Símablaðið

Árgangur
Aðalrit:

Símablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 15

Símablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 15
^ítnablaiii XLII. árg. 4. tbl. 1957 Það er ekki ósjaldan, að maður heyrir um það talað, að félagsstjórnin geri ekki neitt, og að allt félagslíf sé dautt. Það er svo einkennilegt með mennina, hve mis- jafnir þeir eru að skilja og skynja. — Sumum finnst súpan ekki œt, nema hún sé brimsölt og kaffið ekki vera kaffi, nema það sé lagað af tómri rót. Sumir telja málverk ekkert málverk, nema litir þess œpi við þeim, og stjórnmálamaður er enginn ræðurnaður, nema hann eigi feikna forða af stóryrðum og œrumeiðingum á andstœðinginn. Það er tilgangslaust að stökkva vatni á gœs. Sé ekki staðið í verkfalli eða launa- baráttu, finnst mönnum af þessari gerð, að félagsgjöldin sé greidd fyrir ekki neitt og féiagssamtök þeirra sé aumust allra fé- lagssamtaka. — í félagssamtökum eins og okkar, hefur stjórnin allt aðra sögu að segja. — Dag- lega hefur hún viðfangsefni að glíma við, sem einstaklingum og heilum hópum er oft meira virði en sjálf baráttan við launa- lögin. Á liðnu ári hafa tvö slík mál verið á döfinni, sem snerta stóran hóp félags- manna. Um bœði má segja hið sama, að það er ofar skilningi þeirra, sem reynt hafa að skilja hugsun vinnadi fólks, — að um nokkra fyrirstöðu skuli vera að rœða. Annað þessara mála er réttindi tálsíma- kvenna á 1. fl. B-stöðvum. En aðeins á þrem þeirra, Akranesi, Keflavík og Sel- fossi, eru talsímakonum ákveðin með reglugerð sömu réttindi og öðrum opin- berum starfsmönnum. Þetta réttindamál annarra talsíma- kvenna á 1. fl. B-stöðvum virðist, þó und- arlegt sé, œtla að verða ótrúlega erfitt i vöfum. En þessar stúlkur geta treyst því, að félagsstjórnin skilur ekki við málið fyrr en réttur þeirra sem annarra opinberra starfsmanna, hefur verið viðurkenndur. Hitt þessara höfuðmála snertir einnig félagskonur, en það er launajafnrétti karla og kvenna. Þó merkilegt sé, er þetta mál tiltölulega nýtt á döfinni, ■—- en eftir nokk- ur ár, mun það þykja ótrúlegt, að laun skuli nokkurn tima hafa verið miðuð við kyn fremur en starf. Þó er það fyrir löngu viðurkennt, að í störfum, sem ekki reyna fyrst og fremst á kraftana, standa konur yfirleitt ekki karlmönnum að baki í vinnu- afköstum og starfshœfni, — t. d. við skrif- stofustörf. Og sú kemur tíð, að kon- ur verða að miklum meirililuta valdar til slíkra starfa, — en hraustum karlmönn- um fengin viðfangsefni, sem meira reyna á kraftana en penninn og reglustikan. Það hefur lengi verið mörgum, sem þar hafa átt um að fjálla, ógeðfellt að skipa fyrir, þar sem konur og karlar hafa unnið sömu störf og konur oft staðið þeim fram- ar í vinnuhœfni, — en haft þó miklum mun lœgri laun. — Sama er að segja um fjölda trúnaðarstarfa, þar sem launin hafa verið liœkkuð, ef karlmaður hefur tekið við þeim af konu. — En, sem betur fer, sést nú fyrir end- ann á þessu misrétti, — og er Símablað- inu kunnugt um, að stjórn F.Í.S. er ákveð- in í því, að taka mál þetta föstum tökum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Símablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.