Símablaðið - 01.12.1957, Blaðsíða 33
S I M AB LAÐIÐ
71
l^ímíeiL
ur
í BIÐSTOFUNftl
1. Meðan híma menn að síma
marga tíma, bögur ríma.
Rúður hríma, rökkurskíma, —
rammir glíma, draugar kíma.
5. Flíkum skinna ver:
skjótir ginna fisk
Eikur tvinna, ullu
ilinn kinna bragna
2. Margir stríða menn og líða
mœtir, bíða sœlli tíða.
Oft hin þíða angurblíða
elur kvíða milli hríða.
3. Hrafnar svelta, hundar gelta
hátt til belta, flagra, elta,
hræin melta, mat ei selta,
margoft helta sauð og velta.
4. Hestar strjúka, hripin fjúka,
heyja klúka fer í búka.
Konur brúka klœðið mjúka.
Kindur húka, sandar rjúka.
ágætlega, og verður húsið hið myndarleg-
asta, þrjátíu ágætar íbúðir. í>að er orðið
æðimikið átak, sem byggingafélag síma-
manna hefur gert á fáum árum. Og margir
hafa lagt þar á sig mikið starf fyrir litið
gjald og alveg sérstaklega ber að þakka
hinum nýja formanni, Hafsteini Þorsteins-
syni, sem hefur á allan hátt stuðlað að því,
að leysa hin ýmsu vandamál sem fram hafa
komið, og látið af mörkum mikla vinnu i
þvi skyni. Hvað framundan er í byggingar-
málum símamanna skal ekki sagt. En áhugi
er mikill að láta ekki staðar numið, því
höfuðnauðsyn er hverjum einstaklingi að
eignast þak yfir höfuðið.
Sæm. Símonarson.
menn sinna,
og vinna.
spinna,
ir finna.
6. Hittast smalar, haninn galar
hœnur falar utan dvalar.
Grœnka balar, barnið hjalar,
bóndinn talar, kisa malar.
7. Döggin grœðir, dunan hrœðir,
dröfnin œðir, sólin brœðir,
stormur nœðir, fljótið flœðir,
fólkið mœðir, kindum blœðir.
8. Burt er Ijáin, bliknar háin,
bogna stráin, þornar gljáin.
Kólnar táin, kvikar láin,
köld er gjáin. Mörg er þráin.
9. Öskustóin étur móinn,
augna fróin leggst í snjóinn.
Vœlir kjóinn, víkur róin
vellur spóinn, — ólgar flóinn.
ABC.
Símablaðið ætlast til þess, að bragsniil-
ingar stéttarinnar haldi þessari rimþraut
áfram í blaðinu næsta ár, og mun senda
þeim, er bezt stendur sig, jólaglaðning fyrir
næstu jól.