Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 12

Símablaðið - 01.12.1953, Blaðsíða 12
22 SIMABLAÐIÐ 5Ttaf'famahha/'áð /ahifjJíntahd Stórmerk nýjung á sviði félagsmála hér á landi Árið 1935 liefur verið talið merkasta árið í sögu F.Í.S. — Það ár upp- skar félagið ríkulegan ávöxt langs en heillaríks starfs, sem skapað hafði þvi öndvegissess í félagssamtökum opinberra starfsmanna. Á 20 ára afmælis- degi þess, 27. febrúar 1935, var gefin út af þáverandi símamálaráðherra, Haraldi Guðmundssyni, reglugerð er staðfesti þau réttindi, er samtökin höfðu náð til handa símamannastéttinni og veitti einnig ný réttindi, sem fram á þennan dag hafa verið eins dæmi í félagsmálum opinberra starfs- manna. En það voru ákvæðin um, að F.l.S. var viðurkennt sem samnings- aðili gagnvart stjórn stofnunarinnar. Með þvi ákvæði gerbreyttist öll að- staða félagsins. Reglugerð þessi, — „Starfsmannareglur Landssímans“, — hafa síðan verið fyrirmynd í ýmsum atriðum við aðrar stofnanir og félagssamtök, og ýtt undir og flýtt fyrir ýmsum réttarbótum opinherra starfsmanna. Samt sem áður hefur F.l.S. verið það ljóst, að meðferð ýmsra mála gat verið á þann veg, þrátt fyrir samningsréttinn, að ekki næðist sá árangur alltaf, sem gera hefði mátt ráð fyrir, enda reynslan sýnt, að meðferð mála hefur ekki sjaldan valdið því, að gagnkvæmt traust og skilningur milli hinna tveggja aðila hefur ekki verið á þann veg, sem æskilegt var, og báðir aðilar hefðu óskað. — Kjaramál eru viðkvæm, — og þar skapast mörg viðhorf, sem erfitt er að leysa, og valda óánægju, þar sem sjónarmið beggja aðila eru ekki hin sömu, og ekki grundvöllur fyrir hendi til að samræma þau. Tvö síðustu ár hefur stjórn F.l.S. unnið að því, að koma meðferð personalmála í það horf, að þeir erfiðleikar, sem hér er á drepið, mætti á hverjum tíma verða yfirstignir, og nú hefur sá árangur náðst á þvi sviði, að árið 1953 mun ekki síður verða talið eitt merkasta árið í sögu F.l.S. en árið 1935. — Á þessu ári, eða 20. júlí, gaf þáverandi símamálaráðherra, Björn Ólafsson út breyt- ingu við reglugerðina frá 1935, — er felur í sér stofnun starfsmannaráðs, þar sem sæti eiga 2 fulltrúar frá F.l.S. ásamt 4 fulltrúum frá símastjórninni. Ákvæði um slíkt ráð er alger nýjung i félagsmálum opinberra starfs- manna hér á landi, og stéttarsamtaka yfirleitt, og marka tímamót í félags- mála þróuninni. Þykir rétt að hirta hér í heild reglur um starfsmannaráðið skv. reglu- gerðarbreytingu dags. 20. júli s.l.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.