Símablaðið

Árgangur
Main publication:

Símablaðið - 01.12.1957, Síða 37

Símablaðið - 01.12.1957, Síða 37
S I M AB LAÐIÐ 75 jafnframt fengið aukið öryggi og ócij'r- ara jarösímakerfi. — Er þetta m. a. að þakka samþjöppun sambanda og annari tækniþróun. Mér er ánægja að geta þess, að í þessu undirbúningsstarfi höfum við sótt mik- inn stuðning í bina fræðilegu skýrslu Dr. Rapps um nýjasta jarðsímakerfi L. M. Ericsson. Ennfremur ber að geta þess, að pípu- kerfi bæjarsíma Reykjavíkur hefur ver- ið aukið með sextán pípum frá mið- bænum, sem enda í austurbluta bæjar- ins með átta 10 sm. pípum. Prytz deildarverkfræðingur lijá bæj- arsímanum i Osló kom hingað og var ráðunautur okkar við framleiðslu þess- ara strengjablokka við notkun gum- slangna eftir nýrri amerískri aðferð. Þá befur verið lagður auka 600 lina jarðstrengur milli Miðbæjarins og Grensásstöðvarinnar, sem gerir það að verkum, að símanotendur er flytja milli bæjarhlutanna, þurfa ekki að skipta um símanúmer þar til ný símaskrá er gef- in út: — Þessi strengur er einnig not- aður til jöfnunar á milli stöðvanna. — Þannig fá nú í nótt 350 nýir símanot- endur á Grensássvæðinu númer, sein tengt er miðbæjarstöðinni. Eins og ég áður hef sagt, var samn- ingur um vélar í þessa stækkun gerð- ur við L. M. Ericsson fyrir tæpum þrem árum. — Þrjú ár eru ekki langur tírni, þegar um er að ræða slíka framkvæmd og hér hefur átt sér stað. En márgir hafa lagt hönd á plóginn, og vil ég við þetta tækifæri bera fram þakkir til liinna mörgu, er þar eiga hlut að máli, og þá fyrst og fremst minna nánustu samstarfsmanna, ís- lenzkra og' erlendra. Því miður gátu þessir menn ekki ver- ið hér með okkur i kvöld, vegna þeirr- ar ábyrgðar, sem á þeim hvílir á þeirri stund er bin nýja viðbót er tekin i notk- un, og síðasti undirbúningur að því er gerður. Að lokum vil ég biðja ykkur að lyfta glösum með heillaóskum til stofnun- arinnar með þessa nýju viðbót við bæj- arsímakerfið. IIII © Ijil: 4 4 4 ÞEIR EIGA BEZT---------- Þeir eiga bezt, er enga hugsun vekja og engar þrár né lífsins gátur rekja, en lifa að eins fyrir munn og maga og meta - eins og skepnan - loðna haga. VIT OG STRIT. Einn ég sit við önn og strit, yrki fit að nýju kvæði, sýni lit, en lítið vit, löngum bit á skáldsins fræði. HÁÐ OG NÍÐ. Hugdettusmíði í háði og níði ier hæpnasta prýði, já, svo er nú það, þó er það við líði í logni og stríði, við lesum það víða — og skrifum á blað! H. J. " : • - j

x

Símablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Símablaðið
https://timarit.is/publication/1720

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.