Dagblaðið Vísir - DV - 10.11.2005, Side 22
22 FIMMTUDAGUR 10. NÓVEMBER 2005
Ast og samlíf DV
„Það að ganga með
barn breytir miklu um
það bvernig konan upp-
lifir sjálfa sig, bæði lík-
amlega og andlega
Ég veit ekki hvortpú getur
hjálpað mér en ég ákvað samt að
prófa að skrifa. Ég er 26 ára kona
og gift besta manni í heimi. Við
eigum sitt hvort barnið úr íyrri
samböndum og núna er ég ólétt.
Allt hefur gengið vel þangað til
núna. Ég er orðin sjúklega
afbrýðisöm og er
stöðugt hrædd um
að hann sé að halda
fram hjá mér eða
hugsa um aðrar
konur. Þetta er gengið
svo langt að ég er hætt að bjóða
vinkonum mínum heim ef hann
er líka heima og mér líður
hræðilega alltaf þegar hann
er í vinnunni þó svo að
hann vinni á algjörum
karlastað. Ég ímynda
mér að það komi
kvenkyns viðskiptavin-
ir inn í fyrirtækið og að
hann hreinlega taki þær
inni á klósetti í kaffipásunni
eða eitthvað álíka ósmekklegt.
Innst inni veit ég að hann
elskar mig heitt og
mundi líklega aldrei
gera neitt svona en
samt ræð ég ekkert við
þessar hugsanir. Hvað á ég
að gera?
Kveðja, Þessi bilaða.
Óiétt oi sjúUeaa
albrýöisbm
Komdu sæl.
Ég held að afbrýðisemi sé
nokkuð sem snertir okkur öll á ein-
hvern hátt. Þetta er óþægileg til-
finning og því meira sem hún rfkir
því verr líður manni. Sumir eru
krónískt ógeðslega afbrýðis-
samir út í allt og alla og aldrei
ánægðir með blómin í eigin garði.
Sumir eru bara smá afbrýðisamir af
og til þegar þeim finnst stöðu sinni
ógnað á einhvern hátt. Stundum
þróast afbrýðisemi í kúgun og allan
þann djöfulgang sem fylgir heimil-
isofbeldi. Myndirnar eru margar en
flestir eru líklega sammála um að
afbrýðisemi gangi í bylgjum og
þessir krónísku eru nú líklega ekki
svo voðalega margir.
Valiö fæðubótarefni ársins 2002 i Finntandi
Minnistöflur
FOSFOSER
MEMORY
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
www.birkiaska.is
Það er eitt ákveðið fyrirbæri sem
afbrýðisemin tengist órjúfanlegum
böndum - sjálfstraustið. Þegar við
upplifum bresti í sjálfstraustinu,
finnst við ekki nógu góð/klár/dug-
leg/falleg, myndast kjöraðstæður
fyrir afbrýðisemina til að blossa
upp. Kannski er það akkúrat að ger-
ast hjá þér núna. Það að ganga með
barn breytir miklu um það hvernig
konan upplifir sjálfa sig, bæði lík-
amlega og andlega. Sumar konur
upplifa þessar breytingar á nei-
kvæðan hátt og það endurspeglast í
óöryggi og sjálfstraustið verður
dulítið brothætt - oftast þó tíma-
bundið. Það skiptir kannski engu
máli að makinn sé ljúfur og yndis-
legur og láti óléttu konuna stöðugt
vita hvað hún sé falleg og frábær -
tilfinningarnar eru engu að síður til
staðar og geta valdið því að konan
upplifir afbrýðisemi sem kannski
passar engan veginn við hennar
vanalega karakter.
Ég vona að þetta sé tímabundið
ástand hjá þér en á meðan þú ert að
upplifa þetta skaltu endilega reyna
að tala við einhvern sem nennir að
hlusta... gjarnan manninn þinn eða
góða vinkonu. Það er svo glatað að
loka svona tilfinningar inni í
kroppnum.
Bestu kveöjrn,
Ragga.
Giftar konur tjá sig um kynlífsvandamál sín
Giftar konur eru mun llklegri til að sem eru giftir eða I sambúö. Sér-
segja maka sínum frá kynlifs- jÉÉfcia fræðingar segja samskipti
vandamálum en einhleypar vandamálið.Það par sem
konur eða giftir karlmenn. . ekki geti talaö opinskátt
Þetta kemur fram ínýlegri tfRstsi'' !■’ V um kynlifsitteigi frekar
könnun sem gerðvar í !v «■< viðvandamál að stríða.f
Bretlandi.Einhleypir karl- heildina sögðust 54% af
menn eru hins vegarlík- í.f ^ ^ konunum og 35% af
legri til að leysa frá skjóð- ) '41 ’ mönnunum eigavið ein-
unni varðandi vandamál í > / hvers konar kynlifsvanda-
svefnherberginu en karlmenn ^ jý ]■' málaöstríöa.
Spenna án framhjáhalds
Flestir stunda framhjáhald spennunnar vegna. Þið getið einfaldlega
bætt spennu í sambandið þótt þið séuð ekki að gera neitt rangt. Planið
að hittast á hóteli í hádeginu á föstudegi. Skráiö ykkur þess vegna rmd-
ir fölsku nafni til að bæta við spennuna. Ekki segja neinum frá. Við-
haldið dulúðinni. Þegar þið eruð mætt á hótelherbergið þurfið þið ekki
að segja neitt, nema þið kjósið það náttúrulega.