Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Side 27
-1
26 LAUGARDAGUR 22. OKTÚBER 2005
Helgarblað DV
DV Helgarblað
?00v rjOTýf *r \ *c:
LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005 27
Pálmi Haraldsson, sem kenndur er við Feng, hefur efnast hratt á síðustu árum. Nú
hefur Pálmi selt FL Group flugfélagið Sterling með verulegum hagnaði og mun lík-
legast eftir þá sölu skipa sér á fremsta bekk ríkustu manna landsins. Pálmi ólst
upp við fátækt hjá einstæðri móður sem hann hefur sagt vera hetjuna í sínu lífi.
Pálmi Haraldsson Emn umsvifamesti
viðskiptamaður landsins.
Pálmi Haraldsson, forstjóri eignar-
haldsfélagsins Fengs, er fæddur 21.
janúar 1960, sonur Haraldar Guð-
mundssonar sem nú er látinn og Auð-
ar Stefánsdóttur.
Fyrstu ár ævi sinnar bjó hann með
foreldrum sínum og Björgu Haralds-
dóttttr, eldri systur, við Fálkagötuna
en íjölskyldan fluttist inn í Sæviðar-
sund þegar hann var nokkurra ára
gamall. Síðar skildu foreldrar hans en
systkinin ólust upp hjá móðurinni.
Auður var harðdugleg og vann af
kappi og bjó vel að bömum sínum.
Aðhaldssemina og peningavitið er
Pálmi sagður hafa frá henni en víst er
að Auður þurfti að vera útsjónarsöm
til að endar næðu saman en hún sá
íjölskyldunni farborða með því að
vinna á gæsluvelli. Pálmi hefur sagt að
hann sé fjarri því fæddur með silfur-
skeið í munni, hann hafi þurft eins og
aðrir að hafa fyrir lífinu.
Sendur í heimavistarskóla
Ragnar Kristinn Kristjánsson hjá
Flúðasveppum var einn leikfélaga
Pálma í Sæviðarsundinu. „Við vomm
engir sunnudagaskóladrengir; ætli
einhverjum hafi ekki fremur þótt við
fuUfyrirferðamiklir, jafnvel fundist við
vera hrekkjusvín, en við brölluðum
mikið enda Pálmi kátur og fjömgur
strákur, fullur atorku," segir Ragnar
Kristinn en þeir hafa allar götur síðan
haldið vináttu og átt mikil og góð
samskipti.
Drengirnir gengu í Langholtsskóla
en eftir bamaskólapróf veiktist móðir
Pálma og hann var sendur burtu í
skóla að Núpi í Dýrafirði. Þar leið hon-
um vel og minnist Pálmi þeirra ára
sem hann dvaldi á Núpi með mikilli
hlýju. Þar lærði hann að treysta á sjálf-
an sig og árin þrjú vestra vom honum
góður undirbúningur fýrir lífið.
í viðtali við Morgunblaðið á síð-
asta ári þegar Pálmi keypti Skeljung
segir hann meðal annars: „Ég er bara
venjulegur strákur úr Reykjavík. Ég
ólst reyndar upp við mjög erfiðar að-
stæður. Faðir minn var óreglumaður
og ég ólst upp við fátækt hjá móður
minni, sem er hetjan í mínu lífi, og
þetta endaði með því að ég var sendur
í heimavistarskóla að Núpi í Dýrafirði
þegar ég var fjórtán ára gamaU."
Núpur var á þessum árum undir
forystu Bjama Pálssonar og konu
hans Valborgar Þorleifsdóttur. Pálmi
þakkar þeim og móður sinni hve vel
hann komst í gegnum unglingsárin.
Bætir við að það hafi verið
mikil reynsla að
standa allt í einu
einn með ekk-
ert nema
ferðatösku
og hafa
ekki á ann-
t an að
% treysta.
* Pálmi var á
Núpi í þrjú ár
og segir í
þessuviðtaliað
árin í Dýrafirð-
inum hafi verið
erfið og mótað
sig mikið.
Kaus hraðann fram yfir
doktorsnám
Eftir heimkomuna fór Pálmi í Fjöl-
brautaskólann í Ármúla og kunni þar
vel við sig. Þar lauk hann stúdents-
prófi og hélt síðan til náms í Gauta-
borg þar sem hann lauk viðskipta-
fræðiprófi og MSc-meistaragráðu í
reiknishaldi með sérstaka áherslu á
endurvakningu félaga í erfiðleikum.
Hélt síðan síðan áfram doktorsnámi
en lauk því ekki. Pálmi hefur sagt að
hið akademíska umhverfi hafi ekki
hentað lífsstíl hans og þeim hraða
sem hann vildi hafa á hlutunum og
því séð fram á að doktórsnámið
myndi ekki gagnast honum sem
skyldi. Því sneri hann heim án dokt-
orsnafhbótar.
Einhvem tfrna á skólaárunum
starfaði Pálmi sem sölumaður hjá
Partner sem seldi samnefndar galla-
buxur og vom nokkuð vinsælar á ár-
unum eftir 1980. Sögð er sú saga af
honum að skipulögð hafi verið sölu-
ferð í hvert krummaskuð um landið
sem taka átti tíu daga. Vonir stóðu til
að eitthvert ákveðið magn af buxum
yrði selt í ferðinni. Þremur dögum síð-
ar kom Pálmi tíl baka, buxnalaus og
hafði selt margfalt það magn sem
menn höfðu ráðgert að hægt væri að
selja. Þar sýndi hann kraftínn og við-
skiptahæfileikana sem hann býr yfir
og hafa síðan komið sér vel í hörðum
heimi viðskiptanna.
Ragnar Kristínn vinur hans man
þessa tíma vel og rifjar upp að Pálmi
hafi einhverju sinni einnig ætlað að
verða vélsmiður. „Mig minnir að það
nám hafi staðið yfir í einn dag enda án
efa ekki við hans hæfi,“ segir Ragnar
og bætir við að viðskiptin fari vini sín-
um mun betur. „Hann er svo
töluglöggur að hann þarf ekki annað
en að fletta ársreikingum í gegn rétt
augnablik til að sjá hvað þar er að
finna. Hann er fljótari að reikna en
nokkur tölva og afskaplega harður í
viðskiptum. Fylginn sér og mjög klár,"
segir Ragnar Kristinn.
Sértækifærin langt
fram í tímann
Fleiri vinir Pálma taka undir orð
Ragnars Kristíns þegar talað er um
viðskiptahæfileika hans. Hann sé
nánast ofvití á tölur og sé fljótari að
átta sig á heildarmyndinni en nokkur
annar. Hann sé fhimkvöðull, afskap-
lega klár og duglegur. „Pálmi veður
ekki að neinu, en er framsýnn eins og
aliir frumkvöðlar og sér því tækifærin
langt á undan öðrum. Eins og aðrir
hæfileikamenn á hann létt með að
greina hismið frá kjamanum og er
ekki að velta smáatriðunum fyrir sér,“
er nær samdóma álit vina hans.
Eftir námið í Svíþjóð sneri Pálmi
heim þegar Ragnar Kristinn vinur
hans hringdi og fafaðist eftír honum
til vinnu fyrir Sölufélag garðyrkju-
manna. Það var árið 1991 en Sölufé-
lagið hafði verið rekið með miklu tapi.
Hann var fljótur að snúa því við og
strax á fyrsta ári var Sölufélag garð-
yrkjumanna farið að sýna hagnað.
Stór þáttur í þeim viðsnúningi var
samningur við Bónus en meðal þeirra
erfiðleika sem Sölufélagið hafði átt í
var treg sala þangað vegna ágreinings
um verð. Það varð til þess að oft vom
ekki tíl ákveðnar tegundir grænmetís
svo dögum skiptí í Bónus. Pálmi sá
möguleikana í samvinnu við fyrirtæk-
ið, kom á fundi við þá Bónus-feðga og
samdi. Upp úr því fór grænmetíð að
seljast afmennilega og Sölufélagið
seldi meira en nokkm sinni hafði ver-
ið gert áður í stað þess að menn væm
stöðugt í einhverri baráttu.
Orðheldinn og heiðarlegur
JónÁsgeir Jóhannesson sem þá var
framkvæmdastjóri Bónuss kynntíst
Pálma þá. „Hann er töffari í viðskipt-
um, því áttaði ég mig strax á,“ segir
Jón Ásgeir og lilær en bætir við að það
hafi ekld leynst hve eldklár hann væri.
„Pálmi seldi okkur grænmetí og samdi
um verð og við urðum strax góðir fé-
lagar. Hann er skarpur að sjá sóknar-
færin og vinna úr þeim en dálítíð sér-
stakur og á það til að verða bráður.
Grænmeti Mikill uppgangur var I sölu
grænmetis á meðan Pálmi stýrði Sölufélagi
garðyrkjumanna.
Betri félaga er vart hægt að finna og
við höfum unnið vel saman. Það er
mildll kostur að vinna í félagi við
menn eins og Pálma en hann er mjög
ábyggilegur og orð hans þarf ekki að
setja á pappír því hann er bæði orð-
heldinn og stálheiðarlegur í viðskipt-
um,“ segir JónÁsgeir.
Öll árin sem Pálmi rak félagið var
það rekið með hagnaði og þurftí ekki
aukið íjármagn í reksturinn. Fengur
varð til nokkrum árum síðar, eða í
kringum 1995. í upphafi bauðst bænd-
um að kaupa sig inn í Feng, en þeir
höfðu ekld mikinn áhuga. Pálmi og
Ragnar Kristinn keyptu þá í félaginu auk
Jóhannesar Kristinssonar úr Banönum
M en hann er enn viðskiptafélagi
Pálma og keypti meðal annars með
honum Sterling og Maersk.
Fjölskyldan gengur fyrir
Pálmi er kvæntur Höllu Rannveigu
Halldórsdóttur sem stundar nám í ís-
lensku við Háskóla íslands. Þau
kynntust fyrir tíu árum og eiga alls
flögur börn: Ragnar Gabríel 14 ára,
Bryndísi Silju 13 ára, Markús Pálma 7
ára og Finn Tómas 4 ára.
Ofviti á tölur og
menn
Undir þessi orð Almars
taka fleiri vinir Pálma og segja
að það sé í anda hans að taka ekki
eftír útliti manna eða fatastíl. Halla
Rannveig eiginkona hans segir að það
þýði ekkert að spyrja í hveiju menn hafi
verið eða hvort þeir séu rauðhærðir eða
ljóshærðir, hvítir eða svartir. „Hann
gæti frekar sagt manni hverrar ættar
maðurinn væri eða munað kennitölu
hans," segir Halla Rannveig og tekur
fram að hún sé alls ekld að ýkja. „Hann
F
Pálmi er mikið fjarri vegna við-
skipta sinna, einkum er hann í Bret-
landi en einnig á Norðurlöndunum.
Hann á annað heimili í London og
þangað koma kona hans og böm um
helgar ef Pálmi kemst ekld heim. Hann
leggur þó mikla áherslu á að vera ekki
lengur fjarri fjölskyldunni en nokkra
daga í einu en kona hans hefur gantast
með það að fjarvera hans sé ekki meiri
en ef maður hennar væri flugmaður
eða flugþjónn. Oftast heldur hann
utan á mánudegi eða þriðjudegi en
kemur aftur heim á fimmtudegi eða
föstudegi. Þá sækir hann bömin í skól-
ann og nýtur helgarinnar heima með
konu og bömunum fjórum.
Fordómalaus og alþýðlegur
Á sumrin er ekki eins mikið um að
vera í viðskiptunum vegna sumarleyfa
en eðli málsins samkvæmt er ekki eins
Qömgt athafnalíf í heiminum á þeim
tfma. Þá ferðast fjölskyldan talsvert,
mest hér innanlands og veiði nýtur
mildlla vinsælda bæði hjá drengjun-
um hans sem aðeins em íjögurra og
sjö ára og Pálma sjálfum.
Almar forstjóri Steriing er mágur
Pálma auk þess að hafa starfað náið
með honum bæði sem forstjóri
Iceland Express og nú hjá Sterling.
Hann hefur þekkt Pálma allar götur
frá því þau systir hans Halla Rannveig
fóm að vera saman. Almar segist
aldrei hafa lcynnst öðrum eins manni
og Pálma, hann sé einstakur í sinni
röð. „Hann er með skemmtilegri
mönnum, mikfil húmoristi og gaman
að vera með honum. Sýn hans á Mut-
ina er alveg einstök en ég hef oft setíð
með honum og rætt málin. Hann sér
vanalega hvítt þar sem ég sé svart.
Hann sér alls staðar tækifæri og er
fljótur að átta sig á hvemig landið ligg-
ur,“ segir mágur hans og tekur fram
að Pálmi komi oft á óvart. Hann sé
ekki þessi hefðbundni bissnesmaður,
alltaf blátt áfram og eðlilegur. „Pálmi
er þessi fordómalausi maður sem er
alfarið laus við snobb og spyr hvorki
um stétt né stöðu,“ segir Almar.
f- ’ , o Tr v~' ' “ 5? •’ !/^í
„Ég ólst reyndar
upp við mjög erfíð-
araðstæður. Faðir
minn var óreglu-
maður og ég ólst
upp við fátækt hjá
móður minni, sem
Sólvallagata Pálmi býr með
fjölskyldu sinni I glæsilegu
húsiigamla Vesturbænum.
er náttúrlega ofvití á
tölur og svo mikill mannþekkjari að
það jaðrar við að vera ekki eðlilegt. Ætli
hann hafi ekki þetta sjötta skilingarvit
sem svo fáum er fengið. Hann þarf ekki
annað en að tala augnablik við fólk til
að átta sig á því. Fljótur að sjá hveijum
er treystandi og hveijum ekki. Hann
hefur ímugust á fólki sem tekur í hönd
hans og stendur síðan ekld við orð sín.“
Til í að borga meira fyrir gæði
Halla Rannveig heldur því einnig
ffam að maður hennar sé afskaplega
blátt áfram, hreinn og beinn og heil-
steyptur. „Hann veltir útlitinu ekki
mikið fyrir sér og gætí þess vegna far-
ið út í einum sokk bláum og hinum
hvítum í úthverfúm bol. En Pálmi er
alltaf Meinn og snyrtilegur, hann tek-
ur eftir því ef á honum er blettur.
Hann lætur sig litlu skipta hvar hann
kaupir föt svo lengi sem þau em góð.
Honum finnst í lagi að borga fyrir
gæði en ekki bara fyrir merkið,“ segir
Halia Rannveig og tekur fram að
v .
mm
Pálmi
„Hann velt-
ir útlitinu
ekki mikið fyr-
irsér og gæti
þess vegna farið
út í einum sokk blá-
um og hinum hvítum í
úthverfum bol. En Pálmi
er alltafhreinn og snyrti-
legur, hann tekur eftijjjgíef
á honum erWSftur."
sé alls
ekki nísk-
ur, hann þurfi hins
vegar að sjá þau rök sem liggja að baki
því að það borgi sig að kaupa dýrt. Á
meðan hægt er að fá Mutinn ódýrari
og jafn góðan finnst honum það fá-
ráMegt að kasta peningum í ekki neitt.
En hann þolir hins vegar ekki drasl og
er fljótur að borga meira fyrir gæðin ef
þau em fyrir hendi. Hún bætir við að
enginn skyldi hætta sér út í rökræður
við Pálma ef röldn halda ekki. Það sé
honum afar mildlvægt að menn getí
útskýrt gjörðir sínar með rökum. ,,„Af
því bara" er ekki til í orðasafni heimil-
isins. Það kemst enginn upp með að
svara þannig. Þar kemur hans
akademíska menntun best í ljós," seg-
irhún.
Stór á alla kanta
Einar Þór Sverrisson, lögmaður
Pálma, hefur þekld hann síðan Pálmi
kom til starfa hjá SölMélaginu á sín-
um tíma. Einar var þá starfsmaður á
lager á meðan hann stundaði nám í
lögfræði við Háskóla íslands. Sú stað-
reynd að hann væri lag-
ermaður kom ekki í veg fyrir að þeir
Pálmi næðu vel saman. „Það fylgdi
honum dálítill gustur þegar hann kom
tíl starfa en mér líkaði strax vel við
hann," segir Einar Þór. „Pálmi er stór á
alla kanta, með stórt hjarta, stóra
hugsun, sterka réttlætiskennd, mik-
inn húmor og miklar gáfur. Það er
sama hvar litið er á, hans kostir em
stórir í sniðum. Pálmi er einstaklega
skemmtilegur maður sem gaman er
að vera nærri og vinna með,“ segir
hann en þeir Pálmi em góðir vinir og
hafa mildl samskipti utan vinnu.
Pálmi er milcill bamakall og fjöl-
skyldan er honum mjög mikilvæg.
Vinir hans segja að hann sé vel giftur
en þau Halla Rannveig eiga vel saman
og em náin. Hún hefur sjálf sagt að
hún gætí ekki haft það betra og er af-
skaplega ánægð í hjónabandi sínu
með Pálma. Synir þeirra em mikir
pabbastrákar og Halla Rannveig hefur
gantast með að það sé þegjandi sam-
komMag á heimilinu að ljóstra því
ekki upp að Pálmi sé mildll klaufi í
höndunum en hann skrúfi ekki upp
ljósapem svo vel sé. „Þeir trúa því statt
og stöðugt að pabbi þeirra sé „Lalli
Almar Örn Hilmarsson ForstjórSterling er
bróðir eiginkonu Pálma.
lagari" og getí gert allt. Hann er þeirra
ímynd og við vitum hverrng sú
karlímynd þarf að vera,“ segir hún
Mæjandi og bætir við að það sé degin-
um ljósara að það sé ekki sterkasta
hlið Pálma að vinna með höndunum.
Höfúðið sé hans verkfæri.
Reglusamur og hættur að
reykja
Halla Rannveig veit sem er að þó
að pabbi kaupi flugfélög og fjárfest-
ingar skili hundmðum milljóna,
finnst litlum sjö ára guttum ekki mik-
ið til þess koma.
í London búa þau hjón í Chelsea
þegar þau em þar og haga sínu lífi rétt
eins og hver önnur bresk fjölskylda.
Hér heima em þau h'tíð út á við, held-
ur kunna best við sig heima með
bömunum og nota ffítíma sinn til að
sinna hvort öðm. Lengi vel reykti
Pálmi mildð en er hættur því. Hann er
reglusamur og vinnusamur en kann
að slaka á í fritíma sínum. Samband
hans við móður sína og systur er gott
og ræktar hann það á sinn hátt. Gam-
an er að segja frá því að móðir hans
sem komin er á áttræðisaldur fylgist
náið með því sem Pálmi er að gera og
hún getur rætt við hann viðskipti eins
og hver annar viðskiptMélagi hans.
„Það er ekki spurning hvaðan honum
er komið viðskiptavitíð," segir Halla
Rannveig og bætír við að Auður sé
stolt af stráknum sínum. Enda má
hún vera það því fáir hafa náð eins
stórkostlegum árangri á viðskipta-
sviðinu og Pálmi Haraldsson í
Feng. Pálmi hefur á síðusM
vikum staðið í hörðum
samningaviðræðum
við FL Group um
kaup þess á
flugfélögun-
um Sterling
og Maersk.
Talið er að
kaupverðið verði 15 milljarðar en fyrir
Sterling greiddu Pálmi og félagar 4
milljarða fyrr á árinu. Söluverð Ma-
ersk hefur ekki verið gefið upp en talið
er að Pálmi hafi tekið félagið yfir án
þess að þurfa að greiða fyrir það þar
sem Maersk var í verulegum fjárhags-
legum vanda. Hagnað- _
urinn M þessum við- ^
skiptum er því um ,
11 mfiljarðar ef rétt f
reymst. Pálmi Har-,
Mdsson fagnar því j
enn á ný sigrum í'
viðskiptum eins og _
mörg undanfar-
inár.
Hannes Smárason Hannes og
Pálmihafa sfðustu vikursetið og
samið um kaup FL Group á Sterling.