Símablaðið - 01.12.1941, Qupperneq 37
S í M A B L A Ð 1 Ð
47
Móttakarinn: Þegar rafstraumur fer um vöf rafsegulsins E, dregur hann
ritstöngina R til sín, og ritblýið S setur skástrik á pappírsrenninginn,
sem rennur undir þvi. Þegar rafstraumurinn hættir, dregst ritstöngin
til baka af fjaðurkrafti.
Sendirinn: Straummerkjunum er stjórnaS af stöfurn, sem raSaö er í skeiS-
ina T. Meö sveifinni K er skeiöin dregin undir lykilinn H, sem við
hvern staftakka lokar straumrás rafvakans B.
Stafirnir eru „códe“-stafir. Voru þeir settir í skeiö sendisins og lesnir á
móttökustööinni meö hjálp sérstakrar orðabókar. Núllmerkiö var látið
tákna, að tölustafir færu á eftir.
Móttakari Sendir
......................................—-v ... .. I
| ..'• | siafír:
• ‘ .-■' ■ f.i
gy.. aj ölj
'ki la Qj öib
‘ I * .
'tffín
.3 ,1 t> 113 O.t I’ I « . ..1 , l
Þýðing'með orðabók: heppnuð tilraun með rilsíma september 4.
1837
Fyrsta október 1832 liafði Morse lagt af
stað með póstskipinu „Sully“ frá Le
Havre áleiðis til Ameríku. Um borð bitti
liann eðlisfræðinginn Dr. C. Jackson frá
Harward-College í Boston, sem skýrði
bonum frá nýjum raffræðilegum til-
raunum, sem gerðar böfðu verið, og
datt þá Morse i hug, að nota rafsegul-
magn til fjarskeytaflutnings. Strax á
skipinu gerði hann lauslegan uppdrátt
af ritsímatæki, og sjálfur taldi hann tæk-
ið hafi verið fundið upp 13. okt. 1832.
1835 sýndi bann vinum sínum, frum-
burðinn: tæki byggt á málaragrind með
risa-rafsegli, en langdragið var þó að-
eins liálf míla. Til að auka langdragið
fann Morse upp rafliðann (Morsemagn-
ara). Fjæsta september 1837 frétti hann
um ritsímatilraun í Evrópu og daginn
eftir sýndi hann áhald sitt í háskólan-
um. Línan var tvöfölld eirlína, 1700 feta
löng, og 28. sama mánaðar fckk hann
einkaleyfi á uppfindingunni.
Enn var ísinn þó ekki brotinn fyrir
Morse, en hann endurbætti tækin stöð-
ugt og 1843 voru lionum loks veittir
30.000 dollarar til að leggja tilrauna-
línu milli Washington og Baltimore, 65
km. Fyrst ætlaði Morse að leggja jarð-
síma milli borganna, en uppgafst við
að halda honum heilum, síðan lagði
liann tvöfalda eirlínu, sem var einangr-
uð með bómull og gúmmí og bengd á 9
m. staura.
Fyrsta skeytið á línu þessari var sent
27. maí 1844. Seint á sama ári frétti
Morse frá Evrópu, að hægt væri að nota
jarðsambönd í stað annars vírsins
(Steinheil 1838 í Þýzkalandi) og breytti
liann þá til.