Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Page 22
22 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005
Helgarblað DV
Lítur lífið bjartari augum
Ólöfernú að vinna sig út úr
vandamálunum og skapa sér
eigið líf. __
bamið í vöggunni og fann að ég
vildi ekki láta börnin frá mér. Ég
man líka hvað ég var líkam-
lega eftir mig enda bara
barn að eiga börn og
þetta var gríðarleg
áreynsla á lík-
amann. Fljótlega
eftir fæðinguna
kom svo fóstur-
mamman á fæð-
ingardeildina og tók
annan tvíburann með
sér heim.'
Ég var ósátt en gat
ekkert gert,“ segir Ólöf og
rifjar upp hversu kaldrana-
legt það var þegar kona frá
Barnaverndarnefnd kom á
fæðingardeildina til að fá und-
irskrifaða pappíra. „Hún hitti
/ mig á ganginum þar sem ég
stóð með barnið fyrir framan
mig í vöggunni og sagði mér
frekar hranalega að mamma væri
búin að skrifa og nú vantaði bara
mína uppáskrift. Hún rétti mér
blað og penna og leit svo snöggt á
barnið og dáðist að því hvað það
væri fallegt. Með það var hún far-
in. Ég stóð ein eftir á ganginum
og hágrét og langaði bara að ein-
hver tæki utan um mig og hugg-
aði mig."
Ólöf tvíburamella
Stuttu seinna útskrifaðist
Ólöf og fór með hinn tvíbur-
ann til fósturforeldranna.
„Ég hafði á tilfmningunni
að eitthvað væri í ólagi
hjá þeim, en það var líka
eitthvað sem ég kunni
ekki að tjá mig um. Ég
, , ( tók svo bara upp
þráðinn þar sem frá
var horfið fyrir fæð-
'f'S inguna og byrjaði
aftur í skólanum.
Þar mætti ég for-
dómum og mik-
illi dómhörku
skólasystkin-
anna sem
lögðu mig í
einelti og
kölluðu
mig
Ólöfu
tví-
bura-
mellu og fleiri ógeðslegum nöfn-
um,“ segir hún og tárast við
minninguna.
„Það gengu um mig allskonar
sögur og ég trúði því alveg sjálf að
ég væri aumingi sem ætti allt
slæmt skilið. Það var heldur eng-
inn sem talaði við mig um mínar
tilfmningar, ég varð bara að
glíma við þær ein.“
í samkomulaginu um fóstur
tvíburastelpnanna fólst að Ólöf
mætti heimsækja þær þegar hún
vildi. Hún gerði það oft en fannst
hún ekki vera velkomin og hafði
alltaf á tilfinningunni að stelp-
urnar byggju ekki við nógu gott
atlæti. Þegar fósturforeldrarnir
fluttu út á land með stelpurnar
minnkaði sambandið og Ólöf
ákvað að halda áfram og einbeita
sér að eigin lífi.
Karlmönnum auðveld bráð
„Ég var samt tóm og ófull-
nægð í sálinni og þráði eitthvað
til að fylla upp í tómið. Ég var
karlmönnum auðveld bráð og
mig dauðlangaði að eignast barn
og hélt að það væri lausn.
Ég var komin í samband við
mann og þó ég höndlaði ekki
sambandið þegar til kom varð ég
ófrísk og eignaðist þriðja barnið
mitt, lítinn strák. Fljótlega eftir að
hann fæddist fór ég með hann að
heimsækja stelpurnar til fóstur-
foreldranna. Mér leið hörmulega
eftir þá heimsókn og fannst virki-
lega ekki að stelpurnar væru á
góðum stað. Ég var svo ekki í
miklu sambandi fyrr en fóstur-
fjölskyldan flutti aftur í bæinn. Ég
var alitaf hálf ómöguleg þegar ég
heimsótti þær og kvartaði oft í
Barnaverndarnefnd sem fór á
staðinn, en sagði mér alltaf að allt
væri í lagi.
Nokkrum árum seinna kom í
ljós að ég hafði haft rétt fyrir mér
og hlutirnir voru hreint ekki í lagi.
Fósturforeldramir voru þá skilin
og mamman orðin ein með stelp-
umar. Hún leigði húsnæði í Hafn-
arfirði og á endanum sagði
leigusalinn henni upp húsnæðinu
sökum kvartana nágranna vegna
drykkju móðurinnar og sóðaskap-
ar. Það birtist viðtal við leigusal-
ann og myndir af húsnæðinu þar
sem allt var í rúst. Sóðaskapurinn
var yfirgengilegur, matarleifar og
hálfreyktir sígarettustubbar á
gólfinu og pöddur um allt. Við
þessar aðstæður ólust stelpurnar
upp," segir Ólöf.
Enn að súpa seyðið af
ofbeldinu
Nú em stelpurnar orðnar full-
orðnar og háfa ekkert samband
við móður sína. Þær völdu
sjálfar að vera ættíeiddar af
fósturforeldrum sínum og
segjast hafa alist upp við gott
atlæti.
„Þetta voru samt mínar stelp-
ur og ég sá alltaf að eitthvað var
að,“ segir Ólöf. „Ég þótti bara
ekki trúverðug og var látin gjalda
þess að ég var krakki þegar ég átti
þær. Það er hræðilegt að vita að
börnin manns búa við erfið skil-
yrði og geta ekkert gert. Barna-
verndarnefnd sagðist ekki
blanda sér í þetta þar sem ég
valdi sjálf þessa fósturforeldra.
Þar með var bara málið afgreitt
af þeirra hálfu.“ .
Ólöf kynntist manni árið
1993, giftist honum og eignaðist
með honum tvær dætur. Þær em
nú 16 og 17 ára og búa hjá móð-
ur sinni og gengur vel. Sonur
Ólafar er farinn að heiman. Þeg-
ar dæturnar vora litiar veiktist
Ólöf og var útveguð stuðnings-
íjölskylda aðra hverjá helgi. Hún
er mjög ósátt við að þegar hún
þurfti ekki lengur stuðnings við
neitaði stuðningsfjölskyldan að
draga sig til baka. „Þau sýndu
yngri stelpunni mikla athygli og
keyptu handa henni dýrar
merkjavömr og flotta hluti,' sem
ég gat ekki veitt þeim. Ég kvart-
aði líka yfir þessu við Barna-
verndarnefnd, ég vildi bara sjá
um mínar stelpur sjálf og ekki
þurfa að keppa við peninga um
ást þeirra. Börn em alltaf bara
börn. Barnaverndarnefnd gerði
ekkert í þessu.
Ég skildi við manninn minn
þegar stelpurnar vom mjög litl-
ar, hann beitti mig bæði andlegu
og líkamlegu ofbeldi, sem ég er
enn að vinna mig út úr. Af því ég
er brothætt og á erfiða sögu var
ég ekki tekin trúanleg til að byrja
með og fór í gegnum miklar
hörmungar með þessum manni.
Það hefur tekið mig langan tíma
að vinna mig út úr þessu öllu og
ég á enn langt í land. Ég hefði
þurft hjálp strax þegar ég var
barn, ekki síst eftir að ég eignað-
ist tvíburana mína. Ég vona að
fólk fari að vakna til umhugsunar
um hvað það er margt sem mið-
ur fer í kringum okkur og hvað
margar fjölskyldur þjást. Ofbeldi
er fjölskyldusjúkdómur sem sýk-
ir allt samfélagið, þess vegna
mega þessir hlutir ekki vera
feimnismál. Ég er enn reið og
bitur vegna þess sem mér hefur
verið gert, ég hef upplifað allt
þetta ofbeldi, andlegt, líkamlegt
og kynferðislegt, og er enn að
súpa seyðið af því. Ég hef þó sem
betur fer fengið hjálp og dætur
mínar sem búa hjá mér hafa
þurft heilmikla hjálp til að vinna
úr sínum málum. Ég á þá ósk
heitasta að þær þurfi aldrei að
upplifa sársauka eins og ég fór í
gegnum og er svo glöð að um-
ræðan er að opnast þannig að
næsta kynslóð sé betur sett en
mín var. Það er aðalatriðið."
edda@dv.is
&
‘ A
^ - ■
\
/
Ólöf er hér nýoröin fimmt-
án ára Tvíburarnireru i fóstri
hjá fósturfjölskyldu en Ólöf
heimsóttiþá oft.