Símablaðið

Årgang
Hovedpublikation:

Símablaðið - 01.01.1947, Side 38

Símablaðið - 01.01.1947, Side 38
Ifi SlMABLAÐlÐ jafnan var búsettur hér á landi eftir hing- aðkomuna, og vann aS sítnalagningu á hverju sumri víösvegar á landinu me'ðan heilsan og orkan leyfðu. Af sjávarsandin- um lö'gðum viö á stað, allir gangandi, með 15 hesta undir klyfjum. Þræddum við bakk- ana meðfram Laxá, því að þar var íærið skárst. Iíriðarlaust var þenna dag og klöknaði dálítið, en frost var um nóttina. f'egar kom að Hólmavaði þurftnm við þar yfir Laxá. Fengum við okkur þar bát og ferjuðum mennina og það af. flutningnum, sem ekki mátti þlotna, yfir, en hitt voru hestarnir látnir bera yfir ána. Síðan var ferðinni haldið áfram upp með Laxá að austan þar til komið var gegnt Grenjaðar- stað og Brúnum. Þar voru klyfjar teknar ofan og haldið heini á staðinn. Bað eg þar um gistingu fyrir menn og hesta og var þvi vel tekið. Þá sátu Grenjaðarstað séra Benedikt Kristjánsson og frú Ásta Þórar- insdóttir; þau bjuggu stórt og voru jafnan birg af þeim hlutum, er hafa þurfti. Hjálp- uðu þau jafnan þeim sveitungum, sem hey- stuttir urðu i harðindum og ráku eitt hið stærsta og rausnarlegasta bú í héraðinu, sem marka má af því, að við fengum allir góð rúm og annan greiöa af bezta tagi og hestarnir góð hús og hey, og mun þó ekki hafa verið þrengt verulega að heimafólki. Miðvikudaginn 30. mai héldum við frá Grenjaðarstað, lyftum klyfjunum á klakka hjá Brúum. Frost hafði verið um nóttina, en veður bjart og sólbráð væntanleg þegar á daginn liði. Leiðin lá inn Laxárdal aust- an ár og var livergi stanzaö fyrr en i Hól- um. Sá bær er nálægt miðjum dal. Búend- ur þar Iíelgi Sigurðsson og Þorbjörg Guð- jónsdóttir buðu okkur að þiggja kaffi og hey handa hestum, sem var vel þegið, eftir 12 km. göngu í þungu færi. 1 Hólum lá fyrir mér orðsending frá Pétri á Gautlöndum sú, að fara með Norð- mennina og farangur þeirra inn Laxárdal að Plólkoti — evðibýli innst i dalnum — þar beið maður með hesta úr Gautlöndum og átti aö flytja þá þangaö, en Sigurður í Garði átti að snúa þar við og halda heim- v leiðis með hestana úr Aðaldal. A Gautlönd- um áttu Norðmennirnir að bíða, þar til hægt yrði að flytja farangur þeirra yfir Mývatnsöræfi að Jökulsá. Þessi breyting á áætlun staíaði af því, að þeim Pétri alþm. og séra Arna alþin. tókst ekki aö útvega hesta i Mývatnssveit til þessa flutnings. eins og á stóð með veðráttu, færi og hev. Þegar eg skýrði Björnæs frá þessari breytingu á ferðaáætluninni, þá leit hann fyrst á landabréfið og sló mati á leiöir og vegalengdir, taldi krókinn í Gautlönd ó- tækann, óttaðist líka að þar yrði hann að liggja, kannske svo dögurn skipti meö vinnuflokkinn aðgerðalausan, en kvaðst hins vegar geta bvrjað að vinna iafnskjótt og hann kæmist til Grímsstaða. Að bessu athuguðu neitaði Björnæs að fallast á þessa fyrirsögn, og kvaðst ekki trúa því, aö mér tækist ekki að útvega hesta í Mývatnssveit til að flytja þá austur að Jökulsá. Að lok- inni hvíld i Hólum ákvað Björnæs að við skyldum leggja á Hólasand og stefna til Reykjahliðar. Á sandinum voru komnar krapblár í dýpstu lægðir. og urðum við þvi að fara krókótt til þess aö koma hestunum yfir þær, og tvívegis að taka klyfjarnar af og bera þær sjálfir yfir blárnar, til þess að geta komið hestunum yfir. Frá öndverðu hefir maður og hestur barist hlið við hlið fyrir lífinu í strjálbýli landsins, en nú hef- ir síminn, vegir og bílar létt af báðum miklu erfiði. Þrátt fyrir mikinn seinagang, eink- um á Hólasandi náðum við þó háttum í Reykjahlíð. en þá voru bæði nienh og hestar þreyttir og fegnir góðum viðtökum þar, sem voru prýðilegar. Fimmtudaginn 31. maí hlýnaði veðráttan og byrjaði leysing nokkur. Sigurður i Garði iiélt heimleiðis með hestana úr Aö- aldal, en Björnæs hét á mig að gera allt, er eg gæti. aö útvega hesta i Mývatnssveít undir flutning þeirra austur að Jökulsá næsta dag, en Norðmennirnir hugðust að hvíla sig i Reykjahlíð þenna dag. Þeir Hlíðarbændur spá'ðu ekki vel fyrir erindi minu og neituðu sjálfir aö lána hesta. Samt lagði eg á stað snemma morguns. Eg átti kunnugt frændfólk á öllum bæjum austan við vatn, talaði við bændur í Vogum, Geit- eyjarströnd, Kálfaströnd og Garði, undir- bjó þá nokkuð, fékk ekki ákveðin loforð. en ekki afsvör heldur, fann eg glöggt að á því valt, hvað nágranninn gerði. Bjóst eg við að koma aftur á þessa bæi i baka- Frh.

x

Símablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.