Símablaðið

Ukioqatigiit
Saqqummersitaq pingaarneq:

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 26

Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 26
64 SÍMAB LAÐ IÐ en taki ekki orlofsfé, og þeir er kunna að liafa tekið orlofsfé, hætti því frá næstu áramótum.“ Ilvað liggur hér að baki? í fljótu hragði mætti hugsa sér, að nokkur liluti stöðvarstjóranna svikist vísvitandi um sitt orlof, til þess að geta í þess stað liirt aurinn, sem greiddur er, eða eitlhvað i þá átt. Svo er þó ekki. Hvers vegna varð þessi ályktun til ? Vegna þess, að nokkrir innan deildarinnar geta alls ekki verið að heiman, eins og ann- að gott fólk, sér til hvildar og hress- ingar í sumarleyfi. Hversvegna? Af þeirri einföldu ástæðu, að þeir geta ekki hlaupið frá skyldum sinum, þeir eru háðir þeim, eins og kálfurinn tjóðri sínu. Þeim er sagt, meira að segja á prenti af sjálfum löggjafanum, að þeir eigi að búa við réttindi og skyldur — eins og aðrir, sem eru í þjónustu ríkis- ins. Það virðist svo, að til þess sé ætl- azt, að þeir ræki skyldurnar, hvað sem réttindunum líður. Skal þetta skýrt nokkru nánar. Á mörgum 1. fl. B-stöðvum er aðeins ein starfsstúlka og mun almennt gert ráð fyrir að hún vinni um 6 stundir á dag. Afgangstímarnir fjórir falla þá í hlut stöðvarstjórans, auk reiknings- halds, skýrslugerða og innheimtu vegna Landssímans. Auk þessa er pósthús op- ið frá kl. 10 f. h. til (5 e. li. Á síma- og póststöðvum, þar sem margt starfs- fólk vinnur að jafnaði, mun oft vera hægt að taka orlof á vixl með auka- vinnu. Það er nokkur lausn, en hvergi nærri viðundandi, ef orlofsþeginn verð- ur að gjalda orlof sitt með tvöföldum vinnnudegi. Margir myndu þó telja slíka lausn eins og hvalreka á sínum fjör- um, allt er tilvinnandi fyrir eitthvert orlof. A þessum sömu stöðum eru og oft fleiri og færri er áður hafa unnið að þessum störfum, og þyggja gjarna íhlaupavinnu, þótt ekki geti sinnt fastri. Til þeirra mun oft verið gripið. I fá- menni eru þessar leiðir undantekning- arlítið lokaðar. Hvað dugleg sem síma- stúlkan kann að vera, er vinnur ein með símastjóranum, kemst hún ekki yfir það að sitja 10 tíma við erfiða símaafgreiðslu og afgreiða allt á póst- húsinu að auki. Meðan ekki er unnt að deila einni manneskju í tvo hluta, verða báðir þessir aðiljar að sitja heima, livað sem öllum orlofsgjöfum liður, og hvað sem prentaðar heimildir segja um rétt- indin. Mikil úrbót væri það, ef framgengt yrði þeim óskum deildarinnar, að lág- marksaðstoð til póst- og símstjóra vrði ein og hálf starfstúlka. Þá myndi rýmra um vik, enda þótt orlof þess- ara aðila væri bvggt á þvi, að fólkið sjálft hjálpaði hvert öðru, meðan sum- arleyfa væri notið. Með fullum rétti er minnzt á starfs- þreytu í síðasta blaði. En geti nokkrir menn fengið ofskömmtun hennar, hljóta það að vera þeir, er aldrei fá hvíld, aldrei geta hrist af sér klafann. Það er alkunna, að starfsfólk lilakk- ar ahnennt til orlofsins, næstum eins og börn til jóla, og einnig skiljanlegt. Amstur og önn brauðstritsins er látið lönd og leið, — íslenzkt sumar, eða erlent, sólskin og hvíld, en þó fyrst og fremst frelsi1, er fögnuður þess. - Og við, sem tjóðraðir erum, fáum góða gesti, sem við gleðjumst með, afgreið- um þá með póst og síma, drekkum með þeim kaffisopa, ef tími vinnst til, og segjum kannski til vegar til næsta

x

Símablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.