Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1941, Side 40

Símablaðið - 01.12.1941, Side 40
50 SIMABLAÐIÐ En það er ekki eingöngu á sviði launa, sem símvirkjum er sniðinn þröng- ur stakkur. Þótt eigi verði um deilt, nema með útúrsnúningum, að sím- virkjun er fag, engu síður en t. d. raf- virkjun, vélsmíði o. f 1., þá hafa þeir þó engin fagréttindi ennþá. Til þeirra eru nú gerðar miklar kröfur um langt nám og próf, jafnvel svo, að það tekur eigi skemmri tíma en 8—9 ár, að komast í byrjunarlaun 1. flokks simvirkja, ef maðurinn byrjar sem nemandi. Þá hafa þ(') simvirkjar enga tryggingu fyrir því, að ekki sé hægt, hvenær sem er, að taka algerlega ófaglærða menn inn í stofn- unina og Iáta þá vinna einstök störf á sviði símvirkja. Ennfremur er rétt að benda á það, að 8—9 ára nám, er aðeins lágmarkstími fvrir símvirkja að vinna sig upp í 1. fl., en engan veginn er víst að það gangi svo fljótt, heldur er það eingöngu háð dutlungum símastjórn- arinnar í hverju einstöku tilfelli. Tala símvirkja er takmörkuð í hærri flokk- unum, og ef fyrir er sú ákveðna tala, þá geta ekki fleiri fengið þar inngöngu, jafnvel þótt lokið hafi tilskildu prófi. Að vísu hefir hámarkstala ])essi verið rýmkuð frá því, sem fyrst var, en um það er símastjórnin vitanlega algjör- lega einráð. Námssamningur er plagg, sem símvirkjanemar ekki þekkja, og margir símvirkjar munu ekki enn hafa fengið ráðningarbréf, þótt unnið hafi mörg ár hjá stofnuninni. Að þessu athuguðu vaknar hjá manni sú spurning, hví símvirkjar séu skör lægra settir en aðrar iðnstarfandi stétt- ir í þjóðfélaginu. Tökum til dæmis raf- virkjann. Hann fær námssanming, og að loknu fjögra ára námi fær liann sveins- bréf, og er þá lögverndaður í sínu starfi, með fullum iaunum þegar í stað. Hann á svo þá framtíðarmöguleika, að geta orðið meistari og sjálfstæður í sínum atvinnurekstri. Sama gildir og um aðr- ar iðngreinir. Það er erfitt að telja sér trú um, það, að sá, sem gerir símvikjun að æfistarfi sínu, eigi að vera ver settur en aðrar hliðstæðar stéttir í þjóðfélaginu. Við að vinna hjá opinberu fyrirtæki missa þeir að vísu eitt sterkasta vopn allra vinnandi stétta, verkfallsréttinn, en með góðum skilningi hjá æðstu mönnum stofnunarinnar á þörfum starfsmann- anna, ætti að mega ná svipuðum ár- angri án hans. Skilningur á því ætti að vera fyrir hendi, að símvirkjum ber að fá lífvænleg laun þegar að loknu náiui. Hinn langi timi, 13 ár eða lengur, til að komast i hámarkslaun, á að hverfa. Eðlilegra væri þá að hafa náms- tímann eitthvað lengri, t. d. reynslutíma i 1 ár og svo námstími 4—5 ár. Yrði þá gjarnan lögð áherzla á að ekki verði G. BJARNASON & FJELDSTED e/m. KLÆÐAVERZLUN og fyrsta flokks saumastofa. HÖFUM ÁVALT FYRIRLIGGJANDí NÝTÍZKU FATAEFNI.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.