Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Qupperneq 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 Helgarblaö DV mmtanar Umræðan undanfarna daga um heimilisofbeldi og kynferð- isbrot gegn börnum hefur rifið ofan af mörgum sárum. Ólöf Jónsdóttir er ein þeirra kvenna sem hefur upplifað slíkan sársauka og segist aldrei bíða þess bætur. Fjórtán ára gamalli var henni nauðgað og varð hún þunguð eftir ódæðismanninn. Fimmtán ára gömul ól hún tvíbura. é'w K m 1« ' «,«8$'r ; v. /’ •• - j ■ Olöf hefur farið í gegnum mikinn sársauka i sinu lífi Hún er enn ud stípo seydid af ofbelciinu sem hun vard fyrir. „Ég ólst upp í Vesturbænum, einkadóttir móður minnar," hefur Ólöf frásögnina. „Við leigðum hæð hjá manni sem bjó sjálfur í kjallaranum og ég var ekki nema sex ára þegar hann byrjaði að misnota mig. Hann hótaði mér að ef ég segði frá yrðum við mamma reknar út úr íbúðinni og strax þarna fer ég að eiga leyndarmál sero ég réð ekkert við. Þau áttu eftir að verða fleiri," segir Ólöf dápurlega um leið og hún býður mér upp á kaffi í notalegu eldhús- inu sínu. Ólöf er aftur komin í Vesturbæinn þar sem hún býr með yngstu stelpunum sínum tveimur, en hún hyggst flytja það- an sem fyrst því hverfið vekur upp vondar minningar. „Þessi misnotkun stóð í tvö ár eða þangað til við fluttum í burtu. í skólanum þótti ég erfið og upp- stökk, en mér leið bara svo illa. Ég vissi að eitthvað verulega rangt var í gangi en ég gat eki sagt nein- um frá og fannst ég skítug og ógeðsleg. Þarna held ég að hafi verið lagður grunnur að sjálfsí- mynd sem átti eftir að fylgja mér langt fram á fullorðinsár." Nauðgað af vini sínum Ólöf segir að þrátt fyrir að hún hafi verið uppstökk og frökk hafi hún bælt niður allar tilfinningar. Henni fannst hún ailtaf þurfa að sanna sig í hópnum en upplifði sig samt einangraða og útundan. Þegar hún var þrettán ára gömul var hún send í sveit þar sem henni líkaði vel og þar eignaðist hún góða vini. „Eftir að ég kom í bæinn ákváðum við krakkamir úr sveit- inni að hittast í heimahúsi og meðal þeirra sem komu var 17 ára strákur sem var þarna á bænum. Hann bað mig að koma með sér inn á salernið og tala við sig og ég eins og kjáni fór með honum. Hann lokaði og læsti og nauðgaði mér á baðherbergisgólfinu. Ég barðist á móti og grét og grét en það kom enginn. Á eftir fór ég grátandi heim, mér blæddi og ég fór beint og henti buxunum mín- um út í öskutunnu. Ég var gjör- samlega miður mín en samt fannst mér eins og þegar ég var barn að ég ætti þetta skilið.og sagði engum neitt."- Ólöf hélt áfram að bera leynd- armálin sín ein, en svo fór mömmu hennar að gruna að ekki væri allt með felldu. Ólöf var alltaf slöpp og veik og mamma hennar fór með hana til læknis. Barn að eiga börn „Þá kom í ljós að ég var komin næstum fjóra mánuði á leið og ekkert hægt að gera," segir Ólöf. „Á meðgöngunni barst það svo einhverntíma í tal að best væri að setja barnið í fóstur. Þá var auð- vitað ekki vitað að börnin væru tvö." Það var svo skólasystir Ólafar sem kom til hennar og sagðist þekkja yndislega konu sem þráði að eighast barn, en gæti það ekki. Hún vildi taka barnið f fóstur, sagði skólasystirin. Ólöf segir að þessi tími sé hálf- partinn í móðu í minningunni, en hún man að hún samþykkti að hitta konuna. „Ég heillaðist af henni þegar ég sá hana fyrst, en fékk strax óþægi- lega tilfinningu gagnvart mannin- um hennar. Ég var samt bara krakki og gat ekki komið þessum tilfinningum í orð. Konan vildi að Bamavemdarnefnd kæmi að málinu og saman fómm við að hitta fulltrúa frá Barnaverndar- nefnd. Þeir heilluðust mjög af konunni og ég sat bara eins og glópur og lagði ekkert til mál- anna. Ég var samt komin með bakþanka en gat ekki sagt það.“ Ein og yfirgefin á fæðingar- deildinni Þegar talsvert var liðið á með- gönguna fékk Ólöf meðgöngueitr- un og var lögð inn á meðgöngu- deildl „Þá kom í ljós að börnin voru tvö,“ segir Ólöf. „Ég lá á spít- alanum þangað til ég fæddi tvær yndislegar og heilbrigðar stelpur. Það vom flestir mjög góðir við mig á spítalanum og fæðingin gekk vel. Ég-var samt ofsalega lítil í mér og einmana á eftir. Önnur telpan var strax sett í hitakassa en ég man að ég lá og horfði á hitt Framhaldá síðu22
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.