Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.2005, Blaðsíða 54
Húbert Nói
mm
fei'*. /ÍV''
•HStttódSf
Freyja komin
heim og blæs í
Iðnó á morg-
Freyja Gunnlaugsdóttir ætlar
að halda einleikstónieika í Iðnó
á morgun kl. 15. Þar mun hún
leika á klarinettuna sína verk
eftir Igor Stravinsky, Luciano
Berio, Henri Pousseur og Steve
Reich. Freyja hefur nýlokið
námi við tónlistarháskólann í
Berlín þar sem kennari hennar
var Karlheinz Steffens sólóklar-
(nettuleikari við Berlínarfíl-
'harmóníuna. Freyja hefur leikið
á fjölda einleiks- og kammer-
tónleikum víða um Evrópu og í
Asíu og vann fyrstu verðlaun
fyrir flutning í Hanns Eisler-nú-
tímatónlistarkeppninni í Berlín.
Freyja hefur meðal annars leikið
með Staatsorchester Frankfurt,
hljómsveit Komische Oper,
Berlin, Berliner Symphoniker og
Óperuhljómsveitinni í Madríd.
Hún heí'ur einnig unnið með
myndlistarmönnum á borð við
Bruce Neumann og Pippilotti
Ritz og leikið á klarinett við
‘beutsches Theater (Berlín.
„Unnendur glæpasagna verða ekki sviknir af nornatíma Arna frekar en fyrri
sögum hans. ...Ekki bara vegna spennandi og flókins plotts...“
Það er orðin lenska hjá (slensk-
um glæpasagnahöfundum, líkt og
hjá erlendum kollegum þeirra, að
skrifa bók eftir bók þar sem sömu
persónur koma við sögu. Það þyk-
ir mér afbragðs siður enda alltaf
notalegt að hitta kunnuglegar per-
sónur aftur, ekki síst þegar þær
koma jafn skemmtilega á óvart og
raunin er í nýjustu bók Áma Þór-
arinssonar, Tími nomarinnar. Þar
er aðalsöguhetjan Einar hjá Síð-
degisblaðinu, sá slyngi og úrræða-
góði blaðamaður sem margir
glæpasagnaunnendur kannast
ugglaust við úr fýrri bókum höf-
undar; Nóttin hefur þúsund augu,
Hvítu kanínunni og Bláu tungli.
Lentur á Akureyri
Nú hefur Einar þó verið færður
um set, frá havaríinu í Reykjavík
og yfir í rólegra umhverfi, nánar
tiltekið til Akureyrar þar sem Síð-
degisblaðið hefur stofnað útibú í
von um að krækja sér í fleiri les-
endur. Einar er ekki par glaður
með þessa ráðstöfun í upphafi en
af nýfundnu æðruleysi reynir
hann að sætta sig við ástandið.
Enda fær hann fljótt um annað að
hugsa því ýmislegt válegt gerist á
Akureyri og nágrenni, líkt og ann-
ars staðar í veröldinni. Kona fellur
dauðadrukkin og útúrdópuð úr
bát í Jökulsá vestari og deyr
skömmu síðar á sjúkrahúsi. Einar
fær vísbendingar um að eitthvað
sé gmggugt á ferð en þegar lög-
reglan úrskurðar atburðinn sem
slys reynir hann að bægja þeim
hugleiðingum frá sér.
Líká haugunum
Fljótlega verður hann upptek-
inn af öðm máli því menntaskóla-
neminn Skarphéðinn Valgarðsson
finnst látinn á haugunum og fljót-
lega er ljóst að um morð sé að
ræða. Einar hafði stuttu fyrir
morðið tekið viðtal við Skarphéðin
í tilefni þess að leikfélag MA ætlaði
örfáum dögum seinna að fmm-
sýna Galdra-Loft með Skarphéðin
í hlutverki Lofts. Skarphéðinn
kemur Einari afar vel fyrir sjónir
en honum er lýst sem fjalimyndar-
legum, gáfuðum og reglusömum
og allir bera honum vel söguna.
En því betur sem Einar rann-
sakar fortíð Skarphéðins því dul-
arfyllri verður persóna hans.
Skarphéðinn mætir t.a.m. íklædd-
ur nornakufli í partíið sem er hald-
ið fyrir ffumsýninguna, hegðar sér
eins og andskotinn og hrópar yfir
liðið að hann beri ægishjálm yfir
alla aðra. Þetta athæfi þykir Einari
í meira lagi skrítið og ekki í anda
þess prúða pilts sem kennarar og
félagar lýsa en áður en öll kurl
kemur til grafar kemur í. ljós að
Skarphéðinn virðist lengi vel hafa
hafi lifað sig helst tii mikið inn í
hlutverk Galdra-Lofts sem engar
siðareglur virti og fórst fyrir vikið.
Óljós hugboð
Á sama tíma og Einar rannsak-
ar Skarphéðinsmálið blandast
önnur mál inn í tilveru blaða-
hauksins, svosem eins og pólitísk-
ar væringar á Reyðargerði og
pörupiltar þar á bæ sem taldir eru
tengjast dauða Skarphéðins.
Einnig heldur mál konunnar sem
féll í Jökulsá vestari áfram að angra
huga hans þó hugboðin séu óljós.
Alls staðar gengur Einar þó á veggi
og Skarphéðinsmálið virðist óleys-
anlegt. En að sjálfsögðu leysir Ein-
ar málið að lokum og þær mála-
lyktir koma verulega á óvart, eigin-
lega skelfilega á óvart svo ekki sé
meira sagt.
Nýjar og notalegar hliðar
Unnendur glæpasagna verða
ekki sviknir af nornatíma Árna
frekar en fyrri sögum hans en eins
og ég sagði hér í upphafi þá kom
þessi saga skemmtilega á óvart.
Ekki bara vegna spennandi og
flókins plotts heldur vegna þess að
Áma hugkvæmdist að láta Einar
taka sér pásu frá viskýinu sem
hann í fyrri bókunum lét ofan í sig
í ómældu magni með tilheyrandi
timburmönnum, sjálfsásökunum
og mannfýrirlitningu. Bindindið
gerir karlinum gott, lesandi sér á
honum nýjar og notalegri hliðar
þó vissulega sé stuttur í honum
þráðurinn, einkum og sér í lagi í
tengslum við yfirmenn. Það er
alltaf gaman að sjá nýja fleti þó ég
hafi reyndar sterkiega á tilfinning-
unni að Einar birtist lesendum
sjóðfullur í næstu bók. En það er
Önnur saga! SigrlðurAlbertsdóttir
Tracy Emin
Verk hennar eru
til sölu á Frieze.
Japanskur krimmi með kvenhetjum í helstu aðalhlutverkum
Konurnar á næturvaktinni
Á þriðja ár hefur breska lista-
tímaritið Frieze staðið fýrir
*kaupstefnu í London um þetta
leiti. Hún er haldin í Regent
Park og þar koma nú 160 gallerí
saman og sýna nútímalist. Til
London fljúga kaupendur úr öll-
um heimshornum, það er röð
að komast inn (kostar 15 pund)
og Jón og Gunna kaupa sér
listaverk. Stefnan stendur í fjóra
daga með sérstökum aukadegi
fyrir söfn. Þarna mun vera eitt
besta tækifæri fýrir almenna
safnara að ná sér í verk eftir lif-
andi iistamenn. Stundum eru
þeir á staðnum og kynna sjálfir
möppurnar sínar. Það leiðir oft
til heimsóknar á vinnustofur. Af
hverju drífa íslenskir myndlist-
^rmenn sig ekki í eina svona
í'íelgi?
Næturvaktin er langur spennu-
tryllir (433 bls) sem leynir á sér og
reynist geyma miklu meira en frá-
sögn af tilgangslitlu morði og tiltæki
þriggja kvenna sem deila næturvakt
í matvælaverksmiðju sem vilja
hjálpa þeirri fjórðu, samstarfskonu
sinni og morðingja.
Sagan kom út í Japan 2002. Þýð-
ingin unnin eftir bandarískri þýð-
ingu - japönskukunnátta Jóns Halis
Stefánssonar hefur farið lágt. Forlög
eiga að taka það fram ef þýtt er eftir
þýðingum. Texti Jóns á íslensku er
snoturlega unninn, dálæti hans á
orðinu subba vekur athygli og bókin
er laklega prófarkalesin.
En spennandi er sagan og lam-
andi í lýsingum sínum á bágum
kjörum kvenn-
anna sem vinna á H
naáurvaktinni,
ömurlegum að- I
þeirra
við, og síð-
an hvernig þær I
dragast hægt og I
stillilega inn í al- I
og alvar-
legri aðstæður
sem á endanum
reynast þeim of-
viða. Um leið er
lesanda gefin inn-
sýn í samfélagið í Tókíó, harð-
neskju á heimilum og vinnustöðum,
mengun og félagslegar meinsemdir:
vændið Og
■ spilafíkn, okur-
I lán og ofbeldi.
Þegar þær
I stöilur eru langt
I leiddar og þrír
I karlmenn eru
rM. ^ teknir til við að
1 skipta sér mál-
■ um þeirra, verð-
■ urhugmyndhöf-
■ undarins um
meginefni verks-
ins æ skýrari og lesandi heltekinn af
spennunni, verður að stoppa sig af
og spytja: hvað vill þessi söguhöf-
undur mér? Hvað er hún að segja?
Natsuo er útsjónarsamur höf-
undur og gædd næmum skilningi á
mannlegum breyskleika. Frásögn
hennar er ekki ýkja nútímaleg en
afar sannfærandi og hún er flink í að
stýra spenningnum með áhrifum úr
umhverfi. Keimur frá film-noir-
kvikmyndum er sterkur í sögunni og
um leið sú lífssýn að maðurinn er
glataður og dæmdur til að farast. En
spennandi lesning er þessi þýðing.
Páll Baldvin Baldvinsson
Kiríno Natsuo
Gæddnæmum
skilningi á mann-
legum breyskleika.
Húbert Nói í Duushúsi
Nú er hafin sýning Húberts Nóa f
Ðuushúsi ( Reykjanesbæ á vegum Lista-
safns Reykianesbæjar. Sýningin berheitið
12 m.y.s (Altitude) og samanstendur af
tveimur myndröðum og videoverki. Hú-
bert Nói vinnur verk sín út frá GPS punkt-
um og er önnur myndröðin 5 mælipunkt-
ar frá uinhverfi Hjaitiandseyja og hin 5
mælipunktar viö Búrfeli. Videoverkið er af
biásandi háhitaborholu sem líta má á sein
myndbirtingu skapandi athafnar. Húbert
hefúr haldið fjöida einkasýninga, en verk
hans hafa selst víða um lönd. Sýningin
stendur til 5. desember.
Timi
nornarinnar
Árni Þórarins-
son
JPV-útgáfa
2005
Verð: 4680 kr.
tlíril
noiu\ya»»'>o,VR
ARNI fOMÍIHSSQH
★ ★★
Bókmenntir
Kirino Natsuo:
Næturvaktin
Þýðandi: Jón
Hallur Stefáns■
son
Bjartur 2005
Verð: 3980 kr.
Bókmenntir
54 LAUGARDAGUR 22. OKTÓBER 2005_________________________________________________________Menning DV