Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 32
70
SIMAB LAÐIÐ
ganga; enda er hvorki félagsráð né
framkvæmdastjórn almáttug. En þó
eru þau orðin æðimörg verkefnin, sem
félagsráð og framkvæmdastjórn hafa
fengið til meðferðar og tekizt að leysa.
En rúmsins vegna verður ekki nema
lítið eitt talið hér.
Yið skulum þó nefna mál stúlknanna
á 1. fl. B-stöðvunum. Það var nokkuð
þungt i vöfum, en vannst þó. Á stærstu
þessara stöðva hafa þær nú söniu kjör,
réttindi og skyldur, og stúlkurnar á
landssímannm i Reykjavík. Nú er fram-
kvæmdastjórn að vinna að því, að kjör
stúlkna á öllum 1. fl. B-stöðvum kom-
ist í sama liorf. Það hefur ekki tekizt
að leysa það ennþá. En að því verður
unnið með festu og einurð þar til það
vinnst.
Og síðast frísímamálið.
Póst- og símamálastj órnin var húin
að ákveða, að þeir starfsmenn, sem
fengju nýjan síma, skyldu greiða fullt
afnotagjald án tillits til þjónustualdurs.
Með því var sniðgengin sú venja, sem
áður hafði ríkt. Menn undu þessu að
vonum illa og sneru sér til fram-
kvæmdastjórnarinnar og' óskuðu að-
stoðar hennar i þessu máli. Fram-
kvæmdastjórnin tók málið þegar upp
við póst- og símamálastjóra. Hélt hún
fast og eindregið fram þeirri skoð-
un, að tvennskonar reglur gætu ekki
gilt innan stofnunarinnar í þessu efni,
þar sem eldri starfsmenn liefðn þau
hhumindi, að þurfa ekki að greiða af-
notagjöld sin. Væri óverjandi, að láta
þá er nú fengju síma greiða full gjöld.
Því fremur sem margir þeirra hefðu
langan þjónustualdur að baki.
Málinu lauk þannig', að fjármálaráðu-
neytið gaf út reglugerð þar sem sjón-
armið framkvæmdastjórnarinnar voru
tekin til greina.
Fleira verðnr ekki rakið að sinni. Það
skal játað, að það er erfitt að vinna svo
að félagsmálum i jafnstóru félagi og
margþættu sem F.I.S. er, að öllum líki.
En það skal sagt, að við erum ósmevkir
við að gera samanburð á störfum okk-
ar og ýmsra annarra, sem með stjórn
félagsins hafa farið á undan okkur.
S. S.
Þess skal getið, ssm gert er
Eins og kunnugt er, er Byggingasamvinnu-
félag símamanna með stórbyggingu í smið-
um, sem nú er að verða lokið. Bygging þessi
Hafsteinn Þorsteinsson.
stöðvaðist alveg á fyrra ári vegna féleysis,
og engin von var til, að ljúka verkinu nema
lán fengist, en á því voru litlar horfur.
Þeir, sem að byggingunni stóðu voru þess
alls ómegnugir að leggja meira fram, svo
útlitið var ekki glæsilegt. En úr hefur þó
rætzt fyrir atbeina stjórnar B.S.R.B. Lífeyr-
issjóðurinn hefur veitt viðbótarlán svo hægt
hefur verið að ljúka verkinu að mestu leyti
nú í sumar. Ber að þakka stjórn B.S.R.B.
fyrir ötula framgöngu í þessu máli.
Vegna góðs tíðarfars í sumar gekk verkið