Símablaðið - 01.12.1941, Side 57
S í M A B L A tí l tí
(>7
mikiö á skort. Eg býst viö, aö þar sé a‘ö
finna orsök þess, hve margir félagsmenn
viröast láta sig litlu skifta störf félagsins.
Stórt spor í rétta átt var stígið til aS bæta
úr þessu, meö landsfundi símamanna, sem
haldinn var í Reykjavik sumariö 1938, og
halda á ööru hvoru framvegis.
Þaö er ekki einsdæmi, aö maöur heyrir
sagt, einkum þegar veriö er aö innheimta
félagsgjöldin: „Hvaö á eg aö gera í þesstt
félagi? Hvaö gerir þaö fyrir mig?“ Þe'ss-
um mönnum og konum vil eg benda á
þetta: Stjórn félagsins hefir frá upphafi
stööugt unniö aö hagsmunamálum félag-
anna, og það er henni að þakka, ásamt
skilningi forráðamanna stofnunarinnar, aö
simamannastéttin stendur jafn fösturn fót-
um og nú er.
Þá má minna á hin stórkostlegu hlunn-
indi, sem félagið veitti meölimum sínum
meö byggingu sumarbústaðanna. stofnun
styrktarsjóðs o. m. fl. Þaö er ekki stjórn
félagsins aö kenna, ef sumarbústaðirnir
eru ekki notaðir sem skyldi. Það er félög-
unum sjálfum aö kenna og þeirra skilnings-
leysi. Ötal margt fleira mætti benda á, en
hér er ekki timi til þess.
Góöir félagar! Verið áhugasamir um
störf félagsins, sýniö skilning og góða
samvinnu, í hinu þýðingarmikla starfi þess.
Að lokum vil eg í nafni okkar hér, og eg
vona í nafni allra félaganna út um land,
sem ekki hafa sjálfir tækifæri til aö flytja
kveöjur sinar, árna félaginu allra heilla í
framtíðinni. Eg vil þakka stofnendum þess
og öllum forvígismönnum þess frá upphafi.
. Og eg vil þakka forráðamönnum Lands-
simans fyrir auðsýndan skilning á starfi
þess.
Vil eg svo biöja alla, sem hér eru stadd-
ir, og helst alla, sem mál mitt heyra, aö
hrópa með mér ferfalt húrra fyrir félaginu.
ÞAÐ BEZTA ER ALDREI OF GOTT!
Jón Mathiesen
Sími 9101 • 9102.
ÁLEGG Á BRAUÐ — mikið úrval.
Daglega nýtt í matinn:
DILKAKJÖT —
SALTKJÖT —
NAUTAKJÖT —
SVÍNAKJÖT —
HANGIKJÖT —
KJÖT, HAKKAÐ —
FISKFARS —
KINDABJÚGU —
MIÐDAGSPYLSUR —
KJÖTFARS
HARÐFISKUR —
OG FLEIRA —
Allar mat-, nýlendu- og hreinlætis-
vörur með lægsta dagsverði.
Tóbak og sælgæti, stórt úrval
BRUNA-, LÍF-
OG
SJÓTRYGGINGAR.