Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.12.1941, Side 46

Símablaðið - 01.12.1941, Side 46
S í M A li L A Ð I Ð 56 mjög greiðlega að liafa upp á honum, því bauja sú, sem látin var á nyrðri endann, gaf til kvnna, livar hins væri að vænta. Voru dregnir 8 metrar inn í skipið, þar af 6 metrar notaðir í „skantið“. Var hann síðan mældur af verkfræðingn- um, og reyndist hann einnig „pott þétt- ur“. — Þegar athugaður var slúfurinn, þótti manni harla ótrúlegt að hann gæti slitn- að. í hvorum leiðara eru sjö sverir kop- arþræðir, úr hreinum kopar, og er liin- um yztu 6 þráðum vafið utan um þann sjöunda, sem liggur réttur í miðjunni. Utan um þá eru síðan þrjú lög af þjöpp- uðn guttaperka, sem er einangrunin. Þar utan um koma tvö lög af „garvet jutegarn“, eftir að leiðararnir báðir hafa verið undnir saman með tveim lögum af þykku jutegarn, þá 14 þéttvafðir gal- vaniseraðir járnþræðir, og utan um það svo vafið tveimur lögum af tjörguðum bampi og smurt með kompoundmassa. Minna mætti gagn gera, en þetta dugar hvergi nærri, þegar bafrótið nær að koma hreyfingu á sæsímann og bann nuddast við ósléttan botninn. Lúðvík Nordgulen hófst þá handa við skeytinguna. Tók hann „armering- una“ af á 6 metra kafla. A streng þeim, scm átti að bæta inn i, var „armeringin“ tekin af á 30 cm„ koparvírarnir hreinsaðir upp úr eler og öðrum metalli og gljáfægðir. Þegar því var lokið, var miðþráðurinn klipptur úr þeim, og þeir fléttaðir saman, síðan lóðað, lakki roðið yfir og jafnað með til þess gerðum járnum; gúmmípjatla hituð og látin þar yfir, og jöfnuð með járnunum. Loks stingur Lúðvík tveim fingrum upp i sig og vætir í munnvatni, strýkur og jafnar yfir, og var það loka- þátturinn. Meðan á þessu stóð, voru tveir blúss- andi mótorlampar í fullum gangi, til að liita járnin, lakkið og fleira. Komust færri að en vildu, þvi kuldi var, norðan strekkingur með frosti, en góður hiti frá lömpunum, — og hand- tök Lúðvíks drógu að sér athygli skip- verja. Er kalsasamt að eiga við slíkar við- gerðir að vetrarlagi í misjöfnum veðr- uf. Kom það ekki ósjaldan fyrir áður fyrr, þegar viðgerðir fóru fram á varð- skipinu Þór, er liann var við bátagæzl- una hér við Eyjar, þegar hvessti snögg- lega á austan, að þeir þyrftu að yfir- gefa viðgerðina. Skipið fékk þá tilkynn- ingu frá loftskeytastöðinni, um að báta vantaði, og þess væri óskað, að þeir svipuðust um eftir þeim. Fór Þór þá á vettvang um allan sjó, leitaði báta uppi og aðsloðaði heim. Kristján Snorrason símaverkstjóri gæti tvímælalaust sagt ýmislegt frá slík- um aukatúrum. Verzlunitf'Vísir - matvöruverzlun. Vaxandi viðskipti sanna, að þeir, sem kaupa nauðsynjavörur sínar í Verzlunin VÍSIR, fá þar BEZTAR vörur fyrir LÆGST verð. GERIÐ INNKAUP ÞAR! REYNSLAN ER SANNLEIKUR! VERZLUNIN VÍ8IR Laugavegi 1. O Sími 3555. O REYKJAVÍK.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.