Símablaðið - 01.12.1953, Page 48
54
SÍMABLAÐIÐ
ÓLAFUR LÁRUSSON I
STÖÐVARSTJÓRI
Ólafur Lárusson, stöðvarstjóri á
Skagaströnd, andaðist 30. mai s.l. —
Hann var fæddur að Gili í Svartárdal
7. september 1887. Foreldrar lians voru
merkishjónin, er þar bjuggu lengi, Lár-
us Árnason og Sigríður Ólafsdóttir.
Ólafur var gagnfræðingur úr Möðru-
vallaskóla. Ungur að árum gerðist
hann kaupfélagsstjóri á Skagaströnd
og gengdi því starfi i um aldarfjórð-
ungsskeið.
Árið 1945 tók hann við stöðvar-
stjóra- og póstafgreiðslumannsstarfinu
á Skagaströnd og gegndi því til dauða-
dags með miklum ágætum.
Árið 1920 giftist hann Björgu Karls-
dóttur Berndsen, sem nú hefur tekið
við störfum við póst og síma á Skaga-
strönd eftir hann. Þrjú börn þeirra eru
á lifi öll gift og búsettt hér í Reykja-
vík.
Heimili þeirra hjóna var alla tíð
annálað fyrir gestrisni. Ólafur var
sveitarhöfðingi. Til hans leituðu menn
ráða, og hann hafði sérstakt yndi af
því að greiða úr vandræðum annarra,
enda sást hann þá oft ekki fyrir um
sinn eigin hag. Hann var inaður hlé-
drægur, en í viðkynningu ávann hann
sér slíkt traust og virðingu, að hann
komst eklci lijá þvi að taka að sér
margvísleg trúnaðarstörf. Á Skaga-
strönd mun hafa verið vandfundinn
vinsælli maður en hann. Símablaðið
færir Björgu stöðvarstjóra á Skaga-
strönd, ekkju Ólafs, samúðarkveðjur
frá simamönnum víðsvegar á landinu.
A. N.
IJr Símablaðinu fyrir 35
árum (1918)
P. Smith, símaverkfræðingur, hefur tekið
aftur uppsögn sina og gegnir símaverkfræð-
ingsstarfi eins og að undanförnu. Enn frem-
ur hefur hann tekið að sér forstöðu Bæjar-
símans í Reykjavík, sem landssímastjórinn
veitti áður forstöðu.
Hjónabönd. Ungfrú Sigríður Hafstein sím-
ritari og Geir Thorsteinsson kaupm. voru
gefin saman 17. þ. m. (ágúst), og ungfrú
Matthildur Kjartansdóttir og Guðbrandur
Magnússon ritstjóri þ. 24. þ. m.
Influenzan (spánska veikin). 7. þ. m. (nóv.)
varð að loka stöðinni að mestu leyti fyrir al-
menningi sökum þess, að þá voru allir lagstir
að undanteknum tveim mönnum, en þeir voru
lítt vanir simaafgreiðslu. Um miðjan mánuð-
inn voru nokkrir orðnir svo hressir, að þeir
gátu farið að vinna aftur og þ. 17. var stöðin
opnuð til skeytaafgreiðslu frá kl. 9—12 og
15—18.
Á Bæjarsímanum hér veiktust allar stúlk-
urnar nema ein.
Úr influenzunni eða afleiðingum hennar
hafa dáið: Gunnar Helgason, simritari, ísa-
firði og Finnbogi Jónsson, stöðvarstjóri.