Gideon Greenspan
Þór Sigfússon
Ýmsir höfundar
Jón Ragnarsson
Guölaugur Arason
Jan Carlquist
Ástæöur þess aö karlar Ijúga - Allan Pease
Hvaö segja stjörnumerkin um þig og þína? - Jamie Stokes
íslendingar - Sigurgelr Sigurjónsson og Unnur Jökulsdóttir
Kortabók 1:300.000 - Mál og menning
BARNABÆKUR
1. Kalli og sælgætisgeröin -
Roald Dahl
Völuspá - Kristín Gunnarsd. og Þórarinn Eldjárn
Ævintýri á meöan - Roddy Doyle
Úrvalsævintýri - H.C. Andersen
Moldvarpann sem vildi vlta .. - Werner Holzwarth
Lærum aö teikna ævintýrin okkar - Philippe Legrande
Risaeölutíminn - Ingibjörg Briem
Emil í Kattholti: allar sögurnar - Astrid Lindgren
Utli Björn lærir aö synda - Nele Moost _________
Hver dagur meö þér er dásamlegur - Nele Moost
ERLENDAR BÆKUR - ALLIR FL0KKAR
The Broker
Michael Cricton
Terry Pratchett
Nora Roberts
Michael Crichton
Mark Huckvale
Going Postal -
Northern Lights -
State of Fear -
The Big Book of Sudoku -
Harry Potter and the Half-blood Prince - J.K. Rowling
Thud - Terry Pratchett
Death and the Penquin - Andrei Kurkov
The Brooklyn Follies - Paul Auster
Chronicles vol. 1. - Bob Dylan
ERLENDAR VASABROTSBÆKUR
1. The Broker -
State of Fear -
Going Postal -
Northern Lights -
Life Expectancy -
The Song of Susanna -
The Closers -
The Plot against America -
Birds without Wings -
Metro Girls -
Michael Cricton
Michael Crichton
Terry Pratchett
Nora Roberts
Dean Koontz
Stephan King
Michael Connelly
Philip Roth
Louis de Bernieres
Janet Evanowitch
Vasabókalistinn byggir á sölu í ofannefndum verslunum auk dreifmgar í
aörar bókabúöir og stórmarkaöi á vegum Pennans/Blaöadreifíngar.