Símablaðið - 01.01.1947, Qupperneq 43
SÍMABLAÐIÐ
21
Kjartan Konráðsson
aðstoöarmaöur við sjálfvirkustöðina varS
sextugur 16. sept. s. 1.
Hann er fyrsti sendimaöur símans i
Reykjávík, kom í þjónustu hans 29. sept.
1906, eSa daginn sem landssiminn var
opnaöur. Um voriö haföi hann lokiS prófi
viS Yerzlunarskólann. Um þessa virSu-
legu stööu sóttu margir ungir Reykviking.
ar. er þótti framabrautin glæsileg innan
hinnar nýju stofnunar.
En kjörin reyndust knöpp — 1 — ein
króna á dag. Enda fór svo, eftir nokkra
mánuöi, aS Kjartan geröi kröfu um launa-
hækkun upp i 45 kr. á rnánuði. Mun þaö
vera upphaf launabaráttu símamannastétt-
arinnar. — En launahækkunin fékkst ekki
— og Kjartan sagði starfinu lausu.
í Reykjavíkinni sagöi Jón Ólafsson
símastjórninni til syndanna út af þessu máli.
Eftir þaö fékkst Kjartan viS verzlunar-
störf, þar til hann gerðist aftur símamaö-
ur 1928. Réðist hann þá sem aSstoðarmaö.
ur til efnisvarSar Landssímans.
Frá 1933 hefur hann starfaS viS sjálf-
virkubæjarsímastööina.
Brynjólfur Eiríksson
húsvöröur Landssímans i Reykjavík varö
sextugur 22. marz s. 1. Hann byrjaSi aS
vinna hjá Landssímanum viS sumarviö-
gerðir 1908, og hefir siSan helgaS síma-
stofnuninni krafta sína. Meira en 30 ár vann
hann aS símalagningum og viSgerSum á
sumrum og lagSi þá víöa land undir fót
á austur og norSausturlandi.
Á vetrum sá hann lengst af um viSgerSir
á simalínunum í sveitum og á heiSum uppi,
en bjó á Seyöisíirði. Fór hann þá margar
langar og strangar ferðir, aðallega fótgang-'
andi eða á skíðum. Hefir frásögn hans af
einni slikri skíSaferS birzt hér í blaSinu
fyrir nökkru. En margar aSrar eru þó
óskráðar, sem ekki mega falla i gleymsku.
Get eg ekki stillt mig um að benda á þaS
hér, hversu yfirstjórn símans er undarlega
sljó fyrir þvi, að halda til haga sögulegum
minningum er siSar meir gætu verið dýr-
mætur fjársjóSur, ef saga stofnunarinnar
yrði skráð. ÁriS 1940 lét Brynjólfur af hinu
erfiða starfi, eftir aö hafa haft verkstjórn
á hendi nærfelt i 30 ár. Hefir hann síSan
verið húsvörSur viS Landssímahúsiö í
Reykjavík.