Símablaðið - 01.12.1941, Blaðsíða 54
64
SlMABLAÐlÐ
Baldvin Einarsson, söðla- & aktýgjasmíði
Laugavegi 53 — Reykjavík. Stofnsett 1905.
Framleiðir: Reiðtýgi, margar tegundir, Aktýgi, Beizli, Hnakk-
töskur, Klyfjatöskur, Klyfsöðla, Skólatöskur, Skjalatöskur, Verk
færatöskur, Belti og fleira.
Vörur sendar gegn póstkröfu.
Hver er starfinu
vaxinn.
í síðasta tbl. „Símablaðsins“ var
grein, er nefndist „Nýi tíminn og sím-
ritararnir". Grein þessi vakli að von-
mn nokkra athygli lijá þeim, sem þar
áltu mest hlut að máli og meðal sím-
ritaranna var hún aðalumræðuefnið
fyrstu dagana á eftir. Aftur á móti virt-
ist bún ekki hafa djúp áhrif á aðra,
sökum þess hvernig hún var skrifuð
og livernig höf. rökfærði þær kenning-
ar, er hann heldur fram. Skal hér nokk-
uð nánar vikið að þessari grein.
Greinin hefst með því að tala um
þær starfsaðferðir, sem á óvönduðu
máli eru nefndar „fúsk“ og skilgreinir
liöf. nokkuð þetta hugtak. „Fúskarinn“
verður viðskila við sína samtíð að því
er snertir þekkingu og tækni. Þekking-
arstig hans hefir kannske verið í sam-
ræmi við fortíðina, en ekki í samræmi
við þróun tímans og tækninnar. Höf.
gefur í skyn að símritararnir séu ná-
skyldir þessum, „fúskurum“ og að þeir
sþu að verða á eftir tímanum að því er
snertir afgreiðslutækni og tekniska
þekkingu og vélritunarstúlkur muni
brátt taka störf þeirra.
Vera má, að ýmislegt sé rétt sagt í
þessari grein. Hún ætti a. m. k. að geta
verið holl viðvörun til þeirra, sem telj-
ast vilja „starfi sínu vaxnir“. En ég liehl,
ef út í þá sálma er farið, að þeir sé
nokkuð margir, sem eru á eftir tíman-
um.
Þessir svokölluðu „fúskarar“ eru því
miður alll of víða til, bæði í hærri og
lægri stöðum þjóðfélagsins — menn,
sem standa utanhallt við stefnu tímans
líkt og steinrunnin tröll, þegar fyrsta
dagskíman mætti þeim. Sumir eru allt-
af á eftir tímanum með það, sem þeir
þurfa að gera. Þegar þeir svo ranka við
sér með að gera eittbvað, gefa þeir sér
ÖLL BÚSÁHÖLD
bezt frá
BIERIMG
Laugavegi 3. • Sími 4550.