Símablaðið

Volume
Main publication:

Símablaðið - 01.01.1947, Page 34

Símablaðið - 01.01.1947, Page 34
12 SÍMABLAÐIÐ uninn. Hann vantaöi hjálparmann til aö bera hæla og stikur. Hann valdi mig. Ég varö upp meö mér af því trausti sem mér fannst hann sýna mér meö þessu. Ég var ungur og leit jafnan til verkstjórans með lotningai. Þegar viö gengum fram með holunum sem verið var að grafa, tók einn karlinn sem Tryggvi hét, ofan haitkúfinn, á gleiö- gosalegan hátt, brosti og bauð góðan dag. Hjörnæs spýtti i áttina til hans og sagði: „Hold kjeft'b Tryggvi þessi var vinnumaður á bæ ein- um nærri Vopnafirði. Húsbóndi hans tók kaup eftir hann og var karlinn því aura- laus, en vann sér fyrir tóbaki, sem hann tuggði gengdarlaust, meö þvi að kveða visur i tjöldunum á kvöldin og herma eftir. ,Tók hann fimm aura fyrir hverja visu og áskotnaðist þannig töluvert, gátu félagar hans látiö hann gera hvað sem var fyrir aura eöa tóbak. Hann var lélegur verk- tnaöur og klaufvirkur og þess vegna ekki verkstjóranum að skapi. Við Björnæs gengum svo á staö þangað sem hann ætlaði aö stinga niður stikum sinum. Björnæs gekk á undan. Ég fór svo liratt sem ég komst á eftir, með stikurnar og hælana á öxlunum. Skömmu siðar kom- um viö að læk. Björnæs beygði upp með læknum, í Ieit aö stað til að stikla yfir a. Hann kallaði til mín: „Spring över gutt‘ . Ég þorði ekki annað en gera eins og hann sagöi. Ég henti mér út á stein í læknum, en missti fótanna og datt i vatniö. Björnæs sá hvað mér leið, kom hann hlæjandi til mín, hjálpaði mér til aö safna saman stik- unum og hælunum. Svo bar hann stikurnar eftir það. Ég kom á línuna aftur rétt íyrir matinn. Kristján Sveinsson var að enda við að hita kaffið. Hann var línukokkur og skeptari. Ahöld hans voru öxi, borsveif og hófjárn, sem hann beitti af mikilli list. Hann festi topphettur á staura, smiöaði hæla úr stauraendum, og hitaði kaffi á hlóðum við lyng og hris. Hann var jafnan í góöu skapi og tók því sem að höndum bar með trúar- leg'u litillæti og leit á ærsl íélaga sinna með heimspekilegri ró. Flestir neyttum viö matarins standandi. Ásigkomulag okkar var ekki þannig, að okkur fýsti að sitjast. Við tókum því ekki allan matmálstímann, en geymdum okkur afganginn til kvölds. Holdvotir og stígvélafullir þrömmuðum viö, að vinnutíma loknum, klukkutíma gang til tjalda, þar sem baunirnar og salt- kjötiö beiö okkar í stórum, rjúkandi skál- um. Það var um að gera að vera fyrstur til aö hremma bezta og stærsta bitann. Var því stundum hlaupið siðasta áfangann. Tjaldinu mínu hafði verið tjaldað við gamlar bæjarrústir. Þangað fór ég til að gera matnum skil. Við vorum sex í tjald- iuu. Við geröum okkur fleti úr blautum hálmdýnum og ýmsu ööru dóti sem til féll. Sænguríötin blotnuðu í flutningunum eins og viö var að búast. Var koddinn minn i klessu og batnaði ekki við að liggja út við tjaldiö, gengt rigningaráttinni. Við sem blautastir vorum liáttuðum þegar ofan í rök og köld sængurfötin. Setti að okkur skjalfta og skulfum við hver í kapp viö atinan þangað til okkur fór að hlýna. Gát- uln við þá farið að rabba saman eins og venja okkar var er svona stóð á. Fyrsta umræðuefni okkar var einn félagi okkar, Sveinn. Sveinn haíði verið að bera grjót dag- inn áður. Varð hann á milli steina og meiddjst allmikið á hendi. Var honum ráð- iagt að fara heint í tjöld og láta binda um sárið. Þoka var og rigning svo að varla sá lengd sina. Sveinn lagði af stað, en var ekkt kominn heini í tjöld um kvöldið. Sendi verkstjórinn þá menn til að leita hans. Fundu þeir hann ttm nóttina á bæ einum íyrir ofan Gunnólfsvík. Svaf hann þar mettur. á mjúkri sæng, og neitaði með öllu að verða leitarmönnum samferða. Gisti hann á bætium, í góðu yfirlæti, þar til línubyggingunni var lokið, en þá settist allur hópurinn að á sama bænum og beið eftir skipsferð, sem ekki féll fyrr en eftir hálfan mánuð, en þá var Sveinn gróinn sára sinna. , Tjaldi okkar var tjaldað, eins og áöttr getur, viö gamlar bæjarrústir. Okkur kotn öllum saman ittn það, að hér hefði ein- hverntima staðiö eitt af þessum afskektu heiðarkotum. Hér hefði búið fólk, sem háð hefði lífsbaráttu sina í einstæöings- skap og umkomuleysi. Einhverntíma heföi

x

Símablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.