Símablaðið - 01.12.1957, Qupperneq 43
5 IMABLAÐIÐ
»1
enn hafa ekki fengið sambærileg laun
og karlar við vandasöm og ábyrgðar-
mikil störf.
Inga Jóhannesdóttir.
18. þing B.S.R.B., kaus sérstaka nefnd til
að fjalla um launamál kvenna, í nefndinni
af hálfu F.f.S., var Inga Jóhannesdóttir og
gerir hún grein fyrir störfum nefndarinnar
hér að framan.
Eins og kemur fram í grein þessari, er
nefndin nú að safna skýrslum um þær kon-
ur, sem telja sig ekki fá laun í samræmi við
þær kröfur, sem til þeirra eru gerðar.
Stjórn F.l.S. beinir því til kvenna innan fé-
lagsins, að koma í hendur hennar sem allra
fyrst, þeim kvörtunum, sem þær hafa fram
að færa um launamál sín.
Uppeldi.
Ung húsmóðir fór í heimsókn til heimilis-
læknis síns, og var með 4 ára son sinn.
Ekkert gerði hún til þess að aftra honum
frá því að hafa hönd á öllum hlutum á
lækningastofunni, eins og börnum er títt.
Allt í einu heyrðist mikill gauragangur og
flöskuhrun. Þá rankaði móðirin við sér og
sagði við lækninn: ,,Ég vona, læknir, að
þér takið ekki til þess þótt Dengsi minn
hafi komizt inn í rannsóknarstofu yðar?“ —
„Nei, nei, frú. Þetta er allt í lagi; hann
þagnar þegar hann kemst í klóróformið.“
IIIi • Blili
Konur elska hina einföldustu hluti í til-
verunni, eins og t. d. Jcarlmenn.
,,Ég hef verið giftur í 27 ár,“ sagði em-
bættismaðurinn við þann nýgifta,' „og alltaf
hefur konan mín leyft mér að gera allt sem
ég hef viljað, og hún hefur alltaf gert það
sem ég hef óskað, og þetta hefur gengið
alveg prýðilega.“
•
• Iliil •
•
Ég ætlaði að hringja til mömmu á mæðra-
daginn ,en fékk skakkt númer, — auðheyrt
var, að ég talaði við unga stúlku.
„Afsakið," sagði ég, „en má ég þá óska
yður til hamingju með mæðradaginn". —
„Það, — það er einmitt það, sem ég er
hrædd um,“ heyrði ég sagt, um leið og heyrn-
artólið var lagt á.
Eins og margir vita, hafa hinar arabisku
konur í Norður-Afríku ekki átt sjö dagana
sæla, því að sá siður hefur alla tíma tíðk-
azf þar, að húsbóndinn ríður á asnanum,
en konan labbar á eftir með það á bakinu,
sem flytja þarf. En þetta hefur nú breyzt,
eins og margt annað, síðan striðinu lauk.
I dag fær konan að ganga á undan asnan-
um, því alltaf getur verið hætta á jarð-
sprengjum ....
Maður, sem temur sér að segja aldrei
ósatt við konur, tekur ekki mikið tillit til
tilfinninga þeirra.
Veiztu, hvaða ár eru erfiðust í lífi kon-
unnar?
Nei.
Það eru þessi 10 ár ,— milli 29 og 30.
lilffl • (1111
SUMAR.
Sumari'ð gaf mér sólskinsbál,
sumardaga bjarta,
sumarið er mitt söngvamál,
sumariö á mitt hjarta.