Símablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 40
7«
I ágúst hófst greiðasala í samkomusaln-
um á 6. hæð í nýja símahúsinu.
F.l.S. hefur nú keypt píanó, og er skemmt-
analífið strax að færast í aukana.
Starfsfólk aðalskrifstofunnar reið á vaðið
og hélt skemmtun síðasta laugard. i sept.
með nokkrum skemmtiatriðum.
Laugardaginn 16. nóv. hélt hópur línu-
manna upp á 10 ára starfsafmæli sitt. Var
samankomið um 80 manns við það tækifæri.
— Skemmtunin var fjölbreyttari en vant er
hjá simamönnum. M. a. var sýndur gaman-
þáttur úr daglegu starfi línumanna, er þeir
sjálfir höfðu samið. — Ennfremur gáfu þeir
út skemmtiblað, og var það lesið upp, —
og loks sýnd kvikmynd. Var þetta hin bezta
skemmtun og hinum ungu línumönnum til
sóma.
Og nú, þegar þessi útvörður íslenzkrar
símatæknimenningar verður að láta af
störfum fyrir aldurs sakir, störfum sem
hann þó óumdeilanlega er fullfær til að
sinna, mun hann una því vel að vera sett-
ur á bekk með jafnöldrum sínum, eins og
lög mæla fyrir. Löghlíðnin er nú einu sinni
ein af hans dyggðum. En starfsmönnum
Þorsteins, vinum og frændum, er það ó-
blandin ánægja, að samfagna honum með
óbilaða starfskrafta og ágæta heilsu, sem
þeir óska og vona að endist honum til
hárrar elli.
BÍMABLAÐIÐ
Byggingarsamvinnufélag simamanna hélt
aðalfund sinn 30. ágúst síðastl. Hefur félagið
lokið við þriðju stórbygginguna og hefur í
hyggju að byrja strax á undirbúningi að
þeirri fjórðu. — Formaður félagsins er nú
Hafsteinn Þorsteinsson, síðan Magnús Magn-
ússon varð símastjóri í Vestmannaeyjum.
Ýmsir skemmtiklúbbar munu starfa i vet-
ur, m. a. spilaklúbbur og taflklúbbur.
Þá er i undirbúningi að stofna bókbands-
klúbb, því að meðal símamanna eru margir
bókbindarar. Er í ráði að þeir vinni saman
að bókbandi og leiðbeini hver öðrum.
Hvítt mátar í þriðja leik.
Þetta er að segja um félagslífið í Reykja-
vík.
En hvað um félagslífið utan Reykjavíkur?
Em. J.