Símablaðið - 01.12.1941, Blaðsíða 53
S í M A B L A Ð 1 Ð
63
Símalínumennirnir
búa ekki alltaf við
sveitasælu og sól-
skin. Stundum vinna
þeir lang't fram á
liaust, eftir aö snjóa
tekur, og er þá oft
kalt í tjöldunum. —
Hér á myndinni sést
hópur simamanna á
leið til nýrra bæki-
stööva.
urum og fullkomnum og hraövirkum tækj-
um.
Aö lokum ætla eg aö láta fylgja hér ofur
lítið sýnishorn af afgreiðslunni. Á siðastl.
hausti, þegar síminn til útlanda slitnaði,
varð öll afgreiðsla að fara fram loftleiðis,
en vegna slæmra skilyrða og af öðrum ó-
viðráðanlegum ástæðum, safnaðist saman
talsvert af óafgreiddum símskeytum, öðru
hvoru. Einn daginn, þegar skilyrði voru
fyrir hendi, voru afgreidd héðan til og frá
London-radio ca. 700 skeyti á 12 kl.tímum.
Fær nú greinarhöf. nokkurn til að trúa því,
að svona afgreiðsla eigi sér stað með úr-
eltum tækjum og kunnáttulausum símrit-
urum. Sg.
Páll Zophoníasson og vænu ærnar!
Sunnudag nokkurn hringdi Páll Zopho-
niasson alþingismaður til ritsímans. Var
hann allhress í brag'ði, eins og venja hans
er. Óskaði hann, að fá „nánari upplýsing-
ar“, eins og hann orðaði það, um nýtt fjár-
kyn í vissu héraði á Austurlandi. Kvaðst
hann nýlega hafa móttekið skeyti frá trún-
aðarmanni Kjötverðlagsnefndar. Slátrað
hafi verið 20 ám og reyndist kroppþunginn
20,776 kgr. Þetta hafa verið sómaskepnur
í lifancla lífi, sagði Páll, og ekki er að sjá,
að þeir hafi mikið a'f pestinni að segja
þarna fyrir austan, þar sem hver ær hefur
haft á annað þúsund kgr. kroppþunga!
Eg segi ekki niðurlag sögunnar!
(Birt með leyfi Páls).
Símastöðin með dónalega nafninu.
Dag nokkurn kom ungur og feimnisleg-
ur maður inn á landssímastöð nokkra og
lagði inn samtalsbeiðni. Vildi hann tala við
tiltekinn mann kl. 6 e. m. og skildi hlutað-
eigandi mæta á símastöðinni Smáfuglastöð-
um. En þótt leitað væri með logandi ljósi,
reyndist stöð þessi ekki finnanleg hér á
landi. Er samtalsbeiðandi mætti til viðtals-
ins, var honum tjáð, að ekki gæti orðið af
umbeðnu símtali, þar sem engin stöð með
þessu nafni væri til. Eftir nokkurt þóf ját-
aði maðurinn, að eiginlega héti nú stöðin
ekki þessu nafni, en sér fyndist hið rétta
nafn hálf dónalegt, en hélcli, að símastúlk-
urnar myndu skilja hvað hann ætti við, þó
nafnið væri nefnt með kurteislegum orðuni.
Nú getur hver sem vill fundið rétta nafn-
ið. — En máske hefir símastjórnin litið
eins á málið og símtalsbeiðandi, því hún
hefir lagt stöð þessa niður.
Bezta vernd gegn sólbruna á ferðalögum er
NIVEA-CREME
Heildsölubirgðir: STURLAUGUR JÓNSSON & CO.